Morgunblaðið - 22.05.2012, Qupperneq 31
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
2009 og vann bronsið í þrístökki.
Jóhanna hefur átt við meiðsl að
stríða frá 2010 en er nú öll að koma
til og stefnir ótrauð á Ólympíu-
leikana á þessu ári.
Borðar allan hollan mat
Jóhanna hefur áhuga á nánast öll-
um greinum íþrótta: „Mér finnst
magnað að horfa á afburðafólk í
íþróttum. Ég hef gaman af að fylgj-
ast með allri þessari guðdómlegu lík-
amlegu hreyfingu, ekki síst þeirra
sem náð hafa langt á sínu sviði með
þrotlausum æfingum.
Ég hef ferðast töluvert á mót í út-
löndum en þá gefst ekki mikill tími
til að kynnast landi og þjóð. Þessar
ferðir hafa þó gefið manni nasasjón
af framandi menningu. Það var t.d.
mjög spennandi að fara sem áhorf-
andi á Ólympíuleikana í Kína 2008.
Þess vegna ætla ég einhvern tíma að
ferðast til að kynnast framandi lönd-
um og þjóðum.“
En Jóhanna hefur einnig áhuga á
matargerð: „Já, ég hef gaman af að
matreiða og gaman af að baka og er
líklega töluverður sælkeri. En þessi
áhugi snýst líka um að prófa eitt-
hvað nýtt og velta fyrir sér næring-
argildi, hollustu og líkamlegri vellíð-
an. Ég hef t.d. prófað að vera á
grænmetisfæði og taka út mjólk-
urvörur en ég er nú samt ekki hrifin
af boðum og bönnum í mataræði.
Þess vegna borða ég alla hefðbund-
inn og hollan mat þó ég sé ekki mikil
mjólkurmanneskja.“
Fjölskylda
Kærasti Jóhönnu er Marteinn
Dýri Sigurðsson, f. 2.12. 1981, lög-
reglumaður. Hann er sonur Sig-
urðar Eggerts Ingasonar mat-
reiðslumanns en kona hans er
Bjarnheiður Þóra Þórðardóttir, og
Elísabetar Láru Þorvaldsdóttur,
starfsmanns Arion banka, en maður
hennar er Guðmundur Einarsson.
Systkini Jóhönnu eru Bergrós
Ingadóttir, f. 4.7. 1979, matvæla-
fræðingur hjá Actavis, búsett í
Reykjavík en maður hennar er Dav-
íð Harðarson viðskiptafræðingur og
eiga þau tvær dætur; Þórður Inga-
son, f. 30.3. 1988, knattspyrnumaður
með BÍ/Bolungarvík.
Foreldrar Jóhönnu eru Ingi Þórð-
arson, f. 18.5. 1954, sölustjóri hjá
Hampiðjunni, og Ingveldur Björk
Jóhannesdóttir, f. 12.1. 1954, sjúkra-
þjálfari í Reykjavík.
Úr frændgarði Jóhönnu Ingadóttur
Sigurður Kristjánsson
vélstj. í Hafnarf.
Valgerður Jóna Ívarsdóttir
húsfr. í Hafnarf.
Jóhannes Jóhannesson
harmóníkuleikari
Thelma Ólafsdóttir
húsfr.
Ingibjörg G. Jónsdóttir
frá Geldingalæk
Guðni Jóhannsson
í Sjólyst á Stokkseyri
Petrúnella Þórðardóttir
húsfr. á Stokkseyri
Jóhanna
Ingadóttir
Ingi Þórðarson
sölufullftr. hjá Hampiðjunni
Ingveldur Björk Jóhannesd.
sjúkraþjálfari í Rvík.
Jóhannes Garðar Jóhannesson
harmóníkuleikari
Ingveldur Sigurðardóttir
saumakona
Jóhanna Guðnadóttir
húsfr. á Stokkseyri
Þórður Böðvarsson
loftskeytam. á Stokkseyri
Böðvar Tómasson
b. og útgerðarm. á Stokkseyri
Guðrún Sigurðard.
húsfr.
