Morgunblaðið - 27.04.2012, Page 1

Morgunblaðið - 27.04.2012, Page 1
 Stofnað 1913  98. tölublað  100. árgangur  Ljúffengar uppskriftir með matreiðslurjóma er að finna á www.gottimatinn.is Rjómi með tappa endist lengur! ATH! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA AFMÆLISVEISLAN FRUMSÝND Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU ALLT UM HJÓL OG HJÓLREIÐAR LANDSMANNA HELENA MEÐ NÝTT TILBOÐ FRÁ SLÓVAKÍU 24 SÍÐNA AUKABLAÐ TVÖFALDUR MEISTARI ÍÞRÓTTIRTÓNLISTIN HEILLAR 42 Skólastjórar Nýja ökuskólans og Ökuskólans í Mjódd segja báðir að fleiri sækist nú eftir að afla sér réttinda til farþegaflutninga. Eina skýringin sem þeir kunna á þessu er að ökumennirnir telji að aukinn straumur ferðamanna til landsins kalli á fleiri rútubílstjóra. „Ég býst við að skýringin sé umræðan um aukningu í ferða- þjónustu,“ segir Svavar Svav- arsson, skólastjóri Nýja ökuskól- ans. Hann segir aukninguna umtals- verða. Hópurinn sem fari á nám- skeið til að öðlast réttindi til far- þegaflutninga sé fjölbreyttur. Algengt sé að þeir sem hafi áður náð sér í réttindi á vörubíl og vöru- bíl með vagni vilji nú bæta við sig rúturéttindunum sem þeir höfðu kannski ekki áður áhuga á því far- þegaflutningar kalli á mikla kvöld- og helgarvinnu. „En núna geta menn bara minna valið það sem þeir vilja heldur verða að velja greinar þar sem þörf er fyrir hendi,“ segir hann. Guðbrandur Bogason, skóla- stjóri Ökuskólans í Mjódd, hefur svipaða sögu að segja. Merkj- anlega meiri áhugi sé á ökurétt- indum til fólksflutninga og engin skýring önnur sé á því en aukin umsvif í ferðaþjónustu. Fleiri vilja aka ferðamönnum Kostnaður Réttindi til að aka rútu kosta hátt í 300.000 krónur. Morgunblaðið/Jakob Fannar F Ö S T U D A G U R 2 7. A P R Í L 2 0 1 2 Reuters Væntanlegur Russel Crowe leikur í mynd um Nóa sem verður tekin hér að hluta.  Truenorth ehf. kemur að tökum á þremur stórum kvikmyndaverk- efnum hér á landi í sumar. Nýlega var greint frá því nýjasta, Noah eða Nóa, með Hollywood- leikaranum Russel Crowe í aðal- hlutverki. Auk Nóa kemur Truenorth ehf. að tökum á fleiri kvikmyndum þar sem þekktar Hollywood-stjörnur verða í aðalhlutverkum. Þar má nefna myndirnar Oblivion með Tom Cruise og The Secret Life of Walter Mitty með Ben Stiller. Truenorth ehf. lagði fram beiðni til Rangárþings ytra um að fá að kvikmynda nálægt Veiðivötnum í sumar. Hreppsráð Rangárþings ytra tók erindið fyrir í gær og samþykkti það með skilyrðum. »6 Hollywood-stjörn- urnar koma hver á fætur annarri Þungt í lögreglumönnum » Mikill þungi var í umræðum um kjaramál á landsþingi lög- reglumanna í vikunni. » Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra hélt erindi á þinginu og svaraði fyrir- spurnum fundarmanna. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Rekstur lögreglunnar gengur ekki lengur upp,“ segir Snorri Magnús- son, formaður Landssambands lög- reglumanna, LL, um ályktun sem þing sambandsins samþykkti í vik- unni um að „lögreglan á Íslandi verði lögð niður í núverandi mynd“. Snorri segir ályktunina, sem sam- þykkt var einróma, hafa verið gerða vegna gríðarlegs niðurskurðar á fjárframlögum til lögreglunnar og fækkunar lögreglumanna. Hann segir búnaðarmál, þjálfun og sí- menntun lögreglunnar vera í ólestri. „Þetta er greinilega stílbragð af hálfu Landssambands lögreglu- manna til þess sniðið að leggja áherslu á mikilvægi þess að styrkja löggæsluna og að nóg sé komið af að- halds- og niðurskurðaraðgerðum,“ segir Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra um ályktunina. „Ástæð- urnar fyrir niðurskurði undangengin ár eru öllum kunnar. Einnig lög- reglumönnum. Nú fer sólin vonandi hækkandi á hinum efnahagslega himni og þar með vonandi einnig inn- an lögreglunnar. Löggæslan þarf að vera í lagi og þar er ég á einu máli með Landssambandi lögreglu- manna,“ segir Ögmundur. MSegir öryggi lögreglu... »2 Lögreglan verði lögð niður  Þing Landssambands lögreglumanna samþykkti harðorða ályktun vegna mikils niðurskurðar  Innanríkisráðherra segir ástæður niðurskurðar öllum kunnar Gunnar Guðbrandsson Fáksfélagi lagði sitt af mörkum ásamt öðrum félagsmönnum þegar þeir komu saman í gærkvöldi í Víðidal til að undirbúa svæðið fyrir Landsmót hestamanna sem fram fer á félagssvæðinu í sumar. Verkefnið snerist um að setja upp grindverk utan um Hvammsvöll, að- alkeppnisvöll svæðisins. Framkvæmdir hafa staðið yfir síðan 2010 og eru ennþá nokkur stór verkefni eftir, en þeim lýkur 20. maí nk. »12 Fáksmenn á fullu við undirbúning landsmóts í sumar Morgunblaðið/Kristinn  Þegar haft er í huga að snjó- hengja af- landskróna er talin vera um þúsund millj- arðar þá er ljóst að það tæki ára- tugi að afnema gjaldeyrishöftin ef ætlunin væri að leka aflands- krónum út úr hagkerfinu fyrir til- stilli erlendrar fjárfestingar. Þetta kemur fram í fréttabréfi Júpiters rekstrarfélags. Bent er á að bein erlend fjárfesting hafi numið 1,6% sem hlutfall af landsframleiðslu 1991-2010 að undanskildum ár- unum 2005-2007. »20 Tæki áratugi að afnema höftin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.