Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 FRÉTTASKÝRING Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Bankaútibúum og afgreiðslum í landinu mun á morgun hafa fækkað úr 174 í 107 frá árinu 2005 eða um 39%, en þá verður lokað útibúum Landsbankans á Flateyri, Súðavík, Bíldudal, Króksfjarðarnesi, Grund- arfirði, Eskifirði og á Fáskrúðsfirði. Í flestum tilvikum er um að ræða útibú sem áður voru í sparisjóða- kerfinu og færðust undir Lands- bankann með samrunanum við SpKef í fyrra. Einna mest hefur fækkunin orðið í Reykjavík, eða um 57%, úr 44 í 19 útibú eða afgreiðslur. Útibúum Ar- ion banka og forvera hans hefur fækkað úr tíu í fimm. Útibúum Ís- landsbanka og forvera hans hefur fækkað úr ellefu í sjö. Landsbankinn hefur fækkað útibúum í Reykjavík úr níu í sjö og sparisjóðirnir eru horfnir úr borginni, en þeir störfuðu á fjórtán stöðum 2005. Mikil fækkun í sumum hverfum Á sumum svæðum í Reykjavík hefur orðið mikil fækkun. Þannig eru engin útibú lengur í Grafarvog- inum, en þau voru tvö árið 2005. Í Árbænum hefur útibúum fækkað úr átta í fjögur. Í Mjóddinni voru fjögur útibú árið 2005 en nú eru þau ein- ungis tvö. Í póstnúmeri 108, þar sem m.a. Skeifan, Suðurlandsvegur og Múlar eru, hefur útibúum fækkað úr átta í eitt á þessum sjö árum. Í póst- númeri 105 hefur fækkað úr fimm útibúum í eitt. Í póstnúmeri 104 er fækkun úr fjórum í eitt útibú og í miðborginni er fækkun úr sjö útibú- um í fimm. Sviptingar í sparisjóðakerfinu Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis var sameinaður Arion banka árið 2009 og Byr sparisjóður rann inn í Íslandsbanka árið 2011. Þá rann SpKef inn í Landsbankann árið 2011, þó það hafi ekki haft áhrif á starfsemina í Reykjavík. Þessir þrír sparisjóðir ráku bankastarfssemi í 31 útibúi eða afgreiðslum víðsvegar um landið, en nú hefur stórum hluta þeirra verið lokað í hagræðing- arskyni. Útibúum í Kraganum hefur fækkað um 48%. Þau voru 23 árið 2005 en eru nú einungis tólf. Mestu munar þar um sjö afgreiðslur spari- sjóðanna, en enginn sparisjóður er lengur starfandi á svæðinu. Lands- bankinn hefur fækkað sínum útibú- um úr fjórum í tvö. Arion banki er með fjögur útibú í dag en forveri bankans var með sex útibú árið 2005. Útibú Íslandsbanka, áður Glitnis, eru ennþá sex á svæðinu, þó einhverjar breytingar hafi átt sér stað innbyrðis vegna sameiningar við Byr. Í einstaka bæjarfélögum um- hverfis Reykjavík hefur orðið mikil fækkun. Í Hafnarfirði voru átta bankaafgreiðslur árið 2005, en í dag eru þær einungis fjórar. Í Kópavogi voru tíu bankaafgreiðslur fyrir sjö árum, en í dag eru þær einungis þrjár, sem er fækkun um 70%. Í Garðabæ voru þrjú útibú, en eru í dag tvö. Athygli vekur að á Álftanesi er engin bankaafgreiðsla. Helmingsfækkun á Vesturlandi Á Vesturlandi hefur útibúum fækkað um 50% eða úr 14 í sjö. Þar munar mestu um sparisjóðina á Akranesi, Borgarnesi og í Ólafsvík sem ekki eru lengur starfandi, en auk þess mun útibúum Landsbank- ans hafa á morgun fækkað úr fimm í tvö og Arion banka úr fimm í fjögur. Á Vestfjörðum hefur útibúum fækkað úr 16 í 10 eða um 38%. Þar munar mestu um fækkun sparisjóða, en þeir runnu flestir gegnum SpKef inn í Landsbankann. Voru tólf á Vestfjörðum árið 2005, en eru nú eingöngu fjórir. Landsbankinn starfrækir nú fjögur útibú á svæð- inu, en starfrækti einungis útibú á Ísafirði árið 2005. Þessi breyting kemur til vegna yfirtöku bankans á SpKef. Auk Ísafjarðar rekur bank- inn nú gömlu útibú SpKef á Patreksfirði, Tálknafirði og Þingeyri. Á morgun mun bankinn loka útibúum sínum á Flateyri, Súðavík, Bíldudal og á Króks- fjarðarnesi. Eftir þá lokun verður engin bankastarfsemi á þessum stöðum. Öll þessi útibú til- heyrðu Sparisjóði Vestfjarða, síðar SpKef. Á NV-landi hefur verið fækkun um 36%. Þar voru 11 útibú árið 2005 en eru nú sjö. Engin bankastarfsemi er