Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Ingólfur Ómar Ármannsson yrkirí tilefni af sjómannadeginum á sunnudag: Ágjöf hræðast ei né grand ægis hetjur djarfar; aflaföngin færa á land fræknir landsins arfar. Ólafur Stefánsson yrkir raun- sanna lýsingu á veðrinu í gær og vonandi út vikuna: Gott er vorið grösum prýtt í garðinum stend og moka. Hef ég stráknum Starra snýtt, – í uppsveitum er afar hlýtt, út til stranda ekkert nema þoka. Helgi Björnsson á Snartarstöðum í Lundarreykjadal kynnir sig þann- ig til leiks á fésbók: Afar sjaldan upp ég lít og við fáa tala ber út moð og moka skít mjólka kýr og smala. Hann yrkir eftir mikið annríki við sauðburðinn: Tíma hef ég tæpast enn til að sinna konum. Komast aðeins ætla senn út úr fjárhúsunum. Gunnar Kr. Sigurjónsson hefur aðra sögu að segja úr Kópavogi: Fjárhús hjá mér ekkert er, eða bændavinna. En fullt af konum finnast hér og flestum þarf að sinna. Skúli Pálsson tekur undir það: Að bændum maður getur glott ef girndar brennur logi, enda bara býsna gott að búa í Kópavogi. Loks Þórarinn M. Baldursson: Sauðfé ekkert á ég mér, er þó gjarnan vinnandi svo af stressi oft ég er ekki mönnum sinnandi. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Víkverji Af góðviðri, sauðburði og sjómannadeginum G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d ÞETTA VAR FLOTT INNKOMA ÞAÐ SLÖKKNAÐI Á STJÖRNULJÓSINU MÍNU ÉG TRÚI ÞESSU EKKI PABBI KÆRUSTUNNAR MINNAR LEYFIR HENNI EKKI AÐ GIFTAST MÉR HANN ER EKKI ÁNÆGÐUR MEÐ MIG HANN TEKUR EKKI Í MÁL AÐ HÚN GIFTIST HUNDI SEM KLÁRAÐI EKKI HLÝÐNISKÓLA ÉG HELD AÐ SONUR YKKAR SÉ EKKI JAFN HRIFINN AF MÉR OG ÉG ER AF HONUM... ÞAÐ ER EKKI GOTT ELSKAN MÍN... HVAÐ HEFURÐU GERT TIL ÞESS AÐ VEKJA ÁHUGA HANS Á ÞÉR? BARA ÞETTA VENJU- LEGA... KÝLA, SPARKA OG TOGA Í HÁRIÐ Á HONUM EN EKKERT VIRÐIST VIRKA HVAÐ SEGIRÐU UM AÐ VIÐ SYNGJUM NOKKUR JÓLALÖG? FYRST KÍNVERJAR FRAMLEIÐA LEIKFÖNGIN OKKAR, GETUR VERIÐ AÐ ÞEIR SEMJI LÍKA JÓLALÖGIN OKKAR? LÁTTU EKKI SVONA RUNÓLFUR, ÞAÐ ER FÁRÁNLEG HUGMYND ERTU AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞAÐ SÉ BARA TILVILJUN AÐ RÚDÓLF ER MEÐ RAUTT NEF? Í Hollywood skiptir almennings-álitið öllu, enda markmið eitt, tvö og þrjú í draumaverksmiðjunni að framleiða kvikmyndir, sem falla í kramið. Áhorfendur gera sér hins vegar ekki alltaf grein fyrir því hversu langt er gengið í að þóknast þeim, til dæmis með því að breyta endalokunum. Myndin Pretty Wom- an er sennilega frægasta dæmið. Upphaflega átti auðkýfingurinn, sem Richard Gere lék, að henda vændiskonunni í meðförum Juliu Roberts út úr bíl sínum eftir að hafa sýnt henni hástéttarlífið og hún að snúa aftur til fyrri starfa. Disney keypti hins vegar kvik- myndaréttinn að sögunni og úr dramtískri mynd um vændi og stéttamun í Los Angeles fyrir þremur áratugum varð rómantísk gamanmynd þar sem auðkýfingur- inn snýr aftur á endanum, orðinn betri maður af kynnunum við vænd- iskonuna, klifrar upp brunastiga með blómvönd og þau fallast í faðma. x x x Í myndinni Fatal Attraction áttiGlenn Close upphaflega að fremja sjálfsmorð og láta líta út fyr- ir að Michael Douglas, sem hún hafði átt í ástarsambandi við og hafði tekið að ofsækja þegar hann hafnaði henni, hefði myrt hana. Í lokin er hann leiddur burt í járnum og kona hans horfir á í uppnámi. Viðbrögð