Morgunblaðið - 09.06.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2012
FRÉTTASKÝRING
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG og sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, átti í árslok 2004 hlutafé
að nafnvirði 1.710.625 króna í Hrað-
frystistöð Þórshafnar, eða sem svar-
ar 0,35% af hlutafé í félaginu, sem
var afskráð í Kauphöllinni 2005.
Bróðir hans, Ragnar Már, átti bréf í
félaginu fyrir 1.450.554 kr., alls 0,3%
hlutafjár, og faðir þeirra, Sigfús
Jóhannsson, bréf fyrir 1.133.320 kr.,
eða 0,23% hlutafjár. Saman áttu
feðgarnir því bréf fyrir 4,29 milljónir
kr. að nafnvirði hinn 31. desember
2004 og var sameiginlegur hlutur
þeirra 0,88%.
Markaðsverðið 15,8 milljónir
Fram kemur á vef Kauphallarinn-
ar að gengi bréfanna var 3,68 hinn
23. febrúar 2005 og var markaðsverð
bréfa feðganna því um 15,8 milljónir
skömmu áður en Steingrímur
greindi frá því að hann hefði selt
bréfin í apríl sama ár.
Jafngildir það 26,247 milljónum
króna í dag, samkvæmt framreikn-
ingi Seðlabanka Íslands, og er hlutur
Steingríms þar af 10,45 milljónir.
Má geta þess að félagið skilaði 121
milljón króna í hagnað árið 2004.
Athygli vekur að á þeim tíma sem
Steingrímur og náin skyldmenni
áttu hlut í félaginu var hann eindreg-
inn andstæðingur auðlindagjalds.
Þessi afstaða kom skýrt fram í bók
Steingríms, Róið á ný mið: Sóknar-
færi íslensks sjávarútvegs, sem kom
út árið 1996. Á blaðsíðu 74 er að finna
undirkaflann Sértæk skattlagning.
Segir þar meðal annars: „Hin grund-
vallarspurningin er hvort sann-
gjarnt sé að leggja sértækan skatt á
sjávarútveginn. Rökin eru að það sé
eðlilegt að útgerðarfyrirtækin greiði
fyrir aðgang sinn að sameiginlegum
auðlindum þjóðarinnar,“ skrifaði
Steingrímur og skal svo gripið niður
á blaðsíðu 75 í bókinni:
„Óréttlætanleg aðgerð“
„Auðlindaskattur á sjávarútveg-
inn einan yrði sértæk skattlagning
og því óæskileg og í raun óréttlæt-
anleg aðgerð út frá öllum viður-
kenndum skattapólitískum viðmið-
unum … Rétt er að minna á í þessu
sambandi að íslenskur sjávar-
útvegur keppir án nokkurra ríkis-
styrkja eða niðurgreiðslna við þræl-
styrktan atvinnuveg í nágranna-
löndunum. Er ekki frekar ástæða til
þess að hrósa sjávarútveginum fyrir
að standast þessa erfiðu samkeppni,
sem hann hefur verið og er í, gagn-
vart t.d. fiskvinnslu Evrópusam-
bandsríkjanna, heldur en skatt-
leggja hann sérstaklega. Þó mörg
sjávarútvegsfyrirtæki séu stór á
okkar mælikvarða eru þau agnarsmá
úti í hinum stóra heimi,“ skrifar
Steingrímur sem lýkur umræddum
undirkafla með þessum orðum:
„Hugmyndir sem heyrst hafa um
að hægt sé að taka marga milljarða
eða jafnvel milljarða tuga, svokall-
aðan fiskveiðiarð, út úr sjávarútveg-
inum, eru algerlega óraunhæfar.“
Minntist ekki á gjöldin
Tíu árum síðar, árið 2006, gaf
Steingrímur J. út bókina Við öll: ís-
lenskt velferðarsamfélag á tímamót-
um. Steingrímur fjallar þar mikið
um umhverfismál og er að finna
undirkaflann Vistvænn útvegur það
sem koma skal. Er þar fjallað um ís-
lenska útgerð út frá sjónarmiði um-
hverfisverndar og lætur Steingrím-
ur ógert að ræða um veiðigjöldin.
Verður ekki betur séð við hraða
yfirferð yfir Við öll að þar sé hvergi
minnst á slíka skattlagningu.