lengur á Brú, en þar var áður sparisjóður og Arion banki er ekki með útibú á Skagaströnd. Útibú SpKef á Hvammstanga er nú rekið af Landsbankanum. Einn sparisjóð- ur er eftir á svæðinu, sparisjóðurinn AFL á Sauðárkróki. Á NA-landi voru 23 bankaútibú en eru nú einungis 17 sem er fækkun um 26%. Engar sviptingar hafa átt sér stað, líkt og á vesturhluta lands- ins, en allir stóru bankarnir hafa fækkað um 1-2 útibú og sparisjóða- útibúinu á Bakkafirði var lokað. Öflugasta sparisjóðasvæðið Hvergi á landinu eru sparisjóð- irnir með jafn öflugt net á og NA- landi en þar hefur þeim einungis fækkað um einn á síðustu sjö árum og eru þeir nú með 12 útibú á svæð- inu. Sparisjóður Höfðhverfinga er með útibú á Grenivík og á Akureyri. Sparisjóður Ólafsfjarðar rekur útibú þar. Sparisjóðurinn AFL er með útibú á Siglufirði. Sparisjóður Suð- ur-Þingeyinga rekur útibú á Laug- um, á Húsavík og í Reykjahlíð. Sparisjóður Svarfdæla er með útibú á Dalvík og í Hrísey og Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis er með útibú á Þórshöfn, Kópaskeri og á Raufarhöfn. Á Austurlandi hafa litlar breyt- ingar verið og má segja að stærsta breytingin verði á svæðinu á morgun þegar Landsbankinn lokar útibúum sínum á Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Eftir þá breytingu verða 12 útibú á Austurlandi, en þau voru 14 árið 2005. Þá rak Landsbankinn útibú á Breiðdalsvík og á Djúpavogi, en seldi þau Sparisjóðinum á Horna- firði, sem rekur þau enn í dag. Þá er Sparisjóður Norðfjarðar starfandi í Neskaupstað. Landsbankinn lokaði einnig útibúi sínu á Stöðvarfirði árið 2010 og eftir þá aðgerð er enginn banki starfandi á staðnum. Önnur útibú á Austurlandi eru óbreytt. Litlar breytingar á Suðurlandi Á Suðurlandi voru 18 útibú árið 2005, en eru nú 15. Útibúum Arion banka í Skógum og á Flúðum var lokað og sparisjóðaútibúi í Hvera- gerði einnig. Nokkru áður hafði bankaútibúum á Eyrarbakka, Stokkseyri og Laugarvatni verið lokað. Þar er engin starfsemi í dag. Á Reykjanesi voru ellefu útibú ár- ið 2005, en eru nú átta. Þar munar mestu að sex útibú SpKef runnu inn í Landsbankann. Þremur útibúum SpKef var lokað en áfram er banka- starfsemi í öllum þéttbýliskjörnum. Bankaútibú og -afgreiðslur 2005 Landsbankinn (43 útibú/afgr.) Arion banki (39 útibú/afgr.) Íslandsbanki (28 útibú/afgr.) Sparisjóðirnir (64 útibú/afgr.) Alls bankaútibú 2005: 174 Bankaútibú og -afgreiðslur 2012 Landsbankinn (38 útibú/afgr.) Arion banki (24 útibú/afgr.) Íslandsbanki (22 útibú/afgr.) Sparisjóðirnir (23 útibú/afgr.) Alls bankaútibú 2012: 107 Íslenskum bankaútibúum hefur fækkað úr 174 í 107 á sjö árum  Samruni og fækkun sparisjóða haft mikil áhrif  Mesta fækkunin verið á höfuðborgarsvæðinu Miklar sviptingar hafa orðið í sparisjóðakerfinu frá árinu 2005. Þá voru 27 sparisjóðir í landinu og 64 sparisjóðaútibú. Árið 2007 fækkaði sparisjóð- unum í 25, en útibúum hafði þá fjölgað í 67. Fjölgun varð á sparisjóðum árið 2008, en þá urðu þeir þeir 36 og þar munaði mestu um sparisjóði á Reykjanesi og Vestfjörðum sem síðar runnu inn í SpKef. Útibú- um hafði fækkaði í 62. Árið 2009 sameinast SPRON Ar- ion banka og við það fækkar spari- sjóðum í 31 og útibúum þeirra í 48. Árið 2010 verður SpKef form- lega til með samruna 16 sparisjóða og þá hafði þeim fækkað í 15 með 46 útibú starfrækt á landinu. Árið 2011 var afdrifaríkt fyrir sparisjóðina en þá rann Byr inn í Íslandsbanka og SpKef rann inn í Landsbankann. Sparisjóðum fækk- aði við þá breytingu í 12 með 23 útibú og er ekkert þeirra á vestan- verðu landinu. Gríðarleg fækkun sparisjóða SPARISJÓÐAKERFIÐ Í LANDINU GERBREYTT Morgunblaðið/Björn Björnsson Útibú Hofsós er meðal þeirra staða sem hafa misst bankaútibú. Þar er nú aðeins hraðbanki, sem hefur að sögn heimamanna ekki alltaf verið í lagi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.