Morgunblaðið - 31.05.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Virkjaðu
þjónustu-
kortið og
þér opnast
nýr heimur
tilboða!
Taktu þátt í happdrætti HEKLU
með því að virkja þjónustukortið
þitt á www.hekla.is fyrir 1. júní
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ:
2x ferð út í
heim með
Smurþjónustu
fyrir bílinn
Umfelgun
Laugavegi 170–174 • 590 5000 • hekla@hekla.is • umboðsmenn um land allt
Reynslan er góð!
Þröstur Þórhallsson vann Braga
Þorfinnsson í afar æsilegu úrslita-
einvígi um Íslandsmeistaratitilinn
sem lauk ekki fyrr en á tíunda tím-
anum í gærkvöldi. Afar hressilega
var teflt og hver skák tefld í botn, að
sögn Gunnars Björnssonar, forseta
Skáksambandsins.
Þetta er í fyrsta skipti sem Þröst-
ur verður Íslandsmeistari í skák en
hann tók fyrst þátt árið 1985. Titill-
inn tryggir Þresti keppnisrétt í
landsliði Íslands á Ólympíuskák-
mótinu sem fram fer í Istanbúl í
haust og jafnframt keppnisrétt fyrir
Íslands hönd á EM einstaklinga sem
fram fer í Póllandi í apríl 2013.
Þröstur og Bragi komu jafnir í
mark á Íslandsmótinu sjálfu sem
fram fór í apríl. Þeir þurftu því að
heyja fjögurra skáka einvígi um tit-
ilinn með hefðbundnum umhugs-
unartíma. Því lauk með jafntefli, 2-2,
á mánudag. Teflt var til þrautar í
gærkvöldi og þar tefldu þeir eins
margar skákir og mögulegt var sam-
kvæmt reglum þar um. Jafnt var eft-
ir tvær atskákir og síðan tvær hrað-
skákir. Var þá komið að bráðabana-
skák, sem kallast Armageddon, og
þar hafði Þröstur loks sigur.
Æsilegt úrslitaeinvígi
Morgunblaðið/Ómar
Þrátefli Þröstur Þórhallsson og Bragi Þorfinnsson sátu lengi við í gær.
Þröstur Þórhallsson Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn
Þröstur og Bragi enduðu í bráðabana eftir mörg jafntefli
Forsetaefnin sjö mættu öll til borgarafundar
sem haldinn var í Iðnó í gærkvöldi og stóð
Stjórnarskrárfélagið að honum. Fundurinn bar
yfirskriftina „Forsetinn, forsetaembættið og
nýja stjórnarskráin“ og gafst frambjóðendum til
embættis forseta Íslands kostur á að flytja ávarp
um hlutverk og stöðu forseta verði stjórnar-
skrárfrumvarpið samþykkt. Nokkur fjöldi fólks
mætti í húsnæði Iðnó til þess að fylgjast með um-
ræðum en Guðni Th. Jóhannesson sagnfræð-
ingur sá um fundarstjórn. Mbl.is fylgdist náið
með og er lesendum bent á fréttavef mbl.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forsetaefnin mættust á borgarafundi í Iðnó
Líflegar umræður mynduðust á fyrsta sameiginlega fundi allra forsetaframbjóðenda
Háskólanemum
gafst aftur kost-
ur á því að
tryggja sér iPad-
Moggann og nýju
iPad-spjaldtölv-
una á sérstöku
tilboðsverði eða
á einungis 2.990
kr. á mánuði í 30
mánuði. „Þetta hefur gengið alveg
ótrúlega vel og við erum í skýj-
unum yfir því hvað fólk hefur tekið
þessu tilboði vel,“ segir Magnús Eð-
vald Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri markaðs- og sölumála hjá
Morgunblaðinu. „Um daginn gekk
þetta algjörlega vonum framar og
svo þegar við gátum fengið meira
magn þá finnum við fyrir því að
þessu er aftur gríðarlega vel tek-
ið,“ segir Magnús Eðvald en fyrra
iPad-Mogga-tilboð seldist upp á
einungis einum degi.
iPad-Mogg-
inn vinsæll
meðal nema
Mogga-tilboðið
rýkur út í annað sinn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Óverulegar breytingar verða gerðar á fyrir-
liggjandi frumvarpi um breytingar á lögum um
stjórn fiskveiða, samkvæmt tillögu meirihluta
atvinnuveganefndar sem kynnt var á fundi í
gærkvöldi. Meirihluti nefndarinnar ákvað að
ljúka umræðu um veiðigjaldafrumvarpið og
vísa því til annarrar umræðu í þinginu. Ekki er
vitað hvenær málið verður sett á dagskrá
þingsins en framsögumaður nefndarinnar seg-
ir að það ætti að vera tilbúið til umræðu á
morgun.
Sérfræðingar meti efnahagsleg áhrif
Atvinnuveganefnd fundaði tvívegis í gær um
sjávarútvegsfrumvörpin. Daði Már Kristófers-
son, annar tveggja sérfræðinga sem atvinnu-
veganefnd fékk til meta áhrif upphaflegu frum-
varpanna á efnahagslífið og fyrirtækin, kom á
fund nefndarinnar. Hann taldi erfitt að leggja
mat á tillögur meirihlutans um veiðigjöld nema
vita hvaða breytingar yrðu gerðar á lögunum
um stjórn fiskveiða. Ákvæði þess gætu haft af-
gerandi áhrif á getu útgerðarfélaganna til að
greiða veiðigjald.
Í ljós kom í gærkvöldi, þegar meirihlutinn
kynnti breytingar sínar á því frumvarpi, að
þær eru flestar tæknilegar. Frumvarpið stend-
ur að mestu óbreytt frá fyrri gerð. Björn Valur
Gíslason, framsögumaður málsins í atvinnu-
veganefnd, hefur þó þann fyrirvara að málið sé
enn til umræðu í nefndinni og geti breyst.
Fulltrúar minnihlutans óskuðu eftir að sér-
fræðingarnir yrðu fengnir til að leggja mat á
málið í heild. Búist er við því að þeir komi á
fund nefndarinnar í dag eða kvöld.
Tími til að opna umræðuna
„Það kom í ljós að öll sú vinna sem hefur far-
ið í þetta mál í nefndinni, öll vinna umsagnar-
aðila og þess fólks sem kom til fundar með
nefndinni, var til einskis,“ segir Jón Gunnars-
son, fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Hann segir að
fulltrúar meirihlutans séu með vinnubrögðum
sínum að vanvirða það fólk sem haft hefði fyrir
því að leggja vel rökstudd álit fyrir nefndina.
„Ég tel að kominn sé tími til þess að þingið
ræði þessi mál og þar með opnast þau fyrir
samfélaginu öllu; hagsmunaaðilum og öðrum
þeim sem hafa áhuga á því. Það er óþægilegt að
hafa umræðuna lengi lokaða í þröngum hópi,“
segir Björn Valur.
Ekki er ljóst hvort frumvarpið um stjórn
fiskveiða verður afgreitt út úr nefndinni í dag.
Jón og Björn Valur eiga von á að mikil um-
ræða verði um bæði málin í þinginu.
Litlar breytingar á frumvarpi
Atvinnuveganefnd vísar veiðigjaldafrumvarpi til umræðu á Alþingi Meirihluti nefndarinnar leggur
til sáralitlar breytingar á fiskveiðistjórnarfrumvarpi Vanvirðing við fólk, segir fulltrúi minnihluta
Morgunblaðið/Ómar
Atvinnuveganefnd Hluti fulltrúa stjórnarflokkanna og Hreyfingarinnar á fundi í gærkvöldi.