Morgunblaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012 SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslenska bridslandsliðið er á förum til Dublin á Írlandi til að taka þátt í 51. Evrópumótinu í sveitakeppni sem hefst á þriðjudaginn kemur. Landsliðið ætlar að freista þess að gera atlögu að einu verðlaunasæt- anna og eins að öðlast rétt til þátt- töku í næsta heimsmeistaramóti. „Evrópumótið er eitt af aðalmót- unum okkar og er mjög mikilvægt,“ segir Björn Eysteinsson, fyrirliði og landsliðseinvaldur í brids. Þátt- tökuþjóðirnar eru 34 talsins og mis- jafnlega sterkar en nú finnast ekki lengur neinar Evrópuþjóðir sem kalla má „lélegar“, að sögn Björns. Búast má við að 10-12 þjóðir komi til með að berjast um efstu sætin. Á mótinu er spilað um gull-, silfur- og bronsverðlaun og eins fá liðin í 5-6 efstu sætunum mögulega rétt til þátttöku í heimsmeistaramótinu. Björn segir að Evrópa sé gríðarlega sterk þegar kemur að brids. Yfir- leitt eru heimsmeistararnir frá ein- hverri Evrópuþjóð eða frá Banda- ríkjunum. Tvær kynslóðir keppenda Í landsliðinu í brids sem nú fer til Írlands eru þrír spilarar sem voru í landsliðinu sem vann heimsmeist- aratitilinn árið 1991. Það eru þeir Aðalsteinn Jörgensen, Jón Bald- ursson og Þorlákur Jónsson. Auk þeirra eru í landsliðinu yngri liðs- menn, það er þeir Bjarni Einarsson, Magnús Magnússon og Þröstur Ingimarsson. Björn segir að lands- liðið sé skipað mönnum með mikla reynslu. Yngri mennirnir eru orðnir mjög reyndir og hafa náð heil- miklum árangri á síðustu 10-15 ár- um með þátttöku í Evrópumótum og Ólympíumótum. Björn er fyrirliði en spilar ekki að þessu sinni. Hann var hins vegar spilandi landsliðsfyrirliði á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Bridslandsliðið hefur stundað stífa þjálfun undanfarið. Þar á með- al hafa liðsmenn farið í langar göng- ur, allt upp í 15 km í einu. Síðustu þjálfunargöngunni lauk með máls- verði í boði Úlfars á Þremur frökk- um, en það er orðin hefð að enda æfingatörnina þar. Björn sagði mik- ilvægt að þjálfa vel fyrir stórmót á borð við Evrópumótið. „Þetta er fyrst og fremst mikið andlegt álag. Til að geta staðist það þarf líkaminn að vera vel und- irbúinn, þjálfaður, sterkur og hraustur til að geta stutt heilabúið,“ segir Björn. Mótið stendur í nærri tvær vikur og menn geta þurft að sitja að spilum allt upp í 10-12 klukkustundir á dag. „Ef hver maður spilar t.d. 60 spil á dag og fær 10 alvöru verkefni í hverju spili þá er hann að fá 600 verkefni á dag sem heilinn þarf virkilega að vanda sig við að leysa,“ segir Björn. Hann sagði verkefnin geta verið miklu fleiri en þetta. Menn verði því að gæta vel að nær- ingu og hvíld meðan á mótinu stend- ur og þurfi á öllu sínu að halda. Setja stefnuna á toppbaráttuna  Landsliðið í brids er á förum á Evrópumót á Írlandi  Liðið hefur lokið strangri þjálfun sem m.a. fólst í löngum gönguferðum  Stefnt er á verðlaunasæti og þátttökurétt á heimsmeistaramóti Morgunblaðið/Sigurgeir S. Bridslandsliðið Stífar æfingar hafa staðið yfir hjá landsliðinu. F.v. Þröstur Ingimarsson, Aðalsteinn Jörgensen, Magnús Magnússon, Björn Eysteinsson fyrirliði, Bjarni Einarsson, Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson. Íslendingar hafa tekið þátt í Evrópumótinu í bridge í meira en hálfa öld. Fyrsta Evr- ópumótið var haldið árið 1932 í Seveningen í Hollandi. Mótin voru haldin árlega til að byrja með. Síðari heimsstyrjöldin setti svo strik í reikninginn og lágu mótin niðri í nokkur ár. Að stríðinu loknu, árið 1948, var þráðurinn tekinn upp að nýju. Ákveðið var 1960 að Evr- ópumótin skyldu fara fram ann- að hvert ár. Mótin voru haldin þegar ártalið endaði á oddatölu þar til fyrir sex árum að þau voru færð yfir á jöfnu töluna. Fyrsta heimsmeistaramótið í bridge var haldið árið 1951. Ís- lendingar unnu heimsmeist- aratitilinn árið 1991 og fengu verðlaunagripinn Bermúdaskál- ina að launum. Björn Eysteins- son var þjálfari heimsmeist- aranna og í liðinu voru Aðalsteinn Jörgensen, Guð- laugur R. Jóhannsson, Guð- mundur Páll Arnarson, Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson og Örn Arnþórsson. Bermúda- skálin HEIMSMEISTARAR 1991 JÁKVÆÐ MERKI ÚR ATVINNULÍFINU Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku atvinnulífi. Fjölmörg fyrirtæki eru að ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Arion banki fagnar þessum góða árangri. Kynntu þér málið á arionbanki.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.