Morgunblaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012
BAKSVIÐ
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Meirihluti Alþingis felldi í gær til-
lögu Vigdísar Hauksdóttur, þing-
manns Framsóknarflokksins, um að
fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla
um aðildarumsókn Íslands að Evr-
ópusambandinu. Alþingi samþykkti
hins vegar ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu um tillögur stjórn-
lagaráðs, fyrir 20. október.
Vigdís Hauksdóttir lagði til að
þjóðin yrði spurð að því hvort hún
vildi að stjórnvöld drægju umsókn
um aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu til baka. 25 þingmenn
studdu tillöguna en 34 voru á móti.
Fjórir voru fjarverandi.
Allir þingmenn Samfylking-
arinnar og Hreyfingarinnar höfn-
uðu tillögunni. Jón Bjarnason og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
studdu tillögu Vigdísar en aðrir
þingmenn VG voru á móti.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks studdu tillöguna,
nema Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, Sjálfstæðisflokki, og Siv
Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki,
en þær greiddu atkvæði á móti.
Sex spurningar lagðar fyrir
Tillaga Vigdísar Hauksdóttur um
stöðvun aðildarviðræna við ESB
var breytingartillaga við þings-
ályktunartillögu stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis um ráðgef-
andi þjóðaratkvæðagreiðslu um til-
lögur stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá. Hún var felld, eins og
áður segir, eins og aðrar tillögur
stjórnarandstöðunnar sem ekki
voru dregnar til baka. Tillaga
nefndarinnar var að lokum sam-
þykkt með 35 atkvæðum gegn 15,
sömuleiðis að atkvæðagreiðslan fari
fram í síðasta lagi 20. október.
Tillaga stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndarinnar gengur út á að
lagðar verði sex afmarkaðar spurn-
ingar fyrir þjóðina. Þær eru um það
hvort leggja eigi tillögur stjórnlaga-
ráðs til grundvallar frumvarpi að
nýrri stjórnarskrá, en einnig er
spurt um náttúruauðlindir, um
stöðu þjóðkirkjunnar, um persónu-
kjör, jöfnun atkvæðavægis og um
þjóðaratkvæðagreiðslur.
Greidd voru atkvæði um allar
greinar tillögunnar sérstaklega og
voru þær samþykktar.
Gagnrýndu spurningar
Stjórnarandstæðingar gagn-
rýndu margir tillögurnar og sögðu
að spurningarnar væru óljóst orð-
aðar og erfitt gæti orðið að vinna úr
niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar. Nokkrir þingmenn gagn-
rýndu val á spurningum og spurðu
hvers vegna ekki væri til dæmis
spurt um álitmál varðandi stöðu
forseta Íslands.
Stjórnarliðar sögðu mikilvægt að
bera þetta mál undir þjóðina. Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra sagði við upphaf atkvæða-
greiðslunnar að um sögulega stund
væri að ræða.
Valgerður Bjarnadóttir, formað-
ur stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar, þakkaði þinginu fyrir að
ljúka málinu. Það kæmi síðan til
efnislegrar umræðu í haust. Þá færi
vonandi fram umræða án útúrsnún-
inga.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, sagði að at-
kvæðagreiðslan færi fram vegna
þess að stjórnarmeirihlutinn treysti
sér ekki til að taka efnislega af-
stöðu til tillagna stjórnlagaráðs.
Hann sagði athyglisvert að þing-
menn meirihlutans hefðu ekkert
sagt um hvaða afstöðu þeir hefðu til
þeirra spurninga sem bera ætti
undir þjóðina.
Ekki kosið um ESB
Meirihluti Alþingis samþykkti þjóðaratkvæði um tillögur
stjórnlagaráðs en felldi að bera ESB-viðræður undir þjóðina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á þingi Gamlir fjandmenn í ESB-málum gáfu sér tíma til að spjalla á meðan
greidd voru atkvæði um tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsóknina.
Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðildarumsókn Íslands að ESB
Tillaga Vigdísar Hauksdóttur um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarum-
sókn Íslands að Evrópusambandinu var felld á Alþingi í gær.
25 þingmenn studdu tillöguna, en 34 þingmenn sögðu nei. Fjórir voru fjarverandi.
Tillaga Vigdísar var að eftirfarandi spurning yrði borin undir þjóðina: „Vilt þú að
stjórnvöld dragi aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka?“
Þingmenn sem sögðu já (25):
Þingmenn sem sögðu nei (34):
Framsóknarflokkur:
Sjálfstæðisflokkur:
Ásmundur
Einar
Daðason
VG:Utan þingflokka:
VG:
Samfylkingin:
Birkir Jón
Jónsson
Eygló
Harðardóttir
Gunnar
Bragi
Sveinsson
Höskuldur
Þórhallsson
Sigmundur
Davíð
Gunnlaugss.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Vigdís
Hauksdóttir
Árni
Johnsen
Ásbjörn
Óttarsson
Birgir
Ármannsson
Bjarni
Benediktss.
