Morgunblaðið - 22.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Gerðu verðsamanburð – varahlutaverslun Heklu. Opið 8–17.
AFSLÁTTUR
AF BODDÝHLUTUM
Í ELDRI BÍLA!
Afsláttur af boddýhlutum
sem nemur tvöföldum aldri
bílsins. Dæmi: 14 ára
gamall bíll = 28% afsláttur.*
Afslátturinn gildir af „orginal“ varahlutum
sem til eru á lager.
Gildir eingöngu fyrir handhafa þjónustukorts.
Gildir til 1. júní.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis leggur til í tillögu til þings-
ályktunar, sem dreift var á Alþingi í
gær, að skipuð verði þriggja manna
rannsóknarnefnd til þess að rann-
saka starfsemi lífeyrissjóða.
Nefnd lífeyrissjóðanna
skorti valdheimildir
Lagt er til að nefndinni verði m.a.
falið að rannsaka hvert var nettótap
af þeim fjárfestingum sjóðanna sem
töpuðust í hruninu, hver voru áhrif
setningar Neyðarlaganna á fjárhags-
lega afkomu sjóðanna, og samskipti
stjórnar og stjórnenda lífeyrissjóð-
anna við fjármálastofnanir og fyr-
irtæki sem sjóðirnir áttu viðskipti við,
gjafir, boðsferðir o.fl. á árunum 1997–
2011. Einnig verði skoðaðar hugs-
anlegar samhliðafjárfestingar stjórn-
enda og starfsmanna, eignarhluti
þeirra og lánafyrirgreiðslur.
Í greinargerð er bent á að nefndin
sem Landssamtök lífeyrissjóðanna
skipuðu og skilaði úttektarskýrslu í
vetur, hafði ekki valdheimildir til að
krefjast þess að gögn, upplýsingar
eða skýringar kæmu fram, líkt og
rannsóknarnefndir Alþingis hafa
samkvæmt lögum um rannsókn-
arnefndir. „Eftirlitsstofnanir með líf-
eyrissjóðunum gátu borið fyrir sig
þagnarskyldu í ríkum mæli, ekki var
hægt að kveðja fólk til skýrslutöku
vildi það ekki gefa skýrslu né heldur
gat nefndin gert rannsóknir á starfs-
stað.“ omfr@mbl.is
Ráðist verði í rann-
sókn á lífeyrissjóðum
Þingið skipi sérstaka rannsóknarnefnd
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er ekki búið að semja um starfs-
lok þingsins. Eins og staðan er núna
tel ég ólíklegt að okkur takist að halda
starfsáætlun. Við þingflokksformenn-
irnir funduðum þrisvar í dag til að
reyna að finna flöt á því hvernig megi
ljúka umræðunni um þjóðaratkvæða-
greiðslu um stjórnarskrána. Síðasti
fundurinn gaf ekki tilefni til mikillar
bjartsýni um framhaldið,“ sagði Björn
Valur Gíslason, formaður þingflokks
VG, um stöðuna á ellefta tímanum í
gærkvöldi.
„Við erum búin að gera stjórnar-
andstöðunni ítrekuð tilboð í þessu
máli, þ.e. hvað varðar undirbúning
þjóðaratkvæðagreiðslunnar, um að
endurskoða ákveðna hluta tillögunn-
ar, þ.e.a.s. spurningarnar sem verða
bornar upp um stjórnarskrána. Við
erum búnir að bjóða að eftir að at-
kvæðagreiðslan fer fram muni sér-
stök stjórnarskrárnefnd taka við mál-
inu og fara með það inn í næsta þing,
skipuð þingmönnum allra flokka. Við
buðum að gera hlé á umræðum til að
koma öðrum málum inn í þingið til
morguns þannig að það gæfist tími til
að semja um stjórnarskrármálið frek-
ar. Það var enginn vilji til þess af hálfu
stjórnarandstöðunnar, því miður,“
segir Björn Valur og heldur áfram.
Bíði eftir kvótafrumvörpunum
„Því hefur öllu verið hafnað af
stjórnarandstöðunni og er því yfirleitt
borið við að þá þurfi að semja um öll
mál í einu. Ég held að það sé und-
irliggjandi að stjórnarandstaðan sé að
bíða eftir frumvörpunum um stjórn
fiskveiða, þ.e. að hún sé að stöðva
þingstörfin með þessu máli til að
tryggja sér samningsstöðu um stjórn
fiskveiða,“ segir Björn Valur sem tel-
ur að kvótafrumvörpin komi í fyrsta
lagi úr nefnd á morgun.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, vísar þessu á bug.
