Morgunblaðið - 31.05.2012, Síða 44

Morgunblaðið - 31.05.2012, Síða 44
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Andlát: Jóhannes Guðmundsson 2. 125 milljóna glæsivillan seld 3. Dæmd fyrir að slá son sinn 4. Unnu í 577 tíma »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Gullkistan leikur fyrir dansi á Sum- arfagnaði Kringlukrárinnar annað kvöld og laugardagskvöld kl. 23.30. Gullkistuna skipa Ásgeir Óskarsson, Gunnar Þórðarson, Jón Ólafsson og Óttar Felix Hauksson. Allar konur fá frítt inn fyrir miðnætti og fordrykk. Gullkistan leikur fyr- ir dansi á Kringlukrá  Álfagarðurinn í Hellisgerði í Hafn- arfirði hefur gefið út bókina Hvað þarf til að sjá álf? eftir álfinn Fróða sem býr í Hellis- gerði. Í bókinni eru myndir eftir Ragnhildi Jóns- dóttur sjáanda, sem skráði bókina eftir Fróða. Í kvöld kl. 20 mun Ragn- hildur kynna álfinn og lesa upp úr bók hans við Álfagarðinn. Hvað þarf til að sjá álf? eftir álfinn Fróða  Síðasta sýning á Ævintýrum Múnkhásens í uppsetningu Gaflara- leikhússins verður í dag kl. 18. Leik- ararnir Gunnar Helgason og Magnús Guðmundsson fara með hlutverk Múnkhásens á ólíkum aldri. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Sýn- ingin er hluti af Björtum dög- um, menn- ingarhátíð Hafnar- fjarðar. Ævintýri Múnk- hásens í síðasta sinn Á föstudag, laugardag og sunnudag (sjómannadagurinn) Hæg breytileg átt eða hafgola og víða léttskýjað, sums staðar þokuloft við sjávarsíðuna. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri eða hafgola. Sums staðar þoku- bakkar við sjóinn. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í innsveitum vestantil. VEÐUR Frábær sigur á einu besta liði heims, Spánverjum, á Hlíðarenda í gærkvöld þýðir að Ísland á enn raunhæfa möguleika á að komast í úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik. Ísland sigr- aði, 21:18, eftir magnaðan kafla í seinni hálfleik en þarf nú að fara til Úkraínu og vinna þar annan þriggja marka sigur á sunnudaginn. »1-3 Frábær sigur og EM enn möguleiki Margrét Lára Viðarsdóttir fékk að vita nokkrum klukkustundum eftir að hún varð þýskur meistari að hún yrði ekki áfram leik- maður Turbine Potsdam. „Ég tel mig eiga mikið inni og er von- andi ekki á leið heim al- veg strax,“ segir Margrét sem stefnir ótrauð að því að halda áfram í at- vinnumennsku er- lendis. »2 „Ég er vonandi ekki á leið heim alveg strax“ Ólafur Bjarki Ragnarsson, lykilmaður í Íslandsmeistaraliði HK í handknatt- leik og besti leikmaðurinn á Íslands- mótinu í vetur, er búinn að semja við þýska félagið Emsdetten. „Það er flott að fara aftur út núna og taka næsta skref,“ segir Ólafur Bjarki sem stefnir að því að komast með liðinu upp í efstu deildina í Þýskalandi. »1 Ólafur Bjarki fer aftur til Þýskalands ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Risarnir á bjórmarkaðinum, Vífil- fell og Ölgerðin, hafa nánast einok- að framboð bjórs á krám og veitingastöðum landsins, en á morgun fá þeir samkeppni frá Gæðingi, brugghúsi í Útvík í Skagafirði, sem opnar nýja krá, Micro-bar, við Austurstræti 6 í Reykjavík. Þar verður meðal ann- ars boðið upp á kranabjór frá ör- brugghúsunum þremur, Gæðingi, bruggverksmiðjunni Kalda á Ár- skógsströnd og Ölvisholti brugg- húsi í Flóahreppi. Eigin bar eina lausnin Árni Hafstað, eigandi Gæðings, segist hafa stofnað brugghúsið í febrúar í fyrra til þess að bjóða upp á nýjar og spennandi bjórteg- undir og auka þannig flóruna í bjórmenningunni. Kranabjór frá brugghúsinu hafi fengist á Íslenska barnum í Pósthússtræti þar til eig- endaskipti hafi orðið þar fyrir skömmu og því ekki um annað að ræða en að opna eigin stað til að koma vörunni á framfæri annars staðar en í verslunum ÁTVR. „Þetta var eiginlega eini barinn sem leyfði sér að taka kranabjór frá öðrum en hinum tveimur stóru, þeir voru með kranabjór frá okkur og Kalda,“ segir Árni um fram- boðið á Íslenska barnum. „Síðan var skipt um eigendur og inn kom Vífilfellsmaður. Okkur var hent út ásamt Kalda-mönnum, ég athugaði hvaða húsnæði væri laust í bænum og datt niður á þetta.“ Fyrir utan árstíðabundnar bjór- tegundir á þorra, páskum og um jól framleiðir Árni þrjár tegundir og sú fjórða er væntanleg 1. júlí. Hann verður með átta krana á nýja staðnum og auk þess flöskubjór frá ís- lensku örbrugghúsunum, sem og frá Belgíu, Danmörku, Skotlandi og víðar. „Þetta er mjög spennandi,“ segir Árni um nýja barinn og segir nauð- synlegt að geta selt eigin kranabjór því mikið umstang og meiri kostn- aður fylgi flöskubjórnum. Gengið er inn á barinn frá Veltu- sundi og leigusamningurinn verður endurskoðaður eftir ár. „Þá sé ég hvort þetta gengur eða ekki eftir að hafa fleytt rjómann af besta tímabilinu og þreyð þorrann,“ segir Árni um væntanlega samkeppni við risana tvo. „Ég stefni ekki að því að fella þá en við sem stöndum að örbrugghúsunum viljum vera með og Micro-bar á að vera mekka fyrir þá sem vilja fá sér bjór.“ Minni brugghúsin minna á sig  Bjór frá ör- brugghúsunum á bar í Austurstræti Morgunblaðið/Eggert Framboð Kranabjór frá örbrugghúsunum þremur verður til sölu hjá Árna Hafstað á nýja barnum í Austurstræti. fólk, selur heyrnartæki og sinnir viðkomandi þjónustu. Síðan í febrúar í fyrra hefur hann rekið brugghúsið og nú bæt- ist barinn við. „Það er svolítið stress núna í kringum baropnun- ina en þetta er allt gaman,“ segir hann. Brugghúsið er breskt að upp- runa og bjórinn, lager, stout og pale ale, stílfærður og heima- tilbúinn, að sögn Árna. Róbótafjós og heyrnarmæling ÁRNI HAFSTAÐ SINNIR MÖRGUM STÖRFUM Árni Hafstað rekur mjólkurbú í Út- vík, hann er með um 60 mjólkurkýr og var fyrstur til þess að koma sér upp róbótafjósi í Skagafirði, gerði það í nóvember 2003. Hann er líka heyrnar- og talmeinafræðingur, reyndar hættur að starfa sem talmeina- fræðingur en vinnur sem heyrnarfræð- ingur, þvælist um landið, heyrnarmælir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.