Sigurður Valur
Ásbjarnarson
sveitastj. í
Fjallabyggð
Gunnlaugur Ólafs-
son, bílstj. í Rvík.
Jón Steinar Gunnlaugss.
hæstaréttard
Ívar Páll Jónsson
fyrrv. viðskiptaritstj.
Morgunblaðsins
Gunnlaugur Jónsson
verkfr. og
framkvæmdastj.
Íþróttakonan Jóhanna í langstökki.
Eins árs Jóhanna fyrir 29 árum.
95 ára
Kristín Þorleifsdóttir
85 ára
Helgi Kolbeinsson
Ísleifur Jónsson
Svava Friðjónsdóttir
80 ára
Eyþór Guðmundsson
Haukur Bergmann
Kjartan Björnsson
Kristján Halldórsson
Sigrún Víglundsdóttir
75 ára
Ágúst Stefánsson
Guðrún Ágústsdóttir
Gunnþórunn Gunnlaugsd.
Helgi Sigurðsson
Sigurbjörg R. Stefánsdóttir
Þóra Magnúsdóttir
70 ára
Ásta María Gunnarsdóttir
Guðjón Jónsson
Hrafn Antonsson
Ingibjörg St. Einarsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Margrét Bragadóttir
Oddfríður J. Guðjónsdóttir
Svavar Geir Tjörvason
Victor J. Jacobsen
60 ára
Alma Möller
Anna Fríða Kristinsdóttir
Ágúst S. Guðmundsson
Baldvin Már Frederiksen
Guðbjartur Lárusson
Guðlaug Guðmundsdóttir
Guðmundur G. Gunnarsson
Gunnar Reynir Pálsson
Helga Gunnarsdóttir
Helgi Vilberg Jóhannsson
Ingibjörg Á. Guðnadóttir
Jón Magnússon
Pétur Stephensen
Símon Johnny Símonarson
Þór Ingólfsson
50 ára
Arnór Hreiðar Ragnarsson
Einar Sebastian Ólafsson
Guðmundur B. Ingólfsson
Guðný Sif Jónsdóttir
Helgi Jóhannesson
Hermann Hermannsson
Hrafnkell Hannesson
Hrund Hauksdóttir
Jóhann Gunnar Sævarsson
Jón Þorgeir Einarsson
Sonja Elín Thompson
Sólrún Laufey Karlsdóttir
Steinunn Hr. Ingimars-
dóttir
Steinunn K. Guðmundsd.
Vignir Kristmundsson
Þórdís Jónsdóttir
40 ára
Alda Þöll Viktorsdóttir
Arnfríður Wium
Axel Axelsson
Ágúst Páll Tómasson
Guðrún Anna Guðnadóttir
Gunnar Friðrik Björnsson
Jolanta Slapikiene
Kristinn Halldórsson
Óskar Eggert Óskarsson
Valerie Chosson
30 ára
Anna María I. Larsen
Bjarki Dagsson
Bjarki Jóhannsson
Gabriela Hobrzyk
Heiðrún Sigurjónsdóttir
Hildur Jóna Friðriksdóttir
Höskuldur Ketilsson
Jóhanna Ingadóttir
Klara Rún Ragnarsdóttir
Lone Nörup Knudsen
Sadik Kalpak
Steingrímur M. Bern-
harðss.
Til hamingju með daginn
40 ára Heiða ólst upp á
Kleifum í Gilsfirði og í
Reykjavík. Hún er hjúkr-
unarfræðingur og starfar
hjá Landspítalanum.
Maður Hörður Harð-
arson, f. 1966, rafvirki.
Börn Baldur Elvar, f.
1992, Alda Björk, f. 1993,
Unnur Mjöll, f. 1995, Hlyn-
ur Breki, f. 2001.
Foreldrar Stefán Jóhann-
esson, f. 1937, bóndi og
Sigrún Gunnarsdóttir, f.
1952.
