Morgunblaðið - 10.07.2012, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2012
✝ Kristín GíslínaSigurðardóttir
fæddist í Hrísey
26. júlí 1933. Hún
lést á Landspít-
alanum Háskóla-
sjúkrahúsi 2. júlí
2012.
Hún var dóttir
Maríu Magnús-
dóttur og Sigurðar
Elíassonar. María
var fædd á Gilá í
Vatnsdal og fluttist með fjöl-
skyldu sinni að Hurðarbaki á
Ásum í A-Húnavatnssýslu. Sig-
urður var fæddur á Aðalbóli í
Hrafnkelsdal en ólst upp á Hall-
geirsstöðum í Jökulsárhlíð. For-
eldrar Kristínar hófu búskap á
Akureyri 1929 og þar fæddist
þeim Magnús Ingi, f. 1930 og
Elías Jökull, f. 1932. Faðir
Kristínar fékk atvinnu í Hrísey
og því fluttust þau þangað.
Önnur dóttir fæddist þar, Auð-
björg Valgerður, f. 1935. Frá
Hrísey fluttist fjölskyldan 1935
til Siglufjarðar. Þar bættist
yngsta systkinið í hópinn, Bene-
dikt, f. 1937. Árið 1942 flyst
fjölskyldan suður og settist að í
Hveragerði. Í Hveragerði gekk
Kristín í barna- og unglinga-
skóla. Vorið 1953 fer hún til
Danmerkur og sest í lