Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Þetta leggst bara rosalega vel í mig,“ sagði Karl Lúðvíksson umþann áfanga að verða fertugur. Hann á 40 ára afmæli í dag.„Ég held að ég hafi tekið út kvíðakastið þegar ég varð þrítug- ur og það leið hjá eins og ekkert væri. Nú hlakka ég bara til.“ Karl var ákveðinn í að fara eitthvað að veiða eftir vinnu í dag og svo út að borða með konunni. Hann sagði að líklega yrði slegið saman veiði- og lautarferð. Á laugardag verður hann svo með afmælisboð og býður „vinum og vandræðamönnum“ eins og hann orðaði það. Tvítugsafmælið er Karli eftirminnilegt en þá hélt hann gott og að mestu tjónlaust partí í foreldrahúsum. „Það brotnaði bara eitt glas og það var ég sem braut það,“ sagði Karl. Þrítugsafmælið var haldið á skemmtistaðnum Astro og nú verður farið á veitingahúsið Einar Ben. – eins og hæfir virðulegum aldri. Stangaveiðin er Karli hugleikin en hann er bæði umsjónarmaður veiðivefjarins á mbl.is og er jafnframt að vinna sjöttu og síðustu sjón- varpsþáttaröðina af „Veitt með vinum“. „Þetta er hægasta opnun á veiðisumri sem ég man eftir,“ sagði Karl og kenndi um bæði kulda og skrítnu veðurfari. Hann kvaðst þó vera mjög bjartsýnn á sumarið og hafa á tilfinningunni að nokkur met gætu fallið í laxveiðinni, ekki síst í þeim ám þar sem eins árs laxinn vantaði í fyrra. Nú komi hann sterkur til baka. gudni@mbl.is Karl Lúðvíksson veiðimaður er 40 ára Ljósmynd/Sigurður Freyr Arnarson Laxveiði Karl Lúðvíksson með fallegan lax sem veiddist við Fossár- klappir í Jöklu í fyrra. Laxinum var sleppt eftir myndatökuna. „Nú hlakka ég bara til“ S ímon fæddist á Kvisthaga í Miðdalahreppi í Dalasýslu og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Laugarvatni 1982, stundaði nám við Íþróttakennara- skóla Íslands á Laugarvatni og lauk þaðan prófum 1984, stundaði nám í lög- fræði við Háskóla Íslands og lauk það- an embættisprófi í lögum 1989, stund- aði framhaldsnám í sakfræði, þ.e. opinberu réttarfari, afbrotafræði, rétt- arsálfræði og fleiri greinum, við Kaup- mannahafnarháskóla og lauk þaðan prófum 1990. Héraðsdómari í Reykjavík Símon var fulltrúi hjá yfirsaka- dómaranum í Reykjavík 1990-92, fulltrúi hjá sýslumanninum í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og hjá bæjarfóg- etanum á Ísafirði og sýslumanni Ísa- fjarðarsýslu í sumarafleysingum 1990 Símon Sigvaldason héraðsdómari 50 ára Við háskólann Símon og Inga Dóra við Columbia University þar sem Inga Dóra gegnir prófessorsstöðu. Héraðsdómarinn sem hleypur maraþon Fjölskyldan Símon og Inga Dóra sem heldur á Alöntu, en tvíburarnir, Erla og Sonja, lengst til hægri. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjavík Samúel Bryngeir fæddist 24. febrúar kl. 13.52. Hann vó 3.030 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Margrét Samúelsdóttir og Bryn- geir Arnar Bryngeirsson. Nýir borgarar Sviss Alexandra Dagmar fæddist 16. mars kl 1.50. Hún vó 3.100 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Aðal- heiður Hannesdóttir og Guðmundur Ragnar Sverrisson. Þau búa í Chemin de la Barme, 1868 Collombey, Sviss. www.lifandimarkadur.is Borgartúni 24 | Reykjavík Hæðasmára 6 | Kópavogi Sími: 585 8700 Kókoslínan frá DR. GOERG er framleidd á einstakan hátt úr fyrsta flokks lífrænum kókos- hnetum í gegnum sérstakt „fair trade“ verkefni. Þessi miklu gæði koma fram í einstökum bragðgæðum og næringargildi. Spennandi hráfæði kókosvörur Hráfæði kókoshveiti - frábært í baksturinn Kókosmjólk úr 3 lífrænum kókoshnetum Nýtt Unaðsleg kókosolía - góð í þeytinginn „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.