SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Side 26
26 3. júní 2012
Ég er að skrásetja sögu, hvert árer kafli í þeirri sögu. Það ermikil áskorun að mynda þarna.Það er talað um að þetta sé ann-
ar stærsti fjölmiðlaviðburður í heimi á
eftir Ólympíuleikum hvað varðar ásókn
blaðamanna og ljósmyndara,“ segir Hall-
dór Kolbeins sem hefur myndað kvik-
myndahátíðina í Cannes fyrir Morg-
unblaðið í 14 ár.
„Það tók mig í raun þrjú ár að átta mig
á hátíðinni. Fyrstu árin var ég rosalega
spenntur að fá að fylgjast með stjörn-
unum í nálægð en fljótlega áttar maður
sig á því að þetta er ósköp venjulegt fólk
sem er að vinna sína vinnu.“
Halldór segir mikla baráttu vera milli
ljósmyndara um pláss við rauða dregilinn
enda samkeppnin mikil um að fá sem
bestar myndir. „Ég hef náð að vinna mig
upp í röðinni eftir að hafa farið öll þessi
ár. Í ár var ég á mjög góðum stað sem var
m.a. vegna þess hve margar myndir við
birtum í fyrra. Ef ég sleppti því að mynda
á einni hátíð myndi ég falla mun aftar í
röðina og fá verra pláss við rauða dreg-
ilinn næst þegar ég kæmi.“
Andrúmsloftið á rauða dreglinum
Algengt er að aðstandendur kvik-
myndanna sem sýndar eru á hátíðinni
reyni að vekja athygli á mynd sinni á
rauða dreglinum. „Í ár lék fjöllistakona
listir sínar fyrir frumsýningu mynd-
arinnar Holy Motors. Einnig vakti mikla
athygli þegar leikararnir í Stars Wars
mættu í fullum herklæðum á rauða dreg-
ilinn fyrir nokkrum árum. Menn beita
ýmsum brögðum til að stela senunni á
hátíðinni.“
Stjörnunar leggja misjafnlega mikið
upp úr framkomu sinni á rauða dregl-
inum, þær gefa t.d. mismikið af sér til
ljósmyndara og blaðamanna. „Brad Pitt
var og er mjög faglegur í öllu sem hann
gerir. Hann gefur mikið af sér, það er
áberandi hversu einbeittur hann er á eig-
in frama. Hins vegar er hann laus við alla
stjörnustæla.“
Ekki kom á óvart að spéfuglinn Bill
Murray lét mikið til sín taka fyrir framan
mannhafið. „Hann er frekar óvenjulegur
karakter. Hann á það til að fara í ein-
hvern ham en er þrátt fyrir það mjög
mannlegur.“
Það er hins vegar reynsla Halldórs að
leikstjórar sýni ekki mikil tilþrif á rauða
dreglinum. „Sigurvegari hátíðarinnar í
ár, Michael Haneke, hefur t.d. alltaf verið
frekar þurr á manninn og ekki gefið mik-
ið fyrir athyglina.“
Halldór segir það hafa vakið sérstaka
athygli sína hversu símamyndavélar hafi
verið áberandi á og við rauða dregilinn.
„Það voru allir að taka myndir á símana,
stjörnunar voru ekkert öðruvísi en al-
menningur. Allir voru að festa minningar
á filmu með símunum.“
Audrey Tautou.
Bill Murray
lék á
alls oddi.
Ekki þarf lengur að burðast með myndavél til að ná myndum af átrúnaðargoðunum.
Rauði dregillinn í Cannes
Stjörnurnar skinu skært á kvikmyndahátíðinni í Cannes um síðustu helgi.
Halldór Kolbeins ljósmyndari hefur myndað á hátíðinni í rúman áratug, en
hann er búsettur í nágrannaborginni Nice.
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is
Ljósmyndir Halldór Kolbeins
Þessi fjöllistakona leikur í myndinni Holy Motors. Hún vakti verðskuldaða athygli á rauða dreglinum.
Bak við tjöldin
Jennifer Connelly.
Vinurinn
David
Schwimmer.