Morgunblaðið - 09.06.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012
Þú grípur einfaldlega pakka af uppáhalds
Maryland kexinu þínu og gætir um leið eignast
ER
VINN
INGS
SKÍFA
Í PAK
KANU
M
ÞÍNU
M?
VINNUR ÞÚ GLÆSILEGT
WEBER GRILL?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hún er glæsileg á að líta, þyrlan sem Þyrluþjón-
ustan hf. festi nýverið kaup á. Gripurinn kemur
frá Bandaríkjunum og tekur sex farþega og einn
flugmann. Hana prýða leðursæti enda þægindi
mikilvæg fyrir þyrlu sem fyrst og fremst er ætl-
uð til farþegaflutninga. „Hún mun aðallega fara
í útsýnisflug með ferðamenn, það er sívaxandi
markaður,“ segir Eggert Akerlie, flugrekstr-
arstjóri Þyrluþjónustunnar. „Úr þyrlu er hægt
að fá allt annað og magnaðra sjónarhorn á land-
ið,“ segir Eggert. Aðspurður hvað herlegheitin
kosta svarar hann því hlæjandi til að „hún kosti
allt of mikið“. Fæst loks til að gefa upp að verð-
miðinn hafi hljóðað upp á um þrjár milljónir doll-
ara eða um 390 milljónir íslenskra króna.
Festu kaup á sjö manna lúxusþyrlu
Morgunblaðið/RAX
Þyrluþjónustan finnur stóraukinn áhuga ferðamanna á að sjá landið frá óvenjulegu sjónarhorni
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Færeyska seglskútan Westward
Ho TN 54 siglir nú til Færeyja með
átta Íslendinga og átta Færeyinga
innanborðs, en er heilum sólar-
hring á eftir áætlun. Áhöfnin er 16
manns en meðal farþega er Björk
Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi. Ís-
lendingarnir fljúga heim á mánu-
dag svo heimsóknin verður í
styttra lagi.
Færeyingar sigldu skútunni til
Íslands fyrir Hátíð hafsins í
Reykjavík um síðustu helgi og nú
er henni siglt aftur til Færeyja á
menningarnótt í Þórshöfn. Í
tengslum við hana verður sér-
stakur Íslandsdagur bæði í kvöld
og á morgun. Því er ljóst að áhöfn-
in missir af fyrsta degi hátíð-
arinnar.
„Við treystum því að þau verði
komin á sinn stað hér í Færeyjum
þegar móttökuathöfn fer fram á
laugardag,“ segir Gísli Gíslason,
hafnarstjóri Faxaflóahafna. Hann
segir ástæðu tafarinnar vera aust-
an- og norðaustan brælu. „Þau
koma þó einhvern tímann á morg-
un [í dag]. Allt er í góðu um borð
og allir kátir,“ segir Gísli sem
sjálfur er staddur í Færeyjum.
Ferðin hefur ekki einungis þann
tilgang að sækja menningarnótt
Færeyja því skrifað verður undir
viljayfirlýsingu Viðskiptaráðs Ís-
lands og atvinnurekendafélagsins í
Færeyjum um stofnun versl-
unarfélags Íslands og Færeyja. Að
sögn Gísla er um tímamót að ræða.
„Verslunarfélög eru milli Íslands
og margra annarra landa, en slíkt
félag hefur aldrei verið stofnað við
Færeyinga. Það er löngu tímabært
og á morgun verður lagður horn-
steinn að því,“ segir hann.
Færeyska fleyið er allt hið glæsi-
legasta þrátt fyrir háan aldur, en
það er 128 ára gamalt og var smíð-
að í Grimsby 1884 og selt til Fær-
eyja árið 1895.
Aðspurður hvort sólarhrings-
seinkunin valdi ekki vonbrigðum í
eyjunum segir Gísli svo ekki vera.
„Í Færeyjum er það ekki mikill
tími, þeir segja að þetta sé „einki
problem“ því það komi alltaf meiri
tími.“
Færeyska fleyið sólarhring of seint
Borgarfulltrúi meðal farþega í siglingu á færeyska
menningarhátíð Leggja drög að stofnun verslunarfélags
Morgunblaðið/Ernir
Seglskútan Westward Ho í Reykjavíkurhöfn á Hátíð hafsins um síðustu
helgi. Skútan hreppti sterkan mótvind á leið sinni til Færeyja.
Borgarráð hefur samþykkt kaupsamning Reykjavíkur-
borgar um kaup á Alliance-húsinu að Grandagarði 2.
Húsið stendur á 3.569 fermetra lóð sem fylgir með í kaup-
unum. Athygli vekur að Reykjavíkurborg seldi fjárfest-
ingarfyrirtæki Ingunnar Wernersdóttur húsið og lóð árið
2007 á 925 milljónir króna. Söluandvirði hússins hefur því
lækkað um sem nemur 585 milljónum.
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eigna-
sviðs, segir ástæðu lækkunarinnar einfalda. „Ég kann
ekki aðra skýringu á þessu en að staðan var þannig árið
2007 að fólk átti nægt fé og var framkvæmdaglaðara.“ Til
stóð að rífa húsið árið 2006 en komið var í veg fyrir það
með friðun árið 2007.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við atkvæða-
greiðslu um kaupin. Að sögn Júlíusar Vífils Ingvarssonar
borgarfulltrúa byggist sú afstaða á því áliti að þeir „telja
ekki hlutverk borgarinnar að kaupa upp eignir, sérstak-
lega á þessum tímum“. gudrunsoley@mbl.is
Reykjavíkurborg kaupir
Alliance-húsið aftur
Morgunblaðið/Júlíus
Bjargað Til stóð að rífa Alliance-húsið árið 2006 en hætt
var við það þegar húsið var friðað árið á eftir.
Borgin seldi húsið 2007
Lækkar um 585 milljónir
Ákveðið hefur
verið að þing-
fundur verði
haldinn í dag kl.
10:30. Ekkert
samkomulag er
um þinglok, að
sögn Ragnheiðar
Elínar Árnadótt-
ur, þingflokks-
formanns sjálf-
stæðismanna, og
verður haldið áfram að ræða frum-
varp sjávarútvegsráðherra um veiði-
gjöld. Þær umræður voru enn á dag-
skrá í gærkvöldi.
Önnur umræða um veiðigjöld
hófst 1. júní og málið hefur því verið
rætt í sjö daga. Tæplega áttatíu mál
ríkisstjórnarinnar bíða afgreiðslu,
þar á meðal frumvarp um breyt-
ingar á kvótakerfinu og rammaáætl-
un um vernd og nýtingu orkulinda,
einnig tillagan um Vaðlaheiðargöng.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði í hádegisfréttum rík-
isútvarpsins í gær að stjórnvöld ætl-
uðu ekki að ganga lengra til að mæta
sjónarmiðum útgerðarmanna. Al-
rangt væri að ekki hefði þegar verið
reynt að koma til móts við sjónarmið
þeirra. kjon@mbl.is
Ekkert
samkomu-
lag á þingi
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Haldið áfram að
ræða um veiðigjöldin