Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
Utanríkisráðherra fullyrti á Al-þingi í gær að það væri mis-
skilningur hjá Vigdísi Hauksdóttur
„að í gangi sé einhvers konar aðlög-
un“ að Evrópusambandinu, en Vig-
dís hafði spurt ráð-
herrann út í
mögulegar endur-
greiðslur IPA-
aðlögunarstyrkj-
anna sem ríkis-
stjórnin reynir nú
að knýja í gegnum
þingið.
Misskilji Vigdís aðlögunarstyrk-ina og aðlögunina sem á sér
stað má ætla að hún sé að mati Öss-
urar í góðum félagsskap.
Ekki er langt síðan Jóhanna Sig-urðardóttir svaraði fyrir-
spurn Jóns Bjarnasonar um þessa
sömu styrki og sagði að þeir væru
„ekki hluti af aðlögunarferlinu“.
Sem felur í sér að hún viður-kennir, ólíkt Össuri, að hér er í
gangi aðlögunarferli.
Önnur staðfesting sem nefna máer að í auglýsingu frá Ríkis-
skattstjóra fyrr á árinu var auglýst
nýtt starf „verkefnastjóra við að-
lögun tölvukerfa embættisins að
kröfum Evrópusambandsins“.
Hvers vegna skyldi Össur ekkigeta hugsað sér að viður-
kenna að ríkisstjórnin stendur fyrir
aðlögun að Evrópusambandinu?
Jú, skýringin er sú að Össur veitað Alþingi hefur ekki veitt
heimild til aðlögunar og að ráð-
herrar geta þurft að sæta ábyrgð
fyrir gjörðir sínar. Að öðrum kosti
væri hann ekki að gera sig hlægi-
legan með því að spinna áfram
þennan gagnsæja lygavef.
Össur
Skarphéðinsson
Ráðherrarnir
og aðlögunin
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.5., kl. 18.00
Reykjavík 12 heiðskírt
Bolungarvík 15 heiðskírt
Akureyri 12 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 léttskýjað
Vestmannaeyjar 9 heiðskírt
Nuuk 13 heiðskírt
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 13 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 15 alskýjað
London 22 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 18 heiðskírt
Hamborg 12 skýjað
Berlín 16 skýjað
Vín 21 skýjað
Moskva 20 skýjað
Algarve 26 léttskýjað
Madríd 31 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 25 heiðskírt
Róm 25 léttskýjað
Aþena 20 skýjað
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 23 léttskýjað
Chicago 18 skýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:24 23:29
ÍSAFJÖRÐUR 2:43 24:19
SIGLUFJÖRÐUR 2:24 24:04
DJÚPIVOGUR 2:43 23:08
Sjónvarpssendingar RÚV frá Evr-
ópumeistaramótinu í knattspyrnu í
júní og frá Ólympíuleikunum í ágúst
verða aðgengilegar í háskerpu (HD).
Eyjólfur Valdimarsson, forstöðu-
maður tækniþróunarsviðs RÚV,
segir að um tilraunaútsendingar sé
að ræða.
Háskerpuútsendingar RÚV eru
aðgengilegar í gegnum dreifikerfi
Símans og dreifikerfi Digital Ísland
hjá Vodafone. Símafyrirtækin dreifa
sjónvarpsmerkinu meðal annars í
gegnum ADSL og í gegnum ljósleið-
ara.
RÚV hefur nú þegar fengið
nokkra reynslu af háskerpuútsend-
ingum. Eyjólfur segir að Evró-
visjón-söngvakeppnin um síðustu
helgi hafi verið send út í háskerpu.
Einnig var handboltamót í janúar sl.
sent út í háskerpu og heimsmeist-
aramót í knattspyrnu í hitteðfyrra.
Þá voru aðstæður til að taka við út-
sendingum heldur frumstæðar í út-
varpshúsinu en útsendingarbúnaður
hefur verið endurbættur mikið síðan
til að ráða við háskerpuútsending-
arnar.
Eyjólfur segir að bæði Síminn og
Vodafone hafi boðið upp á háskerpu-
sjónvarpsrásir í dreifikerfum sínum
í mörg ár. Hann benti á að áhorf-
endur þyrftu að gera ráðstafanir til
þess að geta notið háskerpuútsend-
inganna. Þeir gætu þurft að end-
urnýja myndlykil heimilisins og eins
að vera með háskerpusjón-
varpsviðtæki. gudni@mbl.is
Samsett mynd/ee. Ljósmynd/Reuters
EM RÚV Verður með háskerpusendingar frá íþróttaviðburðum erlendis.
Háskerpusjón-
varp sækir fram
Háskerpusendingar RÚV frá EM
í fótbolta og Ólympíuleikunum
Háskerpusendingar
» Sjónvarp Símans býður upp
á háskerpuáskrift með sjö er-
lendum sjónvarpsstöðvum auk
þess sem Stöð 2 Sport HD er í
boði í gegnum 365 miðla.
» Viðskiptavinir Símans geta
einnig leigt sér kvikmyndir í
háskerpu.
» Vodafone býður HD-
útsendingar í gegnum ljósleið-
ara, CAM-sjónvarpskort og
Digital Ísland HD-myndlykla. Í
boði eru Stöð 2 Sport HD og
ein erlend stöð.
Kíktu eftir uppskrifta-
bókum í næstu verslun.
Sjá upplýsingar um
sölustaði á istex.is
Íslenska ullin
er einstök