Morgunblaðið - 09.06.2012, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Liðlega annar hver Íslendingur,
eða 56% landsmanna, telur sig
ekki vel upplýstan um Evrópumál
en þrír af hverjum fjórum telja
landa sína heldur ekki vera al-
mennt vel upplýsta um þau mál, ef
marka má nýja Eurobarometer-
skoðanakönnun sem kynnt var á
málþingi í Háskólanum á Akureyri
í gær. Munurinn bendir til þess að
sjálfsálit sumra sé því við góða
heilsu hvað þennan þátt varðar.
Könnunin var gerð í árslok 2011.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins í Brussel hefur látið
gera kannanir af þessu tagi síðan
1973 og eru þær liður í því að
kanna viðhorf almennings í aðild-
arríkjum ESB. Almenningur í um-
sóknarríkjum eins og Íslandi er
einnig spurður.
Miðaldra og eldri Íslendingar
nota einkum sjónvarp og blöð til að
fá fréttir af Evrópustjórnmálum,
yngra fólkið netmiðla. Fleiri Ís-
lendingar álíta sig vel upplýsta um
Evrópumál en almenningur í lönd-
um ESB gerir og hækkaði þetta
hlutfall talsvert hér frá fyrri könn-
un árið 2010. Og fleiri karlar en
konur telja sig vel upplýsta um
Evrópumál; ungt fólk er sáttara en
eldra fólk við eigin þekkingu.
Margir nota samfélagsmiðla
til að fræðast um stjórnmál
Almenn fjölmiðlanotkun var
könnuð, hvernig fólk nálgast upp-
lýsingar og hvers konar miðla það
notar. Íslendingar eru Evrópu-
meistarar í notkun samfélags-
miðla, 54% svarenda í könnuninni
nota þá nær daglega. Fjórði hver
notar samfélagsmiðla til að afla sér
frétta af innlendum stjórnmálum.
Að meðaltali notar fimmtungur al-
mennings sér samfélagsmiðla nær
daglega í löndum ESB. Aðeins
fjórar þjóðir lesa meira blöð en við
en hvergi nota hlutfallslega jafn
margir fréttavefi.
En treystir fólk upplýsingum
um stjórnmál sem birtast á Fa-
cebook og öðrum samfélagsmiðl-
um? Um 72% Íslendinga í könn-
uninni sögðu þessa miðla vera
nútímalega leið til að fylgjast með
en jafnframt sögðu 68% að ekki
væri hægt að treysta þessum upp-
lýsingum. Yngsti aldurshópurinn í
þýðinu var mest ósammála því að
upplýsingunum væri illa treyst-
andi.
Eins og oft er reyndin í könn-
unum koma þverstæður í ljós.
Þannig nota Íslendingar opinbera
vefi stofnana minna en aðrir til að
fræðast um stjórnmál þótt þorri
aðspurðra segist treysta þeim bet-
ur en öðrum vefsvæðum. Er þetta
traust hvergi jafn mikið í hinum
Evrópuríkjunum.
Hafa áhyggjur
af vanþekkingu
annarra á ESB
Nota samfélagsmiðla meira en aðrir
Morgunblaðið/RAX
Skilaboð Mótmæli gegn ESB við
þingsetningu í Reykjavík.
Nota sjónvarpsfréttir
» Um 43% aðspurðra sögðust
fá sínar fréttir af evrópskum
stjórnmálum í sjónvarpi en
34% á netinu.
» Búseta skipti miklu máli í
þessu samhengi. Nær helm-
ingur íbúa í Reykjavík notar
netið til að fræðast um Evr-
ópustjórnmál en aðeins 15%
fólks á Norðausturlandi.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Lundavarpið í Vestmannaeyjum er
byrjað og það á eðlilegum tíma. Þar
að auki hefur verið orpið í fleiri holur
en undanfarin ár. Erpur Snær Han-
sen, líffræðingur og forstöðumaður
vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu
Suðurlands, segist þó ekki þora að
vera of bjartsýnn. Vísbendingar séu
um að mikið sé um að egg séu afrækt.
Eins og kunnugt er hefur lunda-
varp gengið hörmulega sunnanlands
og vestan síðustu ár og m.a. er talið
að lundavarp hafi misfarist með öllu í
Vestmannaeyjum í fyrra.
Að þessu sinni byrjaði lundinn að
verpa í Eyjum um síðustu mánaða-
mót, mun fyrr en undanfarin ár.
Erpur Snær og samstarfsmenn
hans hafa kannað nokkrar lunda-
byggðir í Eyjum og niðurstaðan er sú
að egg eru í um 37% af lundaholum
og það hlutfall aukist vonandi. Á hinn
bóginn séu vísbendingar um að um
helmingur af lundunum hafi yfirgefið
holurnar og gefist upp á varpinu.
Erpur og félagar hans ætla eftir helgi
að fara með hitamæli í holurnar til að
kanna hversu mörg egg eru köld og
fúl og þá skýrist myndin betur. Í
fyrra hafi um 20% lundanna reynt
varp en engum tekist að klekja út
eggi. „Persónulega, þá er ég ekki of
bjartsýnn,“ segir Erpur.
Lundavarp hefur gengið betur
norðanlands og þaðan berast fregnir
af því að lundinn sé töluvert í sandsíli,
loðnu og flekkjamjóna.
Árlega stýrir Erpur Snær rann-
sóknarferðum í lundabyggðir víðs
vegar um landið, svokölluðu lunda-
ralli. Það hófst í Dyrahólaey fyrir
þremur dögum og kom þá í ljós að
varpið var hafið, einnig á eðlilegum
tíma, og um helmingur holanna var í
kominn í ábúð. Í dag verður farið í
Akurey á Kollafirði.