Heiða Mjöll
Stefánsdóttir
40 ára Rakel lauk MA prófi
í listfræði og safnafræði.
Hún er framkvæmdastjóri
Safnaráðs og eigandi frú
Laugu bændamarkaðar.
Börn
Gréta, f. 1996, Halldór Egill,
f. 2002, Áslaug Birna, f.
2007, María Anna, f. 2010
og stúlka, f. 2012, Arnars-
börn.
Maki Arnar Bjarnason, f.
1972, doktor í tónsmíðum
og rekur frú Laugu ásamt
konu sinni.
Rakel
Halldórsdóttir
30 ára Elvar er fæddur
og uppalinn á Skaga-
strönd. Hann er búsettur í
Kópavogi og starfar sem
CCP-tæknir hjá Össuri.
Maki Gígja Berg Stef-
ánsdóttir, f. 1985, sjúkra-
liði.
Foreldrar Grétar Har-
aldsson, f. 1945, verk-
stjóri hjá ISS og Sigurlaug
Díana Kristjánsdóttir, f.
1958, starfar á Hlíf, dval-
arheimili aldraðra á Akur-
eyri.
Elvar Arinbjörn
Grétarsson
Jónína Jónatansdóttir,kvenfrelsiskona og verkalýðs-leiðtogi, fæddist á Miðengi á
Álftanesi 22. maí 1869. Foreldrar
hennar voru Jónatan Gíslason, sjó-
maður á Miðengi, og Margrét Ólafs-
dóttir.
Jónína gekk í Kvenréttindafélag
Íslands 1910. Innan þeirrar hreyf-
ingar vann hún ötullega að ýmsum
málefnum kvennabaráttunnar, meðal
annars krafðist hún nauðsynlegra úr-
bóta á hag verkakvenna. Hinn 24.
október 1914 var Verkakvenna-
félagið Framsókn stofnað að undir-
lagi hennar og Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur, en þær stöllur voru
nágrannakonur í Þingholtsstrætinu í
Reykjavík. Þetta var í fyrsta skipti
sem konur bundust samtökum til
þess að vinna að bættum kjörum
verkakvenna.
Jónína var formaður félagsins frá
stofnun og næstu tuttugu árin. Hún
var í öðru sæti á framboðslista
Kvennaframboðsins til bæjar-
stjórnar, 1914. Þá var Jónína einn
stofnenda Alþýðusambands Íslands
og Alþýðuflokksins og átti sæti í
stjórn þeirra. Hún varð fyrsta konan
sem tók sæti í bæjarstjórn Reykja-
víkur fyrir Alþýðuflokkinn og sat í
stjórn frá 1920-1922, önnur tveggja
kvenna í bæjarstjórninni, en sú síðar-
nefnda var Inga Lára Lárusdóttir.
Þá átti Jónína sæti í fátækra- og fjár-
söfnunarnefnd Landspítalans og
vann mikið fyrir Slysavarnafélag Ís-
lands. Jónína var góðtemplari og var
virk innan Víkings stúkunnar.
Á fæðingarári hennar kom út í
Bretlandi rit heimspekingsins og
nytjastefnumannsins John Stuart
Mill, Kúgun kvenna, en það rit átti
eftir að vera biblía kvenréttindasinna
í áratugi.
Jónína sagði sjálf: „Hamingjuna
finnur maður að eins með því að
starfa að göfugum hugsjónum, sem
fegra lífið og gefa öðrum hamingju.“
Í minningarorðum er hún sögð
mikill félagsmálafrömuður, bjartsýn
og stjórnsöm, einlæg og trú þeim
hugsjónum sem hún batt trúnað við.
Jónína bjó lengst af á Lækjargötu
12, sem nú er Íslandsbanki, ásamt
eiginmanni sínum Flosa Sigurðssyni
trésmíðameistara.
Jónína lést 1. desember 1946.
Merkir Íslendingar
Jónína Jón-
atansdóttir Full búð
af fallegum
fatnaði á alla
fjölskylduna!
F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M
Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M !
KRINGLUNNISími: 5513200