Morgunblaðið - 22.05.2012, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 2. M A Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 118. tölublað 100. árgangur
GRJÓTHARÐAR
BOLTASTELPUR Á
FIMMTUGSALDRI
SPÁÐ Í
SÖNGFUGLA
EVRÓPU
ARCADI VOLODOS
ÓGLEYMANLEGUR
PÍANÓLEIKARI
SÉRBLAÐ UM EVRÓVISJÓN KRAFTAVERK FRÁ PÉTURSBORG 34FÓTBOLTADROTTNINGAR 10
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ef spár um að 19 milljarðar verði
greiddir í atvinnuleysisbætur í ár
rætast verða samanlagðar bætur frá
hruni komnar í rúmlega 94 milljarða,
ef tölur hvers árs eru lagðar saman.
Þetta má lesa út úr ársskýrslum
Vinnumálastofnunar fyrir árin 2008-
11 en spáin fyrir þetta ár er fengin úr
síðustu fjárlögum. Talsverð verð-
bólga hefur verið á tímabilinu og er
ljóst að heildartalan væri vel á annað
hundrað milljarða ef tölur hvers árs
væru núvirtar á gengi dagsins í dag.
Samkvæmt heimildum blaðsins er
óhætt að miða við að 19 milljarðar
verði greiddir út í bætur í ár.
Tjón samfélagsins er meira
Hannes Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir tjónið meira.
„Samfélagslega tapið er miklu
meira en greiddar atvinnuleysisbæt-
ur. Það þarf að líta á kostnaðinn í
heild; tapaða framleiðslu, tapaðar at-
vinnutekjur fólks sem er án vinnu og
tapaðar skatttekjur ef gengið er út
frá því að það sé á meðallaunum.
Tapið er því ekki eingöngu á út-
gjaldahlið ríkissjóðs. Þannig að tjón-
ið af atvinnuleysinu er miklu, miklu
meira en aðeins bæturnar.
Samtök atvinnulífsins áætluðu í
fyrra að tjónið af því að 11.000 væru
án vinnu væri minnst 46 milljarðar á
ári, líklega mun meira ef allt væri
talið.“
MSkapa átti þúsundir starfa »12
94.000 milljónir
í bætur frá hruni
Atvinnuleysisbætur frá hruni stefna í 100 milljarða króna
Samtök atvinnulífsins telja kostnaðinn „miklu meiri“
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Útivinna Gangstéttin steypt.
„Svo virðist sem stjórnvöld hafi í raun
ekki getu til þess að taka á skulda-
vandanum. Við fundum ekki fyrir
viljaleysi í þeim efnum en við fundum
fyrir því úrræðaleysi sem rík-
isstjórnin stendur frammi fyrir. Því
strandaði þetta þar án þess að við
færum eitthvað lengra með þessar
viðræður,“ segir Margrét Tryggva-
dóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.
Ekkert verður úr því að Hreyfingin
muni formlega styðja við ríkisstjórn-
ina. Viðræður þess efnis hafa staðið
undanfarna daga. Upp úr viðræðum
slitnaði í gær samkvæmt upplýs-
ingum hennar. „Þetta er útrætt mál
af hálfu Hreyfingarinnar. Við gerðum
þeim tilboð um stuðning. Rík-
isstjórnin gekk ekki að þessu tilboði
og því fór sem fór,“ segir Margrét.
Hún segir að skuldamálin hafi veg-
ið langþyngst og fyrir vikið hafi um-
ræður um önnur mál ekki komist á
flug. „Við ræddum önnur mál ekki til
hlítar þar sem umræður um almenna
leiðréttingu lána fengu ekki hljóm-
grunn,“ segir Margrét. „Við munum
eftir sem áður styðja ríkisstjórnina til
góðra verka,“ segir Margrét.
Steingrímur J. Sigfússon segir það
ekki sína upplifun að slitnað hafi upp
úr viðræðum. „Það kom engin nið-
urstaða í okkar mál. Ég upplifði það
ekki að viðræður hefðu slitnað. Þau
verða að tala fyrir sig,“ segir hann.
vidar@mbl.is »2
Morgunblaðið/Golli
Óvissa Ekki náðist samkomulag á milli Hreyfingarinnar og stjórnarinnar.
Viðræðum slitið
Hreyfingin dregur sig úr viðræðum
við stjórnina Skuldamálin í veginum10.837
Fjöldi atvinnulausra í síðasta
mánuði skv. Vinnumálastofnun.
14.000
Störfin sem forsætisráðherra
boðaði í stefnuræðu í fyrrahaust.
10-11.000
Bein og afleidd störf sem eru
boðuð í nýju fjárfestingaáætluninni.
‹ ATVINNA OG LOFORÐ ›
»
„Þetta eru gosefni og önnur jarðefni af
hálendi og úr jöklunum. Þau eiga upptök
sín í Grímsvötnum og Eyjafjallagosi. Það
er að blotna upp í þessu í nótt þannig að
ég býst ekki við því að það verði nein
mengun á morgun (í dag),“ segir Þor-
steinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá
Veðurstofunni.
Mikil svifryksmengun mældist í Reykja-
vík í gær, eða mest 268,4 μg/m í Laug-
ardal um klukkan 21.00 í gærkvöldi.
Mælieiningin μg/m³ segir til um míkró-
grömm af ögnum á hvern rúmmetra. Á
sama tíma fór fram knattspyrnuleikur
Fram og Selfoss á Laugardalsvelli. Á vef-
síðu Reykjavíkurborgar kemur fram að
verði styrkurinn meiri en 150 μg/m3, geti
þeir sem ekki eigi við vandamál í önd-
unarfærum að stríða, fundið fyrir óþæg-
indum. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Svifryksmengun mældist mjög mikil í gærkvöldi