Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Fyrir skömmu var
Amerískt-íslenskt við-
skiptaráð – AMIS
endurstofnað en nokk-
ur ár eru liðin frá því
að fyrra félagið, sem
stofnað var 1988, lagð-
ist af í kjölfar efna-
hagshrunsins og
minnkandi samskipta
Íslands og Bandaríkj-
anna. Eldra félagið
var eitt fyrsta og mik-
ilvægasta viðskiptaráðið sem stofn-
að hefur verið á Íslandi en nú eru
mörg slík starfandi,
flest undir regnhlíf
Viðskiptaráðs Íslands.
Hin minnkandi sam-
skipti orsökuðust m.a.
vegna brotthvarfs
varnarliðsins, ýmissa
uppákoma í sam-
skiptum þjóðanna og
vegna aukinnar
áherslu á tengsl við
Evrópu, jafnvel á
kostnað hinna gam-
algrónu tengsla sem
við höfum átt við
Bandaríkin um ára-
tugaskeið. Mörgum er ljóst að
þessari þróun verður að snúa við
og endurnýja lifandi samskipti og
tengsl við eina öflugustu vinaþjóð
Íslands.
AMIS er stofnað með það að
markmiði að efla á ný sambandið
milli þjóðanna tveggja og vera
Bandaríkin eru
mikilvægur samherji
Eftir Birki Hólm
Guðnason » AMIS er ætlað að
efla sambandið milli
þjóðanna og vera sam-
starfsvettvangur fyrir-
tækja, samtaka og ein-
staklinga sem eiga sam-
skipti við Bandaríkin.
Birkir Hólm
Guðnason.
Aldrei kaus ég karl-
inn sem pólitíkus. En
ég kaus hann sem for-
seta og sé ekki enn eft-
ir því. Vegna þess að
hann hefur staðið með
þjóð sinni og hags-
munum hennar gegn-
um þykkt og þunnt
undanfarin misseri.
Verið eins og klettur í
hafinu, jafnvel á er-
lendri grund frammi fyrir skæðustu
hákörlum heimspressunnar. Og
hagsmunagæsla hans, þjóð sinni til
handa á hinum mestu ögurstundum
hennar í seinni tíð, verður honum
ævinlega til sóma. Þessi breytni
Ólafs forseta hefur hins vegar orðið
andstæðingum hans, sem að uppi-
stöðu til eru fylgismenn ríkisstjórn-
arinnar, Icesave-samninganna og
ESB-aðlögunnarinnar, tilefni til að
væna hann um að breyta eðli emb-
ættisins og víkja því frá hlutverki
sameiningar. Gera það pólitískt.
Honum er eignað það andrúmsloft
sem nú ríkir í samskiptum forseta-
embættisins og ríkisvaldsins. Þarna
er í fararbroddi stór og fríður flokk-
ur fjölmiðlafólks, sem
gefur okkur um þessar
mundir hina efnileg-
ustu sýnikennslu í því
hvernig nota má það
feikilega vald sem fjöl-
miðlar hafa í raun.
þ.e.a.s. misnota!
Grunntónninn er s.s.
sá að embættið sé ekki
lengur sameining-
artákn þjóðarinnar,
þökk sé afskiptum
Ólafs af þjóðmálunum.
Hér má benda á í
þessu sambandi að samkvæmt
stjórnarskrá þeirri sem enn er í
gildi er það beinlínis skylda forset-
ans að beina ákvörðunarvaldi, um
stór hagsmunamál hennar sem
ágreiningur kann að vera um, til
þjóðarinnar sjálfrar. Og Ólafur hef-
ur unnið vel vinnuna sína, í sam-
ræmi við þessa verklýsingu. Eðli
málsins samkvæmt eru þessi tvö
hlutverk, annars vegar sameining-
artáknið sem vissulega er æskilegt
út af fyrir sig og hins vegar sú hags-
munagæsla þjóðarinnar og lýðræð-
isins sem stjórnarskráin kveður á
um, illa samræmanleg ef reynir á
það síðarnefnda. Og jafn lítilmann-
legt og það er reyna nú þau öfl sem
orðið hafa undir með málstað sinn
fyrir skikkan forsetans okkar að
klína því á Ólaf að honum sé um að
kenna að ekki sé eining meðal þjóð-
arinnar.
