Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012 Sáttur Repúblikaninn og forsetaefnið Mitt Romney fagnar sigri. Mitt Romney sigraði stórt í for- kosningum repúblikana í Texas á þriðjudag, hlaut 97 fulltrúa. Hann hefur því tryggt sér 1144 fulltrúa eða meira en helming atkvæða á flokksþinginu sem velur forsetaefni í sumar. Romney, sem er fyrrverandi ríkisstjóri í Massachusetts, hefur lagt mesta áherslu á að gagnrýna efnahagsstefnu Baracks Obama forseta. Atvinnuleysi er enn mikið í landinu en sumar hagtölur þokast í rétta átt. Hins vegar er bent á að hrynji evrusamstarfið í Evrópu muni það einnig hafa slæm áhrif í Bandaríkjunum og geti kæft bat- ann í fæðingu. kjon@mbl.is Romney búinn að tryggja sér útnefn- ingu repúblikana BANDARÍKIN Barist víða um landið » Til harðra bardaga kom milli stjórnarhermanna og upp- reisnarmanna í grennd við höfuðborgina Damaskus í gær og einnig nálægt Homs. » Sprenging varð í olíuleiðslu við Deir Ezzor, að sögn AFP. Stjórnvöld kenndu „hryðju- verkamönnum“ um árásina. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Rússar vísa eindregið á bug öllum hugmyndum um að alþjóðlegt herlið verði látið stilla til friðar í Sýrlandi. Þeir halda einnig fast við þá skoðun sína að bæði stjórn Bashars al-Assads forseta og uppreisnarmenn eigi sök á óöldinni og rannsaka beri ódæðin í borginni Houla á föstudag þegar 108 óbreyttir borgarar voru myrtir. „Við álítum að það sé of snemmt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að ræða nýjar aðgerðir núna,“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Rúss- lands, Gennadí Getílov, í gær. Inngrip annarra ríkja myndu aðeins gera ástandið enn verra. Rússar hafa tvisv- ar á síðustu mánuðum hótað neitun- arvaldi til að hindra að öryggisráðið samþykkti harkalegar ályktanir gegn stjórn Assads. Kínverjar, sem einnig hafa neitun- arvald í ráðinu, tóku í sama streng og Rússar í gær, sögðust vera á móti hernaðaríhlutun og „valdbeitingu til að skipta um ríkisstjórn“. Francois Hollande Frakklandsforseti sagði í vikunni að ekki væri búið að útiloka hernaðaríhlutun fengi hún samþykki í öryggisráðinu. Laurent Fabius utan- ríkisráðherra sagði í viðtali við Le Monde ekki koma til mála að senda landher en neitaði að tjá sig þegar spurt var hvort loftárásir væru inni í myndinni. Mikið mannfall var í átökum í Sýr- landi á þriðjudag og einnig í gær, að sögn talsmanna uppreisnarmanna. Eftirlitsmenn SÞ fundu á þriðjudag í bænum Al-Sukar lík 13 manna sem höfðu verið teknir af lífi með skoti í höfuðið. Hendur þeirra voru bundnar fyrir aftan bak. Rússar útiloka íhlutun  Kínverjar segja einnig að ekki komi til mála að beita alþjóðlegu hervaldi til að hrekja ríkisstjórn Bashars al-Assads Sýrlandsforseta frá völdum Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, hlaut í gær 50 ára fangels- isdóm fyrir aðild að stríðsglæpum sem framdir voru í borgarastyrjöld- inni í Sierra Leone á árunum 1991- 2002. „Loksins hefur réttlætinu verið fullnægt og Tay- lor látinn gjalda fyrir þjáingarnar sem hann olli okkur,“ sagði Sierra Leone- maðurinn Al Hadji Jusu Jarka og grét þegar niðurstaðan lá fyrir. Hann er með gervihandleggi, uppreisnarmenn sem Taylor studdi hjuggu af honum handleggina. Taylor var forseti 1997 til 2003 en þar áður einn af stríðsherrunum í borgarastríði Líberíumanna. Hann var sakaður um að hafa aðstoðað uppreisnarmenn í Sierra Leone sem fóru þar hamförum, myrtu fjölda manna og limlestu aðra. Tug- þúsundir manna féllu á átökunum. Hinn 64 ára gamli Taylor mun m.a. fengið aðstoðina greidda með svo- nefndum blóðdemöntum. Þetta er í fyrsta sinn frá því rétt- að var yfir nasistaleiðtogum Þýska- lands eftir seinni heimsstyrjöld að fyrrverandi leiðtogi ríkis er sak- felldur fyrir stríðsglæpi. Þá hlaut arftaki Hitlers, Karl Dönitz, slíkan dóm. Richard Lussick, forseti dóm- stólsins í Haag, sagði að glæpirnir sem framdir hefðu verið í Sierra Leone væru meðal hinna hryllileg- ustu í sögu mannkynsins. kjon@mbl.is „Réttlætinu loksins fullnægt“  Taylor dæmdur fyrir stríðsglæpi Afplánar í Bretlandi » Réttarhöldin hafa staðið yfir í nær fjögur ár. Taylor mun af- plána dóminn í bresku fang- elsi. » Fjöldi vitna var kallaður fyrir dóminn, þ. á m. fyrirsætan Naomi Campbell. Hún sagðist hafa fengið demanta að gjöf frá Taylor 1997. » Þrælar uppreisnarmanna voru látnir grafa demanta Tayl- ors við skelfilegan aðbúnað. Charles Taylor Leiðtoga stjórnarandstæðinga í Búrma, Aung San Suu Kyi, var ákaft fagnað þegar hún kom til Taílands í fyrradag í fyrstu ferð sinni til útlanda í 24 ár. Hér er hún innan um hóp samlanda sinna í Bangkok í gær. Suu Kyi mun dveljast í Taílandi í fjóra til fimm daga og hitta ráðamenn en fer síðan fljótlega til Evrópulanda. Þá mun hún loks taka við Nóbelsverðlaununum sem henni voru veitt fyrir 21 ári, það verður í Ósló 16. júní. Suu Kyi ákaft fagnað í Taílandi AFP Julian Assange, stofnandi upp- ljóstraravefjarins WikiLeaks, tap- aði í gær áfrýjunarmáli sínu fyrir hæstarétti í Bretlandi og má búast við að verða framseldur til Svíþjóð- ar. Assange er ákærður fyrir kyn- ferðisbrot í Svíþjóð. Assange óttast að Svíar framselji sig til Bandaríkjanna þar sem hann gæti hlotið þungan dóm fyrir að birta leynileg gögn sem ungur Bandaríkjamaður stal. Assange getur þó reynt að fá Mannréttinda- dómstól Evrópu til að taka málið upp og hefur til þess 14 daga frest. Fyrst munu lögfræðingar hans þó reyna að þæfa málið í Bretlandi. kjon@mbl.is Assange tapaði áfrýjunarmáli BRETLAND Opið: mán-fös 12:30 - 18:00 Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is Rýmum fyrir nýjum vörum 20-50% afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.