SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Page 39
3. júní 2012 39
mann sé háttað. Kom þá margt forvitnilegt í ljós, enda efld-
ist ættfræðiáhugi landans að mun með Íslendingabók, vef-
setrinu sem Tómas Ingi Olrich, þá menntamálaráðherra,
opnaði í janúar 2003.
Í Íslendingabók, sem er enn til staðar og mikið sótt, er að
finna upplýsingar um meira en meginþorra Íslendinga sem
uppi hafa verið frá því fyrsta manntalið var gert árið 1703. Í
heildina inniheldur bókin upplýsingar um meira en 700.000
einstaklinga, sennilega meirihluta þeirra Íslendinga sem
búið hafa á Íslandi frá landnámi.
Framhald þessarar sögu mætti með ýmsu móti segja. Síð-
an Íslendingabók fór í loftið fyrir tæpum áratug eru margir
látnir og annað fólk komið á sjónarsviðið, í samræmi við þá
hringrás lífsins að fólk verður ástfangið, eignast börn og erj-
ar jörðina í samræmi við lögmálið. Og þegar pakkinn er
kominn – mamma, pabbi, börn og bíll – fer fólkið á ættar-
mót. Sér þar og þannig að fólkið sem það gat tengt við sig í
skyldleika á Íslendingabók er þegar allt kemur til alls per-
sónur af holdi og blóði. Ættfræðin er að sumu leyti eins og
piparkökubakstur; það er hægt að búa til karla og kerlingar
úr deiginu en þó ekki hálfmána og stjörnur. Og í eftirleik
ættarmótanna myndast vinabönd yfir lönd og höf; ættingjar
mynda tengsl í gegnum samskiptasíður eins og Facebock.
Upphafið er þó í öllu falli Íslendingabók Kára Stefánssonar
og Íslenskrar erfðagreiningar – gagnagrunnur ættfræðinnar
sem sameinað hefur þjóðina með ótrúlegum hætti.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Ætt-
fræðin
er að
sumu leyti
eins og pipar-
kökubakstur;
það er hægt að
búa til karla
og kerlingar
úr deiginu en
þó ekki hálf-
mána og
stjörnur.
Með Gullpálmann í höndunum! Mikkelsen leyndi ekki gleði sinni í Cannes, enda ekki ástæða til.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu ku nýver-
ið hafa heimsótt byssukúluverksmiðju í
heimalandinu og jafnframt skotæfinga-
svæði ólympíufara þjóðarinnar. Þar mun
hann hafa gefið keppnisfólki góð ráð í því
skyni að það myndi bæta árangur sinn.
Blaðamaður á Guardian hringdi í kjölfar
þessara frétta frá Norður-Kóreu í sendiráð
landsins í London og leitaði svara við þeirri
spurningu hvort leiðtoginn myndi sjá um
formlega þjálfun skotmanna landsins fyrir
Ólympíuleikana. Taldi viðkomandi blaðamað-
ur það greinilega eðlilegt, ekki síst í ljósi
þess að faðir núverandi leiðtoga, Kim Jong-
il, stýrði knattspyrnulandsliðinu í gegnum
„ósýnilegan farsíma“ sem hann hafði sjálfur
fundið upp, á heimsmeistaramótinu 2010,
að því er þjálfari liðsins upplýsti þá.
Þegar blaðamaður Guardian spurði sendi-
ráðsfulltrúann að því hvort Jong-un væri jafn
snjall íþróttamaður og faðir hans var sagður,
var svarið: „Tja, við erum ekki viss.“
Rifja má upp í því sambandi að í fyrsta
skipti sem „Hinn kæri leiðtogi“ Kim Jong-il
lék golf, fór hann fimm sinnum holu í höggi
og lék alls á 38 höggum undir pari á 18 holu
vallarins – að sögn opinberrar fréttastofu
landsins.
Blaðamaður Guardian gerir ráð fyrir að ef
keppendum Norður-Kóreu gengur ekki sem
best á ÓL í London, muni ný gullkorn bætast
í magnaðan afsakanabanka stjórnvalda í
Pyongyang.
Eftir 2:1 tap fyrir Brasilíu á HM í fótbolta
fyrir tveimur árum sagði þjálfari norður-
kóreska liðsins að „flestir“ leikmanna sinna
hefðu orðið fyrir eldingu á æfingu mánuði fyr-
ir leik.
Vert er að geta þess að Brasilía á eitt allra
best lið heims og fæstar þjóðir skammast
sín fyrir tap gegn þeim.
Gullið í höfn?
Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu.
Skar og skarkali | x
AFP
Þorgrímur Kári Snævarr
Hér lýkur ævintýrum Robba Rottu að sinni. Ég vil þakka þeim sem hafa fylgst með Skari og
skarkala og vona að þeir hafi haft gaman af.