Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Stúlknakórinn Draumaraddir Norð- ursins hefur gefið út sinn fyrsta geisladisk, Súkkulaðiland, sem inni- heldur 15 erlend sönglög, öll sung- in með íslenskum texta. Af því til- efni verður efnt til veglegra út- gáfutónleika í menningarhúsinu Miðgarði í Skaga- firði sunnudaginn 29. apríl nk. kl. 16. Í kórnum eru um 20 stúlkur úr Skagafirði og Húnaþingi á aldrinum 11-18 ára, flestar frá Sauðárkróki en koma allar úr Söngskóla Alexöndru Chernyshova óperusöngkonu. Alex- andra stjórnar kórnum, hún útsetti lögin á disknum og sá um upptökur. Flestir textarnir eru eftir Hilmi Jó- hannesson. Stúlknakór hefur verið starf- ræktur við söngskólann frá stofnun hans árið 2008 og tekið þátt í mörg- um verkefnum síðan, m.a. sam- starfsverkefninu Nordplus. Í tengslum við það verkefni er kórinn nýlega kominn heim frá Litháen og fór til Eistlands sl. haust. Í júlí stendur fyrir dyrum ferð til Lett- lands þannig að kórinn er á faralds- fæti. Draumaraddirnar vinna saman verkefni með söng- og grunnskólum í þessum löndum og gista á heimilum þátttakenda. Hópar frá Eistlandi og Lettlandi eru einmitt staddir hér á landi og munu taka þátt í útgáfu- tónleikunum í Miðgarði á sunnudag- inn. Kórinn var einnig með tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur um liðna helgi, sem hluti af Barnamenningarhátíð- inni, auk þess að syngja í Laugar- dalslauginni. Skemmtilegt og lærdómsríkt „Þetta hefur verið mjög skemmti- legt verkefni og lærdómsríkt fyrir stúlkurnar. Ferðirnar út hafa heppnast mjög vel. Við höfum fengið góða aðstoð frá vinum okkar og for- eldrar hafa verið duglegir að safna í ferðasjóð og vinna með okkur. Guð- rún Ásmundsdóttir leikkona var með okkur í Litháen en hún hefur alltaf stutt vel við bakið á starfsemi söngskólans,“ segir Alexandra. Hún vonast til að sjá sem flesta í Miðgarði á sunnudaginn og lofar fjölbreyttri og skemmtilegri fjöl- skylduskemmtun. Undirleikur á tón- leikunum verður í bland lifandi á pí- anó, gítar og fiðlu auk undirspils af geisladisknum. Húsið er opnað kl. 15:20. Forsala miða fer fram í Tísku- húsinu á Sauðárkróki. Aðgangseyri er stillt í hóf: 500 kr. fyrir börn að 16 ára aldri og 1.000 kr. fyrir fullorðna. Súkkulaðiland Drauma- radda norðursins  Útgáfutónleikar nýs geisladisks í Miðgarði á sunnudag Morgunblaðið/Eggert Draumaraddir Stúlknakór úr söngskóla Alexöndru Chernyshova á tón- leikum í Ráðhúsinu á Barnamenningarhátíð í Reykjavík. Alexandra Chernyshova Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég hef löngum heillast af verkum Pinters og því tók ég þessu verkefni fagnandi,“ segir Guðjón Pedersen sem leikstýrir Afmælisveislunni eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter sem frumsýnd verður í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu í kvöld kl. 19:30. Eins og kunnugt er tók Guðjón við leik- stjórnartaum- unum af Baltasar Kormáki sem varð frá að hverfa í kjölfar velgengni kvikmyndar sinn- ar Contraband. Spurður hvern- ig hafi verið að taka við taum- unum af Baltasar segir Guðjón það hafa verið ljúft. „Mér var tekið af- skaplega vel, enda er þetta eðalhópur sem kemur að þessari uppsetningu. Það var því mikill heiður og ánægja að fá að vinna með þessu fólki,“ segir Guðjón. Refsað fyrir óljósan glæp Afmælisveislan er fyrsta leikrit Pinters í fullri lengd, en það var frumflutt árið 1958. Í verkinu segir af Stanley sem er fremur framtakslaus ungur maður, sem virðist áður hafa unnið fyrir sér sem píanóleikari. Hann lifir þó á vissan hátt við ákveðið öryggi þar sem hann býr í herbergi í niðurníddu gistihúsi í litlum bæ við sjávarsíðuna í Bretlandi, dekraður af eiginkonu gistihúseigandans. Skyndi- lega er honum kippt af afli út úr þess- ari veröld, þegar tveir dularfullir menn birtast til að refsa honum fyrir glæpi sem óljóst er hverjir eiginlega eru. Eiginkona gistihúseigandans vill áköf halda afmælisveislu fyrir Stanl- ey, en veislan breytist smám saman í sannkallaða martröð. Að mati Guðjóns hefur leikritið elst vel. „Þetta er frekar tímalaus texti. Þó svo í verkinu séu mjög sterkar skírskotanir til þeirra pólitísku deilna sem uppi voru í Bretlandi og Írlandi á ritunartímanum þá er eins og hægt sé að yfirfæra þær