Morgunblaðið - 31.05.2012, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2012
Samtals 162.685 manns sóttu skíða-
svæði landsins í vetur. Mest var
mætingin í Hlíðarfjall, en þangað
mættu 59.025 gestir, og í Bláfjöll, en
þangað komu 57.942 manns.
Að sögn Magnúsar Árnasonar,
formanns Samtaka skíðasvæða á Ís-
landi, var veturinn í ár svipaður og
síðasti vetur. „Árið í fyrra var svipað
og núna. Það kom reyndar ekki
snjór fyrr en í byrjun febrúar en eft-
ir að snjórinn kom þá var þetta eig-
inlega alveg eins vetur. Það var
ríkjandi suðvestanátt í fyrra líka,
þannig að það var mjög mikið um að
lokað væri,“ segir Magnús.
Þrátt fyrir að samtals hafi verið
opið í 78 daga í Bláfjöllum skilaði al-
menningur sér ekki jafn vel á skíða-
svæðið og oft áður. Magnús segir
suðvestanáttina hafa fælt marga frá
því að mæta á skíðasvæðið. „Ef þú
horfir upp til fjallanna og það er
brjáluð snjókoma og rok; það er eitt-
hvað sem heillar ekki,“ segir Magn-
ús og bætir við: „Fyrir norðan er það
þannig að hún skilar ekki snjó en ef
snjórinn er kominn þá er suðvestan-
áttin slæm upp á lyfturnar að gera
því að það er t.d. hvassast í Hlíðar-
fjalli í suðvestanáttinni, hvassara en
í norðanátt.“
Snýst um að fá tekjur í kassann
„Allt byggist þetta á því að fá
tekjur í kassann og það er skárra
fyrir okkur að hafa opið í færri daga
og fleiri gesti en að hafa opið í fleiri
daga og færri gesti,“ segir Magnús.
Hann segir þó að síðustu dagar
tímabilsins í lok apríl, eftir páska,
hafi verið einstakir. „Þá var heið-
skírt, það var fínasta færi, það var
alltaf frost á nóttunni og ég held að
rosalega stór hópur hafi endað tíma-
bilið með skíðabros í hjarta,“ segir
Magnús. skulih@mbl.is
Rúmlega 160 þúsund
manns sóttu skíðasvæðin
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Mest sótta skíðasvæðið.
Veturinn í ár
svipaður og í fyrra
Líf og fjör verður í Eldey þróun-
arsetri kl. hálfátta í kvöld en þá
fer fram kynning á fjölbreyttri
hönnun. Viðburðurinn hefur hlotið
yfirskriftina Heklugos á Suður-
nesjum og er markmið hans að
kynna og efla hönnun á Suður-
nesjum en einnig verða veittir
styrkir til menningarverkefna.
Sett verður upp tískusýning en
meðal þeirra sem sýna eru Mýr
design, Spiral, Lúka Art og Líber
en að auki munu nýir hönnuðir
koma fram í fyrsta sinn. Boðið
verður m.a. upp á léttar veitingar
en sérstakur heiðursgestur er
Dorrit Moussaieff forsetafrú.
Heklugos haldið á
Suðurnesjum í kvöld
Í umsögn í Morgunblaðinu í fyrra-
dag um tónleika Bryans Ferrys í
Hörpu á sunnudagskvöld láðist að
geta þess að þeir mörkuðu upphaf
Nelson Mandela-daga á Íslandi.
ÁRÉTTING
Nelson Mandela-
dagar
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
til vinnu og frístunda
Fatnaður og skór
25180
Litir: Svartur/hvítur
Kr. 7.990
25170
Litir: Ljósblátt/dökkblátt
Kr. 6.990
25130
Litir: Svart/hvítt
Kr. 7.690
25220
Litir: Rautt/sand/blátt
Kr. 7.990
25090
Litir: Svart/hvítt/blátt
Kr. 10.900
00314
Litir: Svart/hvítt/
rautt/blátt
Kr. 11.900
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2878, praxis.is
Opið mán.-fös. kl. 11.00-17.00, lokað á laugard.
25200
Litir: Svart/hvítt
Kr. 8.600
Erum á sama stað
og Friendtex
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Steypugljái á
stéttina í sumar
SUPERSEAL
TOP COAT
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
M
b
l1
35
21
46
föstudag og langan laugardag
Sumar-
sprengja
25% afsláttur
af buxum, pólóbolum
og skyrtum
Laugavegi 63 • S: 551 4422
TAIFUN
20% AFSLÁTTUR
Fimmtudag - laugardag
(Meran – Navarra – Milano)
(sjá Laxdal.is)