„Í fyrsta lagi eru fiskveiðistjórnun-
armálin ekki komin úr nefnd. Þannig
að við getum ekki verið sökuð um að
tefja þau. Við höfum kallað eftir for-
gangsröðun ríkisstjórnarinnar. Það
er mikill ágreiningur um stjórnar-
skrármálið og við sjálfstæðismenn er-
um að nota þau lýðræðislegu tæki
sem við höfum til að koma okkar sjón-
armiðum og athugasemdum á fram-
færi. Þvert á það sem Björn Valur
fullyrðir er það stjórnarandstaðan
sem hefur boðist til að leggja það mál
til hliðar og taka þau mál fyrir sem við
vitum að þarf að ljúka, þar til að stóru
málin koma úr nefnd. Þá á ég við fisk-
veiðistjórnarfrumvörpin og ramma-
áætlun. Því hefur meirihlutinn hafn-
að. Eins og alltaf er undir þinglok yrði
þá allt undir þegar við semjum um
hvernig eigi að nota tímann sem eftir
er.“
Þing fram yfir kosningar?
– Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
varaformaður þingflokks Samfylk-
ingar, telur að ef umræður um stjórn-
arskrármálið haldi áfram sé ekki útlit
fyrir að það takist að ljúka þingstörf-
um fyrir 31. maí. Því kunni þingið að
starfa fram í júní. Í framhaldinu þurfi
hugsanlega að fresta þingi vegna for-
setakosninga, enda sé ótilhlýðilegt að
þingið sé ofan í þær. Hvernig bregstu
við þessu?
„Ég hef fulla trú á forseta þingsins í
þessu máli. Hún hefur sagt að hún
ætli sér að standa við starfsáætlun
þingsins. Gleymum því ekki að hún er
samþykkt af þingmönnum allra
flokka. Mér finnst algjörlega fráleitt
að framlengja þingið fram að forseta-
kosningum, enda yrði það vanvirðing
við þær,“ segir Ragnheiður Elín.
Útlit fyrir að þingið
dragist fram í júní
Stjórnarandstaðan sökuð um að neita að semja um þinglok
Morgunblaðið/Golli
Í þingsalnum Ögmundur Jónasson og Birgir Ármannsson ræða málin.
Að falla á tíma
» Samkvæmt starfsáætlun
þingsins átti þingið að ljúka
þingstörfum 31. maí nk.
» Þingið á að vera í fríi á öðr-
um í hvítasunnu, á mánudag-
inn kemur og á þriðjudag fer
fram eldhúsdagur skv. dag-
skrá.
Það er ekki á hverjum degi sem tveir „Þristar“ eru á Reykja-
víkurflugvelli í einu; flugvélar af gerðinni DC-3. Þannig var
það í gær þegar Páll Sveinsson, gamla Landgræðsluvélin í
eigu Þristavinafélagsins, var kominn suður eftir geymslu í
vetur í Flugsafni Íslands á Akureyri. Fyrir á vellinum var
bandarískur Þristur, sömu upprunalegrar gerðar frá Dou-
glas-verksmiðjunum, en nefnist núna Basler Turbo-67 eftir að
hafa fengið samskonar hreyfla og eru t.d. í Fokker-vélum.
Hefur skrokkurinn verið lengdur fyrir framan vængina og
eru þessar vélar m.a. eftirsóttar til flugs á norðurslóðum.
Kom vélin hingað sl. föstudag og er á vesturleið yfir Norður-
Atlantshafið.
Flugstjórarnir Arngrímur Jóhannsson og Björn Thorodd-
sen flugu Páli suður um helgina en vélin verður í aðal-
hlutverki í flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli næstkomandi
laugardag í tilefni 75 ára afmælis Icelandair og forvera þess
félags. Björn segir vélina í toppstandi en flugferðin suður tók
rétt rúman klukkutíma.
Á næsta ári verða 70 ár frá því að vélin var smíðuð en fljót-
lega eftir afhendingu árið 1943 var hún tekin í notkun hjá
bandaríska flughernum hér á landi. Flugfélag Íslands keypti
vélina af hernum 1946 og ári síðar var henni breytt til far-
þegaflugs, sem hún sinnti lengst af undir nafninu Gljáfaxi.
Landgræðslan fékk vélina að gjöf til áburðarflugs árið 1972
og fékk hún þá nafnið Páll Sveinsson, til heiðurs fyrrv. land-
græðslustjóra. Þristavinafélagið sér um rekstur vélarinnar í
dag en með aðstoð Icelandair eru uppi áform um að taka
áburðartankinn úr vélinni og breyta henni í farþegavél með
allt að 15 sætum. Að sögn Björns gæti þetta orðið að veruleika
í sumar og þá hægt að fara í útsýnisflug með Páli Sveinssyni.
Tveir „Þristar“ á Reykjavíkurflugvelli og annar breyttur
Morgunblaðið/Árni Sæberg