Hann víkur hins vegar að bókinni
Róið á ný mið í formálanum með
þessum orðum: „Sjálfur er ég býsna
stoltur yfir því hve vel þau megin-
sjónarmið sem ég setti fram með
bókinni hafa staðist tímans tönn.“
Þurftu lesendur Við öll því að geta
í eyðurnar þegar afstaða formanns-
ins til veiðigjalda var annars vegar.
Veiðigjöldin voru Steingrími hins
vegar ofarlega í huga þegar hann tók
til máls fundi um veiðigjald á Akur-
eyri árið 1997, árið eftir að Róið á ný
mið kom út. Sagði Steingrímur þá
m.a.:
„Loks er það atriði sem kannski
hefði átt að byrja á, þ.e. að ég tel
margar miklu betri leiðir til að leysa
þau vandamál sem stuðningsmenn
veiðileyfagjalds telja sig ætla að
leysa með veiðileyfagjaldi. Því þá
að fara út í þessi ósköp. Það er
hægt að skattleggja hagnað fyrir-
tækja með almennum aðferðum,“
sagði Steingrímur m.a., að því er
fram kemur í frásögn sjávar-
útvegsblaðsins Ægi af
fundinum á sínum tíma.
Átti milljónir í útgerðarfélagi
Formaður VG átti hlutabréf í Hraðfrystistöð Þórshafnar Faðir hans og bróðir einnig hluthafar
Var eindregið gegn veiðigjaldi þann tíma sem hann átti bréfin Skipti um skoðun eftir söluna
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Höfnin í Þórshöfn Fjölskylda Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra hefur lengi haft tengsl við sjósókn.
Fjölskylda Steingríms J. Sigfús-
sonar var í áraraðir tengd Hrað-
frystistöð Þórshafnar. Faðir
hans, Sigfús Jóhannsson, átti
lengi lítinn hlut í fyrirtækinu, að
sögn Ragnars Más Sigfússonar,
bróður Steingríms. Þá átti Jó-
hannes Sigfússon bróðir þeirra
einnig hlut í félaginu en hann
sat jafnframt í stjórn þess.
Sjálfur keypti Ragnar Már
fyrst hlut í félaginu upp úr 1970
og minnir hann að Steingrímur
hafi keypt sinn hlut í kringum
1990. Fram kom í tilkynningu
frá Steingrími í apríl 2005 að
hann hefði þá selt hlut sinn í
Hraðfrystistöðinni og lauk þar
með aðkomu hans að félaginu.
Ragnar Már segir þá feðga
aldrei hafa haft mikinn
atkvæðisrétt í félaginu í gegn-
um hlutabréfaeign sína. Fjár-
festingin hafi verið óveruleg.
„Maður keypti í félaginu til að
hafa eitthvað um málin að
segja. Auðvitað græddi maður
aldrei neitt á þessu. Við áttum
aldrei neitt sem skipti máli
þannig að við réðum einhverju
um stefnu eða eitthvað slíkt.
Jóhannes bróður okkar átti um
hríð mun meira en við,“ segir
Ragnar Már og rifjar upp að þeir
bræður hafi allir verið
um hríð til sjós á
Þórshöfn og Stein-
grímur á gamla Font-
inum, togara Hrað-
frystistöðvarinnar.
Ekki náðist í Stein-
grím.
Fjölskyldan
keypti hluti
ÚTGERÐ Á ÞÓRSHÖFN
Steingrímur J.
Sigfússon
Vaskir gluggaþvottamenn voru að störfum við Alþing-
ishúsið í gær. Gluggarnir eru þvegnir reglulega og að
þessu sinni var framhliðin tekin fyrir. Fáeinum eggjum
og skyrdós var kastað í húsið þegar fundað var um
kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar á Austurvelli á
fimmtudag og var sá sóðaskapur að sjálfsögðu fjar-
lægður í leiðinni. Sem kunnugt er þurfti oft að hreinsa
mikið af eggjaslettum og öðrum óhroða af húsinu eftir
mótmælafundi á Austurvelli í kjölfar bankahrunsins
haustið 2008. Einnig voru þá brotnar rúður í húsinu.
Morgunblaðið/Ómar
Þingið sýnir sína bestu hlið
Vorhreingerning í sólinni á Austurvelli í gær
Morgunblaðið/Ómar