SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Qupperneq 8
8 3. júní 2012
GJÖRIÐ
SVO VEL!HÁDEGISMATUR
TIL FYRIRTÆKJA
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu
heimsendingu á hollum og kjarngóðum hádegismat.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.
S teingrímur Þorvalds-son, fyrrverandi skip-stjóri, lýsir fyrsta deg-inum á strandveiðum.
05:00 Dagurinn tekinn
snemma. Logn og tilvalið veður
til siglinga. Í dag á að fara sigl-
andi vestur á Arnarstapa og
hefja strandveiðar. Siglingin yf-
ir Faxaflóa gengur vel þrátt fyrir
mikinn velting á leiðinni.
09:00 Siglt inn á Arnarstapa.
Margir bátar mættir sem ætla að
taka þátt í strandveiðunum.
Margt um manninn og enn
sama góða veðrið. Báturinn
gerður klár og ís tekinn til að
nota yfir daginn.
10:00 Lagt af stað út til
veiða. Þegar við siglum út sjáum
við fljótlega miklar lóðningar.
Ákveðum að prófa og sjá hvort
við fáum nokkurn fisk. Slökum
út öllum fjórum handfærarúll-
unum. Eins og við manninn
mælt, verðum strax varir og
rúllurnar byrja að hífa inn
hvern stórþorskinn á fætur öðr-
um.
12:00 Er hálfnaður með það
magn sem við megum veiða yfir
daginn. Veiðin farin að minnka
og við ákveðum að færa okkur
aðeins. Keyrum bátinn vestur
með ströndinni, framhjá Helln-
um og í átt að Malarrifi. Þar
sjáum við aftur miklar lóðn-
ingar á dýptarmælinum.
Ákveðum að láta rúllurnar síga
og sjá hvort við fáum ekki ein-
hvern fisk á þessum stað. Eins
og áður er greinilega mikið
magn af fiski á ferðinni. Fáum
strax ufsa og þorsk, ótrúlega
stór og fallegur fiskur.
15:30 Erum komnir með hér
um bil það aflamagn sem við
megum fá. Nokkuð erfitt að átta
sig á því úti á sjó hvort þetta
magn sé meira eða minna en
750 kíló. Ákveðum að láta þetta
duga og sigla inn til löndunar.
16:30 Komið inn á Arnar-
stapa. Þar eru fyrir nokkrir
bátar að bíða eftir löndun. Við
fáum okkur loks að borða í
blíðskapar veðri og bíðum ró-
legir þangað til röðin kemur að
okkur.
17:30 Loks komumst við til
löndunar. Körin hífð upp úr
bátnum og allt gengur að ósk-
um. Vigtarmennirnir eru sam-
mála okkur að þetta séu um 750
kíló eins og strandveiðibátur má
veiða á einum degi.
18:30 Erum loks búnir að
ganga frá bátnum og þrífa eftir
daginn. Bindum bátinn í röð
margra annarra smábáta sem
liggja þarna við bryggjuna.
Spjöllum við aðra káta karla
sem höfðu verið á veiðum yfir
daginn. Almenn ánægja með
aflabrögð. Menn lukkulegir með
góðan dag og allir spenntir fyrir
að komast á veiðar aftur daginn
eftir.
18:50 Keyrum yfir á Hellna í
sumarbústaðinn. Veðrið er enn
eins gott og það getur verið.
Ákveðum að grilla lambakótil-
ettur og gera vel við okkur eftir
fínan dag.
21:00 Farið í heitapottinn
og spjallað þar um þjóðfélags-
málin, þó mest talað um afla-
brögð dagsins og hversu
snemma eigi að fara á veiðar
daginn eftir.
23:00 Nú er kominn tími á
að taka á sig náðir enda er fyrir-
hugað að vakna um sexleytið
næsta morgun.
Dagur í lífi Steingríms Þorvaldssonar sjómanns
Steingrímur Þorvaldsson, fyrrverandi skipstjóri, stundar nú strandveiðar en hefur einnig verið á grásleppuveið-
um. Hann naut fyrsta strandveiðitúrsins til fulls og endaði daginn í heita pottinum.
Morgunblaðið/RAX
Afbragðs aflabrögð
Vetur-inn1954-1955
var vísnaþáttur-
inn „Já eða nei“ á
dagskrá í Rík-
isútvarpinu undir
stjórn Sveins Ás-
geirssonar. Var
hann tekinn upp
í Sjálfstæðishús-
inu við Aust-
urvöll (þar sem
nú er veitinga-
staðurinn Nasa)
að viðstöddum
áheyrendum. Þar
leiddu fjórir hag-
mæltir menn
saman hesta sína, þeir Steinn
Steinarr, Guðmundur Sigurðs-
son, Helgi Sæmundsson og Karl
Ísfeld. Botnuðu þeir fyrri helm-
inga sem hlustendur sendu inn.
Einn fyrri helmingurinn var á
þessa leið:
Margur oft í heimi hér
harma sína rekur,
en Steinn botnaði óðar:
gáir lítt að sjálfum sér
og síðan víxil tekur.
Þættirnir nutu mikilla vin-
sælda, og komu vísurnar úr
honum út á bók með sama
nafni, Já eða nei. Þegar þeir
voru að renna skeið sitt á enda,
tilkynnti Sigurður Magnússon,
blaðafulltrúi Loftleiða, að félag-
ið byði þátttakendunum fjórum
og stjórnandanum til
Kaupmannahafnar til að taka
upp einn þátt.
Í Kaupmannahöfn var efnt til
vísnakeppni í Íslendingafélag-
inu 14. maí 1955, þar sem við-
staddir spreyttu sig á að botna
fyrri helming, sem Sveinn Ás-
geirsson kastaði fram:
Oft er kátt við Eyrarsund,
æskan þangað leitar.
Þótt sjálfur höfuðsnillingur-
inn Jón Helgason prófessor
spreytti sig í keppninni, varð
hann að deila fyrstu verðlaun-
um með ungri stúlku, Vilborgu
Dagbjartsdóttir, sem mælti
fram seinni helminginn:
Þó mun Ísland alla stund
elskað miklu heitar.
Má af því tilefni rifja upp orð
Árna Pálssonar prófessors:
„Hvergi hefur Ísland verið elsk-
að eins og í Kaupmannahöfn.“
Athugasemdir og leiðréttingar vel
þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Vísnaþáttur
í útvarpi
17. júní í Kaupmannahöfn fyrir um þremur áratugum.