Einar K.
Guðfinnsson
Guðlaugur
Þór
Þórðarson
Illugi
Gunnarsson
Jón
Gunnarsson
Kristján Þór
Júlíusson
Pétur H.
Blöndal
Ragnheiður
E.Árnadóttir
Ragnheiður
Ríkharðsd.
Unnur
Brá
Konráðsd.
Atli
Gíslason
Lilja
Mósesdóttir
Guðfríður
Lilja
Grétarsdóttir
Jón
Bjarnason
Framsóknarflokkur:
Siv
Friðleifsdóttir
Sjálfstæðisflokkur:
Þorgerður
K.Gunnarsd.
Utan þingflokka:
Guðmundur
Steingrímss.
Álfheiður
Ingadóttir
Árni Þór
Sigurðsson
BjörnValur
Gíslason
Katrín
Jakobsdóttir
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Steingrímur
J.Sigfússon
Svandís
Svavarsdóttir
Þráinn
Bertelsson
Þuríður
Backman
Ögmundur
Jónasson
Ásta R.
Jóhannesd.
Baldur
Þórhallsson
Björgvin G.
Sigurðsson
Guðbjartur
Hannesson
Helgi Hjörvar Jónína RósGuðmundsd.
Kristján L.
Möller
Lúðvík
Geirsson
MagnúsM.
Norðdahl
MagnúsOrri
Schram
Mörður
Árnason
Ólína
Þorvarðard.
Róbert
Marshall
Sigmundur
Ernir
Rúnarsson
Sigríður
Ingibjörg
Ingadóttir
Skúli
Helgason
Valgerður
Bjarnadóttir
Össur Skarp-
héðinsson
Hreyfingin:
Birgitta
Jónsdóttir
Margrét
Tryggvadóttir Þór Saari
Atkvæði um umsókn
» Lilja Rafney Magnúsdóttir,
VG, segir atkvæðagreiðslu nú
eins og að stökkva út úr flugvél
og ákveða síðan á miðri leið að
hætta við.
» Sigmundur Ernir Rúnarsson,
Samfylkingu, segir nei við
„þessu hræðslubandalagi“.
» Sigurður Ingi Jóhannsson,
Framsóknarflokki, segir mis-
ráðið að spyrja ekki þjóðina
fyrst hvort hún vilji sækja um
aðild. Nú sé tækifæri til að
leiðrétta það.
» Einar K. Guðfinnsson, Sjálf-
stæðisflokki, segir að aðildar-
viðræður hafi verið knúnar í
gegn 2010 undir hótunum for-
ystumanna ríkisstjórnarinnar.
Hæstiréttur hef-
ur ómerkt til-
tekin ummæli
sem Benedikta
Haukdal, birti á
vefsvæði sínu á
MySpace. Um-
mælin vörðuðu
Eggert Haukdal,
fyrrverandi al-
þingismann á Bergþórshvoli.
Eggert krafðist þess að tiltekin
ummæli sem Benedikta viðhafði á
vefsvæði sínu á vefsamfélaginu MyS-
pace á tímabilinu 21. febrúar til 6.
júlí 2008 yrðu dæmd dauð og ómerk.
Hún krafðist þess aftur á móti að
tiltekin ummæli sem Eggert viðhafði
meðal annars í lesendabréfi sem birt
var í dagblaðinu DV yrðu dæmd
dauð og ómerk.
Áttu ekki sérstakt erindi
á opinberan vettvang
Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði
meðal annars að ummæli þau sem
um ræddi væru ekki hluti af op-
inberri umræðu um samfélagsleg
málefni, heldur ættu þau sér rót í
persónulegum illdeilum milli aðila
og ættu þau ekki sérstakt erindi á
opinberan vettvang.
Í dómi héraðsdóms var hvorum
deiluaðila fyrir sig gert að greiða
hinum 300.000 krónur í miskabætur.
Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu.
Ummæli ómerkt með
dómi Hæstaréttar
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
SÉRVERSLUN
MEÐ GRILL, GARÐHÚSGÖGN OG ÚTILJÓS
Grill sem endast
29.900
Verð frá
www.grillbudin.is
2.990
Pizza panna
Mikið úrval aukahluta
GR
ILL
BÚ
ÐIN
ER
FLU
TT
Á S
MIÐ
JUV
EG
2 sa
ma
hús
og
Bón
us
44.900
39.900
129.900
Mikið úrval vandaðra
útiljósa frá
Mikið úrval vandaðra
útihúsgagna frá