Lundavarpið byrjar betur
en of snemmt að gleðjast
Morgunblaðið/Eggert
Íhugull Vonast eftir betri tíð.
Varpið byrjar á réttum tíma Lundarall einnig byrjað
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tæplega 2.200 erlendir ríkisborg-
arar voru búsettir í Breiðholti um
áramót og hefur þeim fjölgað um
hátt í 1.300 á síðasta áratug. Fleiri
bjuggu í Austurbæ Reykjavíkur eða
hátt í 2.600 og hafði þeim fjölgað um
1.300 í hverfinu síðan árið 2002.
Samanlagt búa því orðið 4.800 er-
lendir ríkisborgarar í þessum tveim
hverfum og gætu þeir því myndað
fimmta fjölmennasta bæjarfélagið á
landsbyggðinni, á eftir Akureyri,
Keflavík, Akranesi og Selfossi.
Þetta má lesa út úr tölum Hag-
stofu Íslands um fjölda erlendra
ríkisborgara í höfuðborginni eftir
hverfum á árunum 2002 til 2012.
Vesturbær er þriðja fjölmennasta
hverfi erlendra ríkisborgara í
höfuðborginni en þar bjuggu ríflega
800 árið 2002 en um 1.500 um ára-
mótin.
Mikil breyting á tímabilinu
Hlutfall erlendra ríkisborgara í
Austurbænum var 13,2% um ára-
mótin samanborið við 6,7% árið
2002. Lætur því nærri að áttundi
hver íbúi Austurbæjar sé nú af er-
lendu bergi brotinn. Hlutfallið í
Breiðholti var 10,5% hinn 1. janúar
sl. en var 4,1% fyrir tíu árum.
Hæst er hlutfallið á Kjalarnesi
eða 13,8% en á bak við það voru 110
erlendir ríkisborgarar um áramótin.
Samkvæmt Hagstofu Íslands
fluttust hingað 600 erlendir ríkis-
borgarar á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs en 450 frá landinu.
Eru aðfluttir því aftur orðnir
fleiri en brottfluttir eftir að brott-
fluttir voru um hríð fleiri í kjölfar
efnahagshrunsins.
Hlutfall erlendra ríkisborgara í
einstökum hverfum borgarinnar
kann því að hækka haldi sú þróun
áfram, en það er aðeins ágiskun.
Alls höfðu 21.143 einstaklingar
erlent ríkisfang 1. janúar 2011 en
20.957 hinn 1. janúar í ár en þeir
voru 9.850 sama dag 2002.
Eins og sjá má á kortinu er hlut-
fall erlendra ríkisborgara lægst í
Grafarholti eða um 2,7% og ber þá
að hafa í huga að íbúar hins nýja
hverfis voru aðeins um 250 árið
2002.
Erlendir ríkisborgarar
í Reykjavík eftir hverfum 2002-2012
Loftmyndir ehf.
Hlutfall erlendra
ríkisborgara
2002 2012
Vesturbær 5% 9,2%
Austurbær 6,7% 13,2%
Norðurbær 3,6% 6,1%
Suðurbær 2,8% 5,5%
Árbær 2,5% 5%
Breiðholt 4,1% 10,5%
Grafarvogur 1,8% 3,2%
Borgarholt 1,9% 3,1%
Grafarholt 1,2% 2,7%
Kjalarnes 6,9% 13,8%
Óstaðsettir 8,4% 6,6%
Mannfjöldi 1. janúar.
Austurbær
2002 2012
1.261
2.579
Norðurbær
2002 2012
478
822
Suðurbær
2002 2012
389
775
Árbær
2002 2012
221
525
Breiðholt
2002 2012
890
2.159
Grafarvogur
2002 2012
146 237
Borgarholt
2002 2012
189 321
Grafarholt
2002 2012
3 152Óstaðsettir
2002 2012
39 19
Kjalarnes
2002 2012
52 110
Vesturbær
2002 2012
812
1.492
Miðað er við hverfaskiptingu Borgarvefsjár, vefs Reykjavíkurborgar. Vesturbær er skilgreindur sem hverfi 1,Austurbær sem
hverfi 2, Miðborg, og hverfi 3, Hlíðar. Norðurbær er skilgreindur sem hverfi 4, Laugardalur, og Suðurbær sem hverfi 5, Háaleiti.
Breiðholt er hverfi 6, Breiðholt, og Árbær er samnefnt hverfi 7.Grafarvogur er sýndur sem samnefnt hverfi 8 og er Borgarholt,
sem Hagstofan skilgreinir svo, hér haft norðarlega í Grafarvogi.Kjalarnes er samnefnt hverfi 9. Loks er Grafarholt hér merkt inn
á hverfi 10, Úlfarsfell, sem Borgarsvefsjá skilgreinir svo. Hjá borginni fengust þær upplýsingar að líklega væri úrelt að miða við
Borgarholt enda væri það ekki lengur álitið sér hverfi í skipulaginu.
Áttundi hver Austur-
bæingur af erlendu bergi
2.600 erlendir ríkisborgarar búa í borgarhlutanum
Bláberin fást í apótekum,
heilsuhúsum og Fjarðakaupum Sími 555 2992 og 698 7999
Bláber
Nýtt á markaðnum frá Polargodt
Í bláberjum eru andoxunarefnin C-vítamín
og E-vítamín sem hindra myndun skaðlegra
sindurefna í frumum líkamans. Þessi efni
tengjast hrörnun og þróun ákv. sjúkdóma t.d.
krabbameins, æðakölkunar og skýs á auga.
(heimild: Landlæknisembættið , Lýðheilsustöð;
www.landlaeknir.is/pages/629)
Bláber geti m.a. haft áhrif á:
• Náttblindu - nætursjón - gláku
• Sjónskerpu • Sykursýki • Minnisleysi
• Kólesteról