Morgunblaðið - 31.05.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Útlit var í gær fyrir að strandveiðar
yrðu leyfðar í dag, síðasta dag maí-
mánaðar, á suðursvæðinu, en sjó-
menn þar voru í gær komnir nálægt
aflahámarki mánaðarins. Gangi það
eftir fá sjómenn frá Norðurfirði að
Borgarbyggð, eða á norður-, austur-
og suðursvæðum, að veiða 16 daga í
mánuðinum, en sjómenn á svæðinu
frá Arnarstapa að Súðavík aðeins í
sex daga.
Verði umframafli í einum mánuði
kemur hann til skerðingar í þeim
næsta. Náist ekki afli eins mánaðar
bætist hann við mánuðinn á eftir.
Þannig verður skerðing í júní á svæði
A, frá Arnarstapa að Súðavík, þar
sem maíaflinn fór um 45 tonn fram yf-
ir. Á þessu svæði mátti aðeins stunda
veiðar í sex daga í maí þar sem vel afl-
aðist og margir voru um hituna.
Strandveiðimenn á norður- og aust-
ursvæðum eiga talsvert í að ná há-
marki maímánaðar.
Alls hafa 617 bátar fengið leyfi til
standveiða og 556 hafa nýtt leyfin.
Flestir hafa landað á svæði A eða 226
talsins. Veiðarnar eru leyfðar fjóra
daga í viku frá maí fram í ágúst og í
fyrra fékkst mestur meðalafli á svæði
C, frá Húsavík að Djúpavogi, eða 15,2
tonn að meðaltali. Meðalbáturinn
landaði 14,1 tonni á svæði B frá Norð-
urfirði að Grenivík, 11,4 fengust að
meðaltali á svæði A og 9,5 tonn á
svæði D, frá Hornafirði í Borgar-
byggð.
Ekki breytt í sumar
Fram hefur komið gagnrýni á
hversu misjafn afli er á milli svæða.
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarút-
vegsráðherra, sagði um helgina að
fyrirkomulag veiðanna myndi leita
jafnvægis yfir einhver ár. Í öllu falli
yrðu strandveiðar með óbreyttu sniði
í sumar.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir að sambandið geri ekki athuga-
semdir við núverandi kerfi. Með því
að skipta miðunum í fjögur aflasvæði,
setja hámarksafla á hverja veiðiferð,
að hver veiðivika sé einungis fjórir
dagar, hafa mest fjórar rúllur um
borð og vera ekki yfir 14 tíma á sjó á
dag séu verulegar takmarkanir
komnar á veiðar. Sóknin ráðist síðan
verulega af veðri og afli af fiskgengd.
Þannig jafnist þetta út og hann sé
ekki hlynntur því að hafa öll svæði í
einum potti. Slíku geti fylgt of mikil
samþjöppun og ekki megi gleyma því
að menn hafi val um það hvar þeir
skrá sig til strandveiða í upphafi ver-
tíðar.
Veður og fiskgengd
„Sannarlega vonum við að fisk-
gengd verði alltaf eins góð og und-
anfarið, en það er bara því miður ekki
þannig,“ segir Örn. „Sem dæmi get
ég nefnt að er leið á síðasta sumar
voru menn að fá innan við 10 fiska í
Faxaflóa yfir daginn. Þegar verið er
að tala um meðalafla mega menn ekki
gleyma tilkostnaði sem er eðlilega
verulega meiri hjá þeim sem róa
flesta dagana með tilheyrandi olíu-
kostnaði og þurfa alla 14 tímana til að
ná skammtinum og dugir stundum
ekki til, eins og fram kom.
Stóra breytingin sem við viljum sjá
á kerfinu er að hætt verði við 8.600
tonna aflahámarkið, slíkt þak og afla-
skipting á svæði er óþarft. Breytingin
yrði skilyrt við að afli í strandveiðum
skerði ekki aðrar heimildir. Þá ræðst
það af fyrrnefndum takmörkunum,
fiskgengd og veðri hvernig gengur og
þó góðu árin gefi eitthvað meir þá
skaðar það ekki þorskstofninn, né
hefur áhrif á uppbyggingu hans og
gott orðspor þjóðarinnar varðandi
stjórnun fiskveiða,“ segir Örn.
Sextán dagar á móti sex
Afli og úthald mismunandi í strandveiðunum Sjómenn á suðursvæðinu
komnir nálægt hámarki mánaðarins Skerðing í júní frá Arnarstapa að Súðavík
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Strandveiðar Nóg hefur verið að gera við höfnina í Ólafsvík og strandveiðibátar þurft að bíða eftir löndun.
Oddný G. Harð-
ardóttir iðnaðar-
ráðherra og
Charles Hendry,
orkumálaráð-
herra Bretlands,
undirrituðu í
Hellisheiðar-
virkjun í gær
viljayfirlýsingu
um aukið sam-
starf ríkjanna á
sviði orkumála og er sérstök
áhersla lögð á hagnýtingu end-
urnýjanlegra orkugjafa. Í vilja-
yfirlýsingunni eru tilgreind sér-
staklega fjögur svið sem ríkin
leggja áherslu á, m.a. að kanna
möguleika á sæstreng milli Íslands
og Bretlands.
Samið við Breta
í orkumálum
Oddný G.