við þessum endi urðu til þess að skipt var um. Close ræðst á Douglas með hníf á lofti, en eigin- kona hans kemur til bjargar og skýtur hana til bana. x x x Sylvester Stallone sló í gegn íRambo þar sem uppgjafaher- maður grípur til sinna ráða er hann sætir illri meðferð lögreglu í sveitabæ. Upphaflega átti Rambo að grátbiðja fyrrverandi yfirmann sinn um að svipta sig lífi og grípa um hönd hans þegar hann hikar og þrýsta á gikkinn. Myndin var sýnd til reynslu og áhorfendur voru ösku- reiðir yfir dapurlegum endi. Því var nýr endir tekinn upp. Þar er Rambo leiddur burt í járnum, áhorfendur ánægðir og gatan greidd fyrir fram- haldi. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Daníel tók til máls og sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.) 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þeir sem standa þér jafnfætis þegar kemur að persónutöfrum, gáfum og kímni- gáfu gefa þér orku, kunna að meta verkin þín og hvetja þig áfram. 20. apríl - 20. maí  Naut Stemningin í vinnunni einkennist af hressleika og vinarþeli. Samstarfsfélagar virða það sem þú segir vegna þess að það er skynsamlegt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert afslappaðri en vanalega í vinnunni og því er hætta á að þú eyðir tíma til einskis. Gerðu það sem til þarf til að koma þér í samt lag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Farðu að æfa. Hlutirnir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir og því skaltu kanna allar hliðar vandlega áður en þú tekur stökk- ið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Varastu að láta draga þig inn í annarra deilur um málefni sem koma viðkomandi ein- um við. Gleymdu því ekki að börn geta kennt okkur ýmislegt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er ákveðinn léttir þegar búið er að taka ákvörðun um hvert halda skal. Það birtir alltaf til um síðir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er svo margt sem þig langar til þess að koma í verk að þér finnst erfitt að byrja. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldn- um í fjölskyldunni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt enginn sjái framtíðina fyrir er hægt að búa sig undir hana með marg- víslegum hætti í smáu sem stóru. Þú ættir að íhuga að kaupa nýjan bíl. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Skipulagning er allt sem þarf til að þú getir klárað þau verkefni sem bíða þín. Það er miður ef óhófleg eyðsla þín kemur niður á ástarsambandinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú tekur hugsanlega upp á ein- hverju í dag sem vekur athygli yfirboðara á þér. Það getur enginn þjónað tveimur herr- um. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er um að gera að taka öllum aðfinnslum vel, sumir hafa ýmislegt til síns máls, aðrir ekki. Vertu opinn fyrir nýjum hlut- um. 19. feb. - 20. mars Fiskar Fólk leggur meira á sig fyrir við- urkenningu en efnislega umbun. Mundu að skoða hugmyndir með opnum huga. Stjörnuspá Lagerrými PI PA PI PA PI PAPA PI P R \ TB W A TB W AA  A SÍ A SÍ A SÍ A  11 18 9 11 18 966 Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík Sími 511 1100 | www.rymi.is Lagerbakkar Brettakerfi Smávörukerfi Árekstrarvarnir Milligólf - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.