deilur yfir á aðra hluti. Það skemmtilega við þetta verk er að það fjallar um allt. Þannig geta allir fundið sína merkingu í verkum Pinters,“ segir Guðjón og tekur fram að það sem sér finnist mest spenn- andi við Pinter sé hversu mikla tónlist sé að finna í textum hans. „Pinter er maður orðsins. Tónlistin sem birtist í verkum hans er samt allt öðruvísi en t.d. tónlistin sem einkenn- ir verk Shakespeares, sem ég hef unnið mikið með í gegnum tíðina,“ segir Guðjón og tekur fram að verk Pinters einkennist líka af mikilli óræðni. „Ég er þannig viss um að áhorfendur eigi eftir að sjá ólíka hluti út úr sýningunni. Og það er það sem er svo skemmtilegt og heillandi við þetta leikrit. Það er svo opið,“ segir Guðjón og tekur fram að hann gæti vel hugsað sér að vinna með fleiri leikrit Pinters. „Fyrir nokkrum árum ríkti hálfgert Pinter-æði hérlendis. Þannig sýndi P-leikhópurinn nokkur verka skáldsins. Ég man að ég sá þau öll og hreifst af skáldheimi Pinters. Síðan þá hefur hann legið í dvala á Ís- landi. Vinnan mín með Afmælisveisl- una hefur hins vegar aukið áhuga minn enn frekar á honum.“ Tónlistin í textanum heillar  Afmælisveislan frumsýnd í Þjóð- leikhúsinu í kvöld Afmælisbarnið Ingvar E. Sigurðsson leikur Stanley sem fær óvænta heimsókn tveggja dularfullra manna. Guðjón Pedersen Gunnlaugur A. Jónsson, pró- fessor í gamla- testament- isfræðum við guðfræði- og trúarbragða- fræðideild Há- skóla Íslands, verður sextugur á laugardaginn og af því tilefni gefur Hið íslenska bókmennta- félag út afmælisrit honum til heið- urs og haldið verður málþing í há- tíðarsal Háskólans kl. 13.30 afmælisdaginn. Erindi flytja Guðrún Kvaran, sem fjallar um áhrif Biblíunnar á íslenskar nafngjafir, Terje Storda- len, sem ræðir um hefðarveldi guðspjallanna og Susan Gill- ingham sem fjallar í máli og myndum um áhrifasögu sálms 137. Áshildur Haraldsdóttir flautuleik- ari flytur lög á milli erinda, m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns móðurafa Gunnlaugs. Við þetta tækifæri verður Gunn- laugi afhent afmælisritið sem ber titilinn Mótun menningar/Shaping Culture og vísar til áhuga hans á áhrifum Biblíunnar á samfélag og menningu. Greinar í ritið skrifa um tuttugu fræðimenn sem Gunnlaugur hefur kynnst á ferli sínum, bæði hér heima og erlendis. Bókin verður um 400 síður. Ritstjórn skipa Kristinn Ólason, Ólafur Egilsson og Stefán Einar Stefánsson. Málþingsstjóri er Ólafur Eg- ilsson, fyrrv. sendiherra. Mál- þingið er öllum opið. Málþing og afmælisrit Gunnlaugs A. Jónssonar Gunnlaugur A. Jónsson Salóme Fann- berg opnar sýn- inguna Er lífið saltfiskur? í Gull- kúnst Helgu að Laugavegi 13 í dag kl. 18. Þetta er þriðja sýningin sem Sal- óme heldur hér á landi eftir langa búsetu erlendis. Sýningin verður opin á opn- unartíma verslunarinnar fram að 26. maí nk. „Salóme hefur verið órög að leita á ný mið eftir „þráðum“ og ótrúleg- ustu hlutir í umhverfinu verða henni að efniviði. Þekktust er hún fyrir þangið og óunna ull, sem hef- ur verið sem rauður þráður í lista- mannsferli hennar,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Myndverkin á sýningunni hafa öll verið gerð eftir heimkomuna á árunum 2007-2012. Er lífið saltfiskur? Hafsauga eftir Salóme Fannberg. Pétur Gautur listmálari opnar sýningu á nýjum málverkum í Baksal Gallerís Foldar á morgun kl. 15. Stráka- hljómsveitin The Retros mun leika við opnunina. „Pétur Gautur er kunnur lands- mönnum fyrir uppstillingar sínar sem hann málar með olíu á striga. Efniviður sýningarinnar að þessu sinni eru ýmis tilbrigði við hæglát- an einfaldleika uppstillingarinnar,“ segir í tilkynningu sýningarhald- ara. Pétur Gaut- ur hjá Fold Eitt verka Péturs Gauts. Afmælisveislan eftir Harold Pinter í þýðingu Braga Ólafssonar. Leik- stjóri er Guðjón Pedersen. Höf- undur leikmyndar er Gretar Reyn- isson og búningahöfundur er Helga I. Stefánsdóttir. Ólafur Ágúst Stefánsson sér um lýsingu og Kristinn Gauti Einarsson um hljóðmynd. Aðstoðarleikstjóri er Stefán Hallur Stefánsson. Leikarar eru Ingvar E. Sigurðsson, Krist- björg Kjeld, Erlingur Gíslason, Egg- ert Þorleifsson, Björn Thors og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Listrænir stjórnendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.