Harðardóttir
Samkvæmt nið-
urstöðu nýrrar
könnunar á veg-
um Stöðvar 2 á
fylgi stjórn-
málaflokkanna
mælist Sjálfstæð-
isflokkurinn með
langmest fylgi
eða 43,7%. Um
40% þjóðarinnar vildu ekki taka af-
stöðu til þeirra flokka sem hyggjast
bjóða fram til næstu alþingiskosn-
inga. Var greint frá þessu í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 í gær. Ríkis-
stjórnarflokkarnir mældust
samanlagt með um 23% fylgi.
Sjálfstæðisflokkur
með 43,7% fylgi
Fíkniefnahund-
urinn Buster
sannaði enn og
aftur gildi sitt í
gær þegar tveir
lögreglumenn á
Selfossi fóru með
hann í göngueft-
irlit. Þegar geng-
ið var framhjá
húsi einu í bænum gaf Buster merki
um að hann fyndi lykt af fíkniefn-
um, við leit lögreglu fundust tvær
kannabisplöntur í ræktun.
Þegar Buster gaf lögreglumönn-
unum merki bönkuðu þeir á dyr og
kom umráðamaður hússins til dyra.
Lögreglumenn fengu að leita í
húsakynnum hans og fundu þá
plönturnar, sem voru rúmlega hálfs
metra háar. Húsráðandi var í kjöl-
farið handtekinn og tekin af honum
skýrsla. Hann játaði að rækta
kannabis til eigin neyslu.
Buster fann tvær
kannabisplöntur
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Það fellur ekki undir valdsvið Per-
sónuverndar að ákveða með hvaða
hætti önnur stjórnvöld ákveða að
rækja hlutverk sem þeim hefur verið
falið með lögum,“ segir í minnisblaði
sem efnahags- og viðskiptanefnd
barst nýverið frá Seðlabanka Íslands
vegna athugasemda Persónuverndar
við frumvarp efnahags- og viðskipta-
ráðherra um breytingu á lögum um
gjaldeyrismál. Þar segir einnig að
Seðlabankinn hafni athugasemdum
Persónuverndar um að ekki liggi fyrir
í hvaða tilgangi upplýsinga á grund-
velli ákvæðis 14. gr. laganna er aflað.
Í minnisblaðinu, sem er dagsett 23.
maí 2012, kemur fram hörð gagnrýni
Seðlabankans á umsögn Persónu-
verndar en í þeirri umsögn kom m.a.
fram að Persónuvernd teldi það vera
verðugt umhugsunarefni hvort svo sé
komið að upplýsingasöfnun Seðla-
bankans fái ekki samrýmst nútíma-
sjónarmiðum um einkalífsrétt í lýð-
ræðisríki og að Persónuvernd sé ekki
kunnugt um að nokkur annar seðla-
banki á Vesturlöndum safni jafn víð-
tækum persónuupplýsingum um
borgara ríkisins og gert er ráð fyrir í
frumvarpinu.
Um þessar fullyrðingar Persónu-
verndar segir í minnisblaði Seðla-
bankans jafnframt: „Af orðalaginu
verður ekki annað ráðið en að Per-
sónuvernd sé að leggja mat á nauðsyn
Seðlabankans til þess að safna þeim
upplýsingum sem bankinn hefur og
er að safna og þeim upplýsingum sem
bankinn kann að koma til með að
safna vegna eftirlits síns. Telur Seðla-
bankinn að slíkt sé í fullkominni mót-
sögn við hlutverk og almenna afstöðu
Persónuverndar, sem ítrekað hefur
komið fram í úrskurðum stofnunar-
innar sjálfrar, um að það falli ekki
undir valdsvið stofnunarinnar að
meta nauðsyn gagnaöflunar stjórn-
valda.“
Aðfinnsluverðar fullyrðingar
Varðandi fullyrðingar Persónu-
verndar, að stofnuninni sé ekki kunn-
ugt um að nokkur annar seðlabanki á
Vesturlöndum safni jafn víðtækum
persónuupplýsingum um borgara rík-
isins og frumvarpið gerir ráð fyrir,
segir í umræddu minnisblaði Seðla-
bankans að mat bankans sé það að að-
finnsluvert sé fyrir eftirlitsstjórnvald
að halda fram slíkum fullyrðingum án
undangenginnar skoðunar á efninu.
SÍ hafnar athugasemdum
Seðlabanki Íslands gagnrýnir umsögn Persónuverndar í
nýlegu minnisblaði til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis
Morgunblaðið/Júlíus
Minnisblað Seðlabankinn gagn-
rýnir umsögn Persónuverndar.
! " # $%
& & '(' )*++ '(' )**+!
, -.
/
0
Stöðvarfirði | Mikið er um að vera
við höfnina á Stöðvarfirði en þar
var landað um 70 tonnum af bol-
fiski í gær. Gert er ráð fyrir svip-
uðum afla í dag. Þarna eru á ferð-
inni línuveiðibátar að landa úr
byggðakvóta, 15-20 tonnum af
blönduðum afla, þó aðallega
þorski. Einnig hafa strand-
veiðibátar verið að koma að landi.
Bátar sem veiða byggðakvóta
þurfa að vera skráðir á Stöðvar-
firði, en þeir koma víða að. Mjög
margir bátar eru gerðir út frá
staðnum og hefur myndast lönd-
unarbið þrátt fyrir tvo krana.
70 tonnum landað á dag
MIKIÐ LÍF VIÐ HÖFNINA Á STÖÐVARFIRÐI
Morgunblaðið/Albert Kemp
Stöðvarfjörður Mikið er um að vera
við höfnina þessa dagana.