En hvernig getur forsetinn verið
sakaður um að hverfa frá hlutverki
sameiningartáknsins, þegar hann
var þó aðeins að vinna vinnuna sína
skv. stjórnarskránni? Og það að
beiðni tugþúsunda kjósenda? Full
ástæða er til að vísa sök á þessari
óeiningu heim til föðurhúsanna. Til
Alþingis og ríkisstjórnarinnar og
allra þeirra sem reyndu með öllum
ráðum að sökkva íslenskum almenn-
ingi að ósekju í skaðræðis skuldafen,
í þeim tilgangi að liðka fyrir ESB-
aðlögunarferlinu, sem aldrei hefur
þó verið samþykkt af þjóðinni sjálfri
enda ekki eftir því leitað.
Þarna var það ekki stjórnarand-
staðan sem dugði til varnar. Það
gerði aðeins Ólafur forseti. Fyrir
hans tilstilli gat þjóðin hrundið þess-
ari ógeðfelldu aðför að henni. Það er
rétt sem Ólafur segir að komandi
kosningar verða prófsteinn á gæði
fjölmiðlanna. En þeir eru nú þegar
margir farnir að falla á því prófi,
m.a. með því að snúa öllu á haus og
klína öllum þessum ófarnaði á reikn-
ing Ólafs. Því miður er sjálf þjóð-
areignin, nefskattsmiðillinn þar á
meðal. Ekki einasta keppist þessi
fríði flokkur við að rakka niður sitj-
andi forseta og núa honum um nasir
hinum fjölskrúðugasta breyskleika,
heldur er um leið rækilega mulið
undir einn mótframbjóðanda hans,
sem raunar kemur einmitt úr þess-
um sama fjölmiðlaflokki. Þessum
frambjóðanda er jafnvel hjálpað til
að hylma yfir pólitíska fortíð sína.
Svo neyðarlega vill hins vegar til að
nokkuð augljósar staðreyndir tala
allt öðru máli en þessi frambjóðandi
og fríði flokkurinn hans, um tengsl
hans við annan stjórnarflokkanna.
Með afneitun sinni er þessi fram-
bjóðandi, ásamt fylgismönnum, nán-
ast að segja hreint út að stunduð sé
alvarleg sögufölsun á vefmiðlinum
„timarit.is“, þar sem finna má ýmsar
upplýsingar, ekki hagfelldar þeim.
Ég spyr, hvaða erindi eiga þeir á
Bessastaði sem reyna að ljúga sig
frá fortíð sinni? Þess utan er full-
ljóst, með fullri virðingu fyrir mörgu
því annars ágæta og frambærilega
fólki sem í hlut á, að mótframboð
gegn sitjandi forseta á þessum tíma-
punkti er annað og meira en fallegar
fjölskyldumyndir. Hér eru klárlega
pólitísk öfl og pólitísk sjónarmið á
ferðinni. Ég trúi því vel að Ólafi
gangi gott eitt til þegar hann kýs að
bjóða sig fram á nýjan leik enda rétt
sem hann segir um að það séu við-
sjár framundan í íslenskum stjórn-
málum og almenningur getur enn
þurft að reiða sig á embættið þess
vegna. Og reynslunni er fyrir að
þakka að við vitum hvað við höfum.
Ég mun því styðja Ólaf Ragnar
Grímsson svo lengi sem hann vill
gefa kost á sér til embættis forseta
Íslands. Hafi hann bestu þakkir fyr-
ir störf sín til þessa.
Um forseta vorn
Eftir Þorkel Á.
Jóhannsson »Mótframboð gegn
sitjandi forseta á
þessum tímapunkti er
annað og meira en fal-
legar fjölskyldumyndir.
Hér eru pólitísk öfl og
sjónarmið á ferðinni.
Þorkell Á. Jóhannsson
Höfundur er flugmaður.
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
veislusalir
Tökum á móti litlum og stórum
hópum í rómaðar veislur
Suðræn stemning
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Minniskort
Minnislyklar
Kortalesarar
Aukahlutir
fyrir farsíma,
snjallsíma,
iPhone
og iPad
Töskur og
símahulstur
í miklu úrvali
Rafhlöður
fyrir alla
farsíma
Minnislykill
4GB
1.990 kr.
Gott úrval
af einföldum
og ódýrum
GSM símum
Skype
heyrnartól
1.290 kr.
12V
bílafjöltengi
með USB
útgangi
2.990 kr.
Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900
Öll GSM
bílhleðslutæki
á 990 kr.