Morgunblaðið - 25.05.2012, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2012
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Martin Berkofsky píanóleikari mun
leika á tónleikum til styrktar
Krabbameinsfélagi Íslands í Hörpu
á morgun kl. 20. Berkofsky hefur
sjálfur barist við krabbamein og
hefur spilað á hundruðum styrkt-
artónleika víða um heim. Hann mun
leika lög eftir Franz Liszt en í
fréttatilkynningu segir að fáir núlif-
andi tónlistarmenn túlki tónlist hans
jafn vel og Berkofsky.
Lætur gott af sér leiða
„Ég veit af eigin reynslu hvaða
áhrif krabbamein hefur og langar til
að leggja mitt af mörkum í barátt-
unni gegn þessum sjúkdómi sem
hrjáir svo marga,“ segir Berkofsky
og bætir við að tónleikarnir séu hluti
af stærri herferð sem miðar að því
að vekja athygli á sjúkdómnum og
hvetja fólk til að láta gott af sér
leiða. Berkofsky segist þakklátur
fyrir að geta notað hæfileika sína á
sviði tónlistar til að láta gott af sér
leiða.
Þess má geta að Berkofsky hefur
spilað með nokkrum af stærri sin-
fóníuhljómsveitum heims. „Ég hef
spilað með Lundúnasinfóníunni og
Berlínarsinfóníunni og einnig er ég
mjög stoltur yfir því að hafa fengið
tækifæri til að spila með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Þetta hefur
verið mjög ánægjuleg og gefandi
reynsla.“
Berkofsky hefur í gegnum tíðina
oft komið til landsins og bjó m.a. hér
á landi í fimm ár. Að hans sögn kom
hann fyrst til landsins eftir að hafa
kynnst fyrri eiginkonu sinni sem var
íslensk en þau skildu. Hann kvænt-
ist aftur síðar og seinni eiginkona
hans var einnig íslensk. Svo lenti
hann í alvarlegu mótorhjólaslysi hér
á landi sem hafði veruleg áhrif á líf
hans og þau slitu sambandi sínu síð-
ar. „Ég lá fyrir í fjóra mánuði eftir
þetta alvarlega slys. Á þeim tíma
hugsaði ég mikið og skyndilega fékk
ég einskonar opinberun. Ég hugsaði
með mér að ég yrði að koma mér út
úr því mynstri sem ég var í. Fram
að þessu hafði ég verið mikið á ferð-
inni, spilað á mörgum tónleikum og
gefið út fullt af tónlist. Í kjölfarið fór
ég að hugsa um hverju ég væri að
skila, ég áttaði mig á að þetta væri
ekki rétt og ég væri ekki að einbeita
mér að réttum hlutum heldur ein-
blína á sjálfan mig. Ég fékk annað
tækifæri og lofaði sjálfum mér að
breytast. Ég ákvað að gefa eins
mikið til góðgerðarmála og mögu-
legt var. Allar tekjur af tónleika-
haldi og útgáfu skyldu fara í góð
málefni en ég skyldi sjálfur afla mér
tekna með píanókennslu og öðru í
þeim dúr. Ég var á rangri leið en
þessi reynsla leiddi mig á réttar
brautir.“
Berkofsky segist hafa reynt að
vera trúr þessari sannfæringu æ
síðan, en hann lenti í slysinu ör-
lagaríka árið 1982.
Barðist fyrir byggingu
tónlistarhúss
Berkofsky var á sínum mjög virk-
ur í baráttunni fyrir byggingu tón-
listarhúss hér á landi. Að sögn
skipuleggjanda tónleikanna á laug-
ardaginn spilaði hann á fjölda
styrktartónleika bæði hérlendis og í
Bandaríkjunum, m.a. í Harvard-
háskóla. „Ég er yfir mig glaður að fá
að koma fram í húsinu núna. Þegar
við vorum að berjast fyrir byggingu
tónlistarhússins á sínum tíma skildu
ekki allir þörfina fyrir slíka bygg-
ingu. Ég sagði að hér á landi væri
gríðarlega blómlegt menningarlíf
sem ætti að heiðra með slíkri bygg-
ingu,“ segir Berkofsky að lokum.
Hugsjónamaður
spilar á heimavelli
Tónleikar til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
Morgunblaðið/Golli
Góðgerðartónleikar Martin Berkofsky kemur fram á tónleikum í Hörpu á
morgun kl. 20, til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir gluggana
á einum stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–JVJ. DV
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 25/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 1/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Mið 6/6 kl. 19:30 Mið 13/6 kl. 19:30 Aukasýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn Lau 1/9 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Lau 26/5 kl. 17:00 Frums. Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
Just Imagine - John Lennon show
Fös 25. maí kl 21.00 Ö
Hafnfirska rokkhljómsveitin Botn-
leðja kemur fram á Þjóðhátíð í Eyj-
um 2012 og eru skipuleggjendur
hátíðarinnar ánægðir með það.
Þegar hefur verið greint frá því
að hljómsveitin komi saman á ný á
Gamla Gauknum í júní eftir margra
ára fjarveru.
Botnleðja á Þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum