Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sérfræðingur við Háskólann í Reykjavík segir breytingartillögur Evrópusambandsins um löndunar- bann allra sjávarafurða brjóta gegn EES-samningi. Breytingartillögun- um er ætlað að rýmka heimildir til refsiaðgerða þeirra þjóða sem ekki stunda sjálfbærar veiðar, eins og Ís- lendingar hafa verið ásakaðir um í makríldeilunni. EES-samningurinn skýr Bjarni Már Magnússon, doktors- nemi í hafrétti við Edinborgarhá- skóla og sérfræðingur við Háskól- ann í Reykjavík, segir að breytingartillögur Evrópuþingsins um heimildir til löndunarbanns á öll- um sjávarafurðum þjóða utan Evr- ópusambandsins, brjóti í bága við 2. málsgrein, 5. greinar 9. bókunar við EES-samninginn. Hún segir til um að samningsaðilum sé leyfilegt að ,,hafna löndun á fiski úr fiskistofnum sem báðir aðilar hafa hagsmuni af að nýta og sem alvarlegur ágreiningur er um stjórnun á“. Hvergi er minnst á aðrar sjávarafurðir í því samhengi. Í kjölfar makríldeilunnar setti Evrópusambandið löndunarbann á makríl frá Íslandi innan landa þess. Breytingartillaga Evrópuþingsins lýtur hins vegar að því að leyfilegt verði að banna þjóðum utan Evrópu- sambandsins að landa öllum sjávar- afurðum í löndum sambandsins, óháð því að um sé að ræða aðra fiskistofna en þá sem deilur standa um. ,,Ég á erfitt með að sjá það hvern- ig Evrópusambandið ætlar að hrinda þessu nýja löndunarbanni í framkvæmd. Textinn í bókun 9 í EES-samningnum er skýr og nær eingöngu til þeirra fiskistofna sem deilt er um,“ segir Bjarni Már og vísar í 2. málsgrein 5. greinar 9. bók- unar við EES-samninginn. ,,Þeir gætu í sjálfu sér beitt þessu úrræði en það væri ekki í samræmi við EES-samninginn,“ segir Bjarni. Reglugerðin þarf að samræm- ast öðrum skuldbindingum Makríll gengur inn í færeyska, norska og íslenska fiskveiðilögsögu ásamt því að vera nýttur af þjóðum Evrópusambandsins. ESB vinnur nú að reglugerð til þess að koma í veg fyrir ofveiði á fiskistofnum. Verði þær tillögur samþykktar á Evrópuþingi veitir það sambandinu heimildir til víð- tækra refsiaðgerða. Meðal þeirra er löndunarbann á öllum sjávarafurð- um landa utan sambandsins. Evrópusambandið er hins vegar aðili að EES-samningnum og samn- ingum Alþjóðaviðskiptastofnunar- innar, WTO. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins má breytingartillagan sem liggur fyrir Evrópuþinginu ekki brjóta í bága við þessa tvo samn- inga. Í samningum Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar eru þær þjóðir sem stunda veiðar á sameiginlegum fiskveiðistofnum skuldbundnar til að semja um veiðarnar, en refsiaðgerð- ir geta ekki verið ákvarðaðar ein- hliða af einum samningsaðila, telji hann á sér brotið. Brýtur gegn EES-samningi  Breytingartillaga liggur fyrir Evrópuþingi um löndunarbann allra sjávarafurða  Gætu beitt banni í makríldeilunni  Brýtur gegn EES, segir sérfræðingur Makríll Í Evrópuþinginu er breytingartillaga um löndunarbann sjávarafurða. Textinn í bókun 9 í EES … nær eingöngu til þeirra fiskistofna sem deilt er um. Bjarni Már Magnússon Umhverfisráðu- neytið hefur ákveðið úthlutun á styrkjum úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra fyrir árið 2012. Alls bárust ráðuneytinu 12 umsóknir frá 15 aðilum að upphæð ríflega 50 milljónir króna en til úthlutunar voru 28,4 milljónir. Á heimasíðu umhverfisráðuneyt- isins kemur m.a. fram að umsókn- irnar voru sendar til umsagnar hjá Umhverfisstofnun í samræmi við ákvæði laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Eftirfarandi aðilar fengu styrk í ár: Náttúrustofa Norðausturlands; Náttúrustofa Suðurlands; Háskóli Íslands; Melrakkasetur Íslands; Verkís; Náttúrustofa Austurlands og Náttúrufræðistofnun Íslands sem hlaut styrki til tveggja verk- efna. Hæsti styrkurinn er til verkefn- isins Rjúpnarannsóknir 2012 og nemur hann tæpum 10 milljónum. Styrkir úr Veiðikorta- sjóði veittir  Tæpar 30 milljónir króna til úthlutunar Skúli Hansen skulih@mbl.is Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í fyrradag að veita 139 milljónir króna í aukafjárframlög vegna gossvæða á Suðurlandi í kjölfar eldgosa síðustu ár. Stór hluti þessarar aukafjárveit- ingar, 54 milljónir króna, mun renna til Landgræðslu ríkisins. Jafnframt er gert ráð fyrir að Landgræðslan brúi til viðbótar 20 milljóna króna kostnað af sínum fjárheimildum. „Þetta kemur sér ákaflega vel fyr- ir landið og íbúa öskufokssvæðanna og það verður lögð megináhersla á að hefta öskufokið í byggð eftir því sem það er gerlegt,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, spurður út í viðbótarfjárframlögin. Hefjast strax handa Að sögn Sveins verður lögð áhersla á slíkar aðgerðir í Fljóts- hverfi fyrir austan Kirkjubæjar- klaustur en hann bætir við að verk- efnin tengist einkum eldgosinu í Grímsvötnum frá því í fyrra. „En einnig verður haldið áfram verk- efnum um gróðurstyrkingu undir Austur-Eyjafjöllum og inn með Markarfljóti báðum megin,“ segir Sveinn og bætir við að stofnunin muni hefjast handa strax við þessar framkvæmdir. „Það er náttúrlega heilmikil aska á afréttunum hér í Rangárvallar- sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu eft- ir þessi tvö eldgos en það verkefni er einfaldlega alltof stórt til þess að það hægt sé að takast á við það með nokkrum mannlegum mætti. Það er því gríðarlega brýnt að draga enn frekar úr beit á þessum illa förnu af- réttum,“ segir Sveinn, aðspurður hvort farið verði út í aðgerðir vegna ösku í afréttum. Spurður um hvort lúpínu verði sáð á þessum svæðum segir Sveinn: „Það verður ekki sáð lúpínu í Fljóts- hverfinu. Hún þolir mjög vel svona öskuburð en það er engin lúpína þarna fyrir og þá förum við ekki með hana að nýju þangað.“ Sveinn Runólfsson Öskufok Dráttarvél með sáningsvél í eftirdragi sáir grasfræjum í öskuna á Sólheimasandi í Mýrdalshreppi. Landgræðslan fær 54 milljóna aukaframlag  Lögð verður megináhersla á að hefta öskufok í byggð Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993 LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854 Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00 www.s i ggaog t imo . i s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.