Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 41
Trúðarnir Skúli og Spæli eru ólíkir
mjög. Skúli er alltaf kátur og bjart-
sýnn, nýtur sín í starfi en Spæli er
heldur tortrygginn og neikvæður.
Þeir Skúli og Spæli eru persónur
leikritsins Trúðleikur sem frum-
sýnt verður í Frystiklefanum í Rifi
á Snæfellsnesi, á morgun kl. 17 og
eru tólf sýningar fyrirhugaðar, sú
síðasta 14. júlí. Trúðleikur er eftir
Hallgrím H. Helgason og var verkið
fyrst sett á svið í Iðnó fyrir tólf ár-
um. Þá léku Halldór Gylfason og
Friðrik Friðriksson trúðana en
Halldór er nú í hlutverki leikstjóra.
Leikarar í uppfærslunni í Frysti-
klefanum eru Benedikt Karl Grön-
dal og Kári Viðarsson en Kári er
jafnframt maðurinn á bak við leik-
húsið Frystiklefann. Kári leikur
Skúla en Benedikt leikur Spæla.
„Í þessari uppsetningu eru Skúli
og Spæli mættir á bæjarhátíð í
óræðum bæ á Íslandi, svipaða
Frönskum eða Færeyskum dögum
og eiga að vera þar með smá gigg.
Síðan fer eitthvað smá úrskeiðis og
Spæli fær nóg, alveg upp í kok af
því að standa í þessu rugli, vill
hætta að vera trúður og fá sér eitt-
hvert virðulegra starf. Leiksýning
spinnst svolítið út frá þessum
árekstri og þetta er leiksýning sem
ég myndi segja að höfði til allra.
Þemun í henni eru mjög fullorðins,
umræðan fullorðinsleg en samt er
þetta trúðasprellsýning, mikið fjör
og aksjón,“ segir Kári. Í verkinu sé
í raun fjallað um þörf manneskj-
unnar fyrir að vilja vera eitthvað
annað en hún er, í stað þess að sjá
að hún hafi það gott og sætta sig
við það. „Þetta eru ekki sirkustrúð-
ar, þetta eru leikhústrúðar,“ ítrek-
ar Kári. Þó sé mikið um sprell og
leiki milli rökræðna.
-Hefur önnur hvor manngerðin
betur að lokum?
„Vináttan sigrar að lokum,“ svar-
ar Kári. Vináttan sé enda mikil-
vægur þáttur í verkinu.
Frystiklefinn er með fésbókar-
síðu og einnig vefsíðu, frystiklef-
inn.is. helgisnaer@mbl.is
Trúðatal Skúli og Spæli ræða málin, annar jákvæður en hinn neikvæður.
Ólík lífssýn trúða
Leikritið Trúðleikur verður frum-
sýnt í Frystiklefanum í Rifi á morgun
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
EGILSHÖLL
16
16
VIP
1212
12
12
12
L
10
10
10
12
12
ÁLFABAKKA
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
L
10
AKUREYRI
16
16
16
YFIR 50 ÞÚS.
BÍÓGESTIR !SPRENGHLÆGILEGMYND.
Total film Variety
SNOWWHITEANDHUNT.. KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
SNOWWHITEANDHU.. VIPKL. 5:20 - 8 - 10:402D
THERAVEN KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
THEDICTATOR KL. 6 - 8 2D
THE LUCKYONE KL. 8 - 10:10 2D
SAFE KL. 10:50 2D
DARKSHADOWS KL. 5:40 - 10 2D
THEAVENGERS KL. 8 3D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
SNOWWHITEANDHUNT.. KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THERAVEN KL. 10:30 2D
MEN INBLACK3 KL. 5:30 - 8 - 10:30 2D
THEDICTATOR KL. 6 - 10:40 2D
DARKSHADOWS KL. 8 2D
THEAVENGERS KL. 5:20 - 8 3D
16
16
KRINGLUNNI
12
12
10
THERAVEN KL. 8 - 10:20 2D
THE LUCKYONE KL. 5:50 - 8 2D
SAFE KL. 10:10 2D
DARKSHADOWS KL. 5:40 2D
THEAVENGERS KL. 6 - 9 3D
MÖGNUÐ SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
V FOR VENDETTA
KEFLAVÍK
16
12SNOWWHITEANDTHEHU.. KL. 8 - 10:40 2D
SAFE KL. 8 - 10 2D
RAVEN KL. 10:10 2D
THEAVENGERS KL. 5:10 3D
THE LUCKYONE KL. 8 2D
UNDRALAND IBBA ÍSLTAL KL. 6 2D
SAFE KL. 8 - 10:10 2D
JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE
EMPIRE
EMPIRE
JOHNNY DEPP
FRÁ MEISTARA TIM BURTON
Er þitt fyrirtæki að borga of mikið í símkostnað á mánuði? Nú býður Svar tækni tvær leiðir til sparnaðar með IP símkerfum. Annarsvegar
! "
!!
# $ %&
'
#
# þinn. Við erum í síma 510-6000.
Lækkaðu símreikninginn
Öflugt IP símkerfi frá Snom
3 stk Snom 300 símtæki, 1 Snom 320 símtæki
Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur
Snom IP símkerfi – 4 SÍMTÆKI
8.500 m/vsk
Öflugt IP símkerfi frá Snom
5 stk Snom 300 símtæki, 1 stk Snom 320 símtæki
Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur
Snom IP símkerfi - 6 SÍMTÆKI
Stofngjald 39.900 m/vsk
Mánaðargjald
10.500 m/vsk
Stofngjald 39.900 m/vsk
Mánaðargjald
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla
Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Snow Piercer nefnist kvik-
mynd sem nú er í tökum í
Prag í Tékklandi og fer ís-
lenski leikarinn Tómas Lem-
arquis með hlutverk í henni.
Aðalleikarar myndarinnar
eru engir aukvisar og þekkt
nöfn í heimi kvikmyndanna,
þau Chris Evans, Octavia
Spencer, Jamie Bell, John
Hurt og Tilda Swinton.
Leikstjóri myndarinnar er
Suður-Kóreumaðurinn Bong
Joon-ho. Kvikmyndir hans
hafa notið mikilla vinsælda í
heimalandinu sem víðar og
má þar nefna að kvikmynd
hans Mother, frá árinu 2009,
var framlag Suður-Kóreu til
Óskarsverðlauna og var
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes sama ár en Bong var
formaður aðaldómnefndar
hátíðarinnar í fyrra.
Snow Piercer er byggð
lauslega á franskri teikni-
myndasögu, Le Trans-
perceneige eftir Jean-Marc
Rochette og Jacques Lob og
segir af eftirlifendum ísaldar
sem berjast fyrir lífi sínu í
lest þar sem farþegum er
skipt eftir stéttum og leiðir
sú stéttaskipting til upp-
reisnar og átaka.
Dýrmæt reynsla
Tómas var staddur í Prag
þegar blaðamaður sló á
þráðinn til hans í liðinni viku
og var þá nýkominn af kvik-
myndahátíðinni í Cannes þar sem
hann skoðaði m.a. ný verkefni en
hann leikur auk þess í einni þeirra
kvikmynda sem sýndar voru í mark-
aðshluta hátíðarinnar, spænsku
myndinni Insensibles.
-Ertu í stóru hlutverki í Snow
Piercer?
„Nei, það eru margar þekktar
kempur í þessari mynd sem eru í
aðalhlutverkunum en ég er með átta
tökudaga þannig að þetta er alvöru
hlutverk en samt minna hlutverk,“
segir Tómas.
-Hvert er hlutverkið?
„Maður má náttúrlega ekki gefa
of mikið upp en þetta er svona vondi
kallinn, eða þannig. Ég er hægri
hönd yfirmanns lestarinnar, eigin-
lega. Í lestinni eru þrjár stéttir fólks
og ég tilheyri efstu stéttinni.“ Per-
sóna hans sé nefnd Egg-head, eða
Egghaus. Tómas segir myndina e.k.
hasarmynd með þjóðfélagsádeilu.
-Þekktirðu eitthvað til
leikstjórans áður en þú
tókst þetta að þér?
„Já, við hittumst á kvik-
myndahátíð í Tórínó fyrir
níu árum, þegar ég var þar
með Degi Kára (Péturs-
syni) út af Nóa albínóa.
Hann mundi það,“ segir
Tómas. „Það vilja allir
vinna með honum í dag,
hann er mjög virtur í kvik-
myndaheiminum enda
ótrúlega hæfileikaríkur
maður.“
-Hefurðu þá leikið í at-
riðum með þessum stjörn-
um eða ertu aðskilinn frá
þeim?
„Ég er búinn að vera að
leika í senum sem eru ekki
með þeim en er að fara að
leika í senum með þeim. Ég
er búinn að vera að hanga
með þeim á settinu og
kynnast þeim. Það er mjög
skrítið að fara með John
Hurt í bíó og vera með
vinnufélögunum úti að
borða og slaka á,“ segir
Tómas kíminn. Það sé dýr-
mæt reynsla að fá að leika í
kvikmynd af þessari stærð-
argráðu, hann hafi hingað
til leikið í minni myndum
og ódýrari í framleiðslu. Þá
sé það skondið að vera með
eigið hjólhýsi.
8,3 milljónir áhorfenda
Af öðrum sigrum Tóm-
asar má nefna að hann lék
nýverið í einum þátta
Tatort, einhverra
vinsælustu sjónvarpsþátta Þýska-
lands. Hann segir um 8,3 milljónir
manna hafa horft á þáttinn sem var
sá 838. í syrpunni. „Ég lék tvítugan
vandræðaungling,“ segir Tómas um
það hlutverk.
-Ertu oft að leika glæpamenn og
vandræðagemlinga?
„Oft, ekki alltaf,“ svarar Tómas.
Sérstakt útlit hans geri það að verk-
um að honum séu oft boðin slík
hlutverk.
John
Hurt
Octavia
Spencer
Chris
Evans
Jamie
Bell
Bong
Joon-ho
Tilda
Swinton
Vondi kallinn Egghaus
Tómas Lemarquis leikur í kvikmynd með Tildu Swinton,
Octaviu Spencer, Chris Evans, Jamie Bell og John Hurt
List Tómas er bæði leikari og myndlistarmaður. Hér sést
hann við verk eftir sig í Kling og Bang árið 2010.
Morgunblaðið/RAX