Morgunblaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 44
44 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012
„Ég vinn meðal annars sem flugþjónn fyrir Icelandair og nú hittist
svo á að ég verð í tveggja daga vinnustoppi ásamt tveimur vinkon-
um mínum í Toronto. Við ætlum að gera eitthvað brjálæðislega
skemmtilegt,“ segir Draupnir Rúnar Draupnisson, sem starfar með-
al annars sem fararstjóri og kennari auk flugþjónsstarfsins, en hann
fagnar 36 ára afmæli sínu í dag. Hann hefur nokkrum sinnum komið
til Toronto sem hann segir dásamlega borg. Þremenningarnir ætla
að halda út á eyju þar, hjóla, sóla sig, borða og skemmta sér.
Draupnir hefur starfað sem flugþjónn á þrettánda ár og því er
þetta ekki í fyrsta skipti sem hann eyðir afmælisdeginum á erlendri
grundu. „Ég hef verið rosalega oft erlendis á afmælinu mínu. Í fyrra
var ég til dæmis í ferð sem fararstjóri á Phi Phi-eyjum á Taílandi.
Þar átti ég æðisgenginn afmælisdag,“ segir hann.
Það hefur verið í nógu að snúast fyrir Draupni undanfarið en
hann skilaði nýverið meistararitgerð og rannsókn í blaða- og frétta-
mennsku við Háskóla Íslands. Þar skoðaði hann umfjöllun fjölmiðla
um þróunarmál frá hruni.
Sjálfur hefur hann meðal annars starfað sem sjálfboðaliðskennari
á Indlandi auk þess að leysa af sem skólastjóri í Grímsey í fyrra.
Hann hefur því á ferilsskránni að hafa bæði kennt á einum fjölmenn-
asta stað í heimi og einum þeim fámennasta. kjartan@mbl.is
Draupnir Rúnar Draupnisson er 36 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólhlíf Það verður vonandi ekki þörf fyrir regnhlíf í Toronto því þar
hyggur Draupnir á að sóla sig með vinkonum sínum í dag.
Hefur kennt bæði á
Indlandi og Grímsey
Þ
orsteinn Ingi fæddist í
Hafnarfirði 10.6. 1962
og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Flensborg 1981 og
Civ.Ing-prófi frá Aalborg
Universitetscenter 1988.
Þorsteinn var rekstrarráðgjafi
hjá Iðntæknistofnun Íslands 1988-
89, verkefnastjóri hjá Birtingi hf. og
þróunarstjóri hjá Vaka hf. 1989-92,
verkefnastjóri lokaverkefna í
iðnaðartæknifræði við Tækniskóla
Íslands 1989-95, ráðgjafi hjá Þróun-
arfélagi Íslands 1992, fram-
kvæmdastjóri Gagnalindar hf. 1993-
2000, markaðsstjóri í sérverkefni
hjá Samrás ehf. við að markaðssetja
íslenskan rafeindabúnað í breytta
jeppa í Bandaríkjunum 2000-2001.
Þorsteinn var markaðsstjóri hjá
Ískerfi 2001-2003 og hefur verið
framkvæmdastjóri Thor Ice ehf. frá
2003. Fyrirtækið selur búnað til ísk-
rapsframleiðslu sem einkum er not-
að í sjávarútvegi og fyrir fiskeld-
isstöðvar. Um 90 prósent vörunnar
eru seld úr landi en fyrirtækið fékk
viðurkenningu frá Samtökum iðn-
Þorsteinn Ingi Víglundsson, framkv.stj. Thor Ice, er 50 ára
Skíðaferð Fjölskyldan slakar á í ljósaskiptunum í Hlíðarfjalli. Akureyri, Eyjafjörður og Vaðlaheiði í baksýn.
Fjölskyldumaðurinn
og náttúrubarnið
Vöfflunefnd Bústaðakirkju Sóknarbörn fá vöfflur á fyrsta sunnudag í að-
ventu. Frá vinstri: Þorsteinn, Hafsteinn Guðmundsson, Bogga ráðskona, Þrá-
inn Þorvaldsson, Árni Sigurjónsson, Gunnar Sigurðsson og Tómas Eiríksson.
Reykjavík Lilja Margrét fæddist 19. ágúst kl.
6.22. Hún vó 2.705 g og var 48 cm löng. Foreldrar
hennar eru Thelma Þorsteinsdóttir og Ólafur Al-
exander Jóhannsson.
Nýir borgarar
Lilja Guðjóns-
dóttir er átt-
ræð í dag, 9. júní. Hún verð-
ur að heiman á afmælis-
daginn en laugardaginn 23.
júní verður hún með kaffi í
Akurgerði 25, Vogum, frá
kl. 15 og fram eftir degi. All-
ir vinir og vandamenn, auk
allra hinna velkomnir að
koma og fagna með henni.
Árnað heilla
80 ára
Guðrún Elín Jóhanns-
dóttir og Helgi Laxdal
Magnússon eiga fimm-
tíu ára brúðkaups-
afmæli á morgun, 10.
júní. Þau giftust á Ás-
hóli í Eyjafirði. Í tilefni
áfangans fóru þau í
ferð til Ísreals á dög-
unum.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
528
Kubota dísilmótor með 36
lítra vökvadælu, 200 bar
Hæð: 1,9 m
Breidd: 1,2 m
Þyngd: 1200 kg
Lengd: 2,5 m
Lyftihæð: 2,8 m
Lyftigeta: 950 kg
Hestöfl: 28
Hæstánægður með Avant vélina!
Stofnfiskur hf. hefur fyrir allnokkru tekið Avant 528 í
sína þjónustu. Sölvi Sturluson stöðvarstjóri í Fiskalóni,
Ölfusi, er hæstánægður með Avant vélina sem reynst
hefur mjög vel og svo sannarlega staðið undir nafni
sem liðléttingur hjá starfsmönnum Fiskalóns, sem
er ein af sjö starfsstöðum Stofnfisks ehf.
Hér er vélin að lyfta 700
lítra kari sem er meðal
annars notað við að flytja
lifandi fisk milli kerja.