Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Leitað er nú dyrum og dyngjum í að- alstöðvum Evrópusambandsins að lausn sem dugi til að hindra að Spánn verði næsta landið á eftir Grikklandi til að leita á náðir ESB um hjálp. Spænskir bankar riða til falls, þurfa hugsanlega tugi millj- arða evra til að komast á réttan kjöl og er staða þeirra sögð mun verri en fram komi í bókhaldinu. Eignir séu ofmetnar. Framkvæmdastjórn ESB í Brussel lagði í gær til að komið yrði upp sameiginlegri ábyrgð á bönkum evruríkjanna en gerbreyta yrði þá reglum sambandsins. Spænska stjórnin er með bakið upp að vegg, að mati Jyllandsposten í Danmörku, og í nýrri skýrslu seðla- banka Spánar er því spáð að sam- drátturinn, sem nú er hafinn í efna- hagnum, verði dýpri og standi lengur yfir en áður var talið. Hallinn á fjárlögum vex stöðugt, þrátt fyrir harkalegan niðurskurð útgjalda. Skatttekjur fara eðlilega minnkandi í landi með atvinnuleysi upp á 24%. Hluthöfum bjargað? Vörusala minnkaði um nær 10% í apríl sem er meira fall en um getur í sögu landsins og óvissan veldur því að fjárfestar flýja spænsk ríkis- skuldabréf. Skuldatryggingaálag á 10 ára bréf spænska ríkisins er nú 6,43% en aðeins 1,3% á sambærileg þýsk skuldabréf. Ríkisstjórn Mar- iano Rajoy reynir nú að bjarga með ríkisaðstoð einum stærsta bank- anum, Bankia, þótt margir bendi á að hluthafarnir eigi að taka skellinn fari bankinn á hausinn. En fleiri en þeir fengju skell og Rajoy þorir ekki annað en reyna að verja bankann. AFP Andstaða Mótmælendur úr spænskum samtökum fólks sem á í vanda vegna veðskulda, hrópa slagorð í gær og reyna að hindra að Ekvador-konunni Luz Maria Reyes Coral verði fleygt út af heimili sínu í Madrid vegna skulda. Stjórn Rajoy í vítahring  Tekjur ríkisins minnka stöðugt vegna samdráttar í efna- hagnum en reynt að bjarga einkabönkum með ríkisaðstoð Um 22% kvenna í Evrópulöndum reykja og er það mun hærra hlutfall en í Afríku, Asíu og Mið-Austurlönd- um, segir í skýrslu frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni, WHO. Áður reyktu mun fleiri karlar en konur í Evrópu en sá munur er að hverfa í mörgum landanna og í Svíþjóð og Noregi er hlutfallið nú hærra meðal kvenna. WHO segir að nýir miðlar og nýjar markaðsaðferðir tóbaksfyr- irtækja ógni almannaheilsu. „Jafnframt því sem boðskapur heilsugæsluaðila nær til annarra hluta samfélagsins eru ungar konur og stúlkur áfram mjög vænlegur markaður fyrir tóbaksiðnaðinn og ný samskiptatæki gera auðveldara að ná til þeirra,“ segir í skýrslunni. Zsuzsanna Jakab, yfirmaður Evr- ópudeildar WHO, segir að algengast sé að fólk byrji að reykja á unglings- árunum og fyrirtækin nýti sér með „skammarlegum hætti varnarleysi stúlkna á þessum aldri“ gagnvart auglýsingum. Þeim áróðri sé beint að stúlkum að reykingar séu merki um valdeflingu kvenna og frama, segir WHO. kjon@mbl.is Tóbakinu ot- að að stúlkum  WHO segir að fleiri konur en karlar reyki nú í Noregi og Svíþjóð Retta Konur líklegri til að reykja. Ímyndin gerð jákvæð » Reykingar hafa á fáeinum árum aukist um 117% meðal kvenna í Rússlandi. » Árið 2009 birti rússneska útgáfan af alþjóðlegu tímariti fyrir kvenfólk mynd af reykj- andi konu. Sígarettutegundin hennar er nú sú vinsælasta meðal rússneskra kvenna. Efnahagsmálaráðuneytið í Mad- rid segir að fjármálafyrirtækin hafi í fórum sínum „vandamála“ lánsveð og fleiri eignir á fast- eignamarkaðnum upp á 184 milljarða erva. Önnur fasteigna- lán upp á 123 milljarða séu enn „í lagi“. Lán sem ekki er greitt af í meira en 90 daga teljast í alþjóðafjármálum vera í mikilli hættu, nær verðlaus. En óljóst orðalag ráðuneytisins ýtir enn undir óvissuna. Óvissan eykst enn LOÐIÐ ORÐALAG · Brúðkaup · Fermingar · Árshátíðir · Afmæli · Ættarmót · Útskriftir · Erfidrykkjur Sími 551 4430 · laekjarbrekka.is Erum staðsett í hjarta Reykjavíkur Bjóðum upp á veislusali fyrir allt að 100 manns Litlabrekka Kornhlaðan Er veisla í vændum? GLUGGAR OG GLERLAUSNIR idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla • tré- eða ál/trégluggar og hurðir • hámarks gæði og ending • límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu • betri ending — minna viðhald • lægri kostnaður þegar fram líða stundir • Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla • hágæða álprófílakerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Byggðu til framtíðar með gluggum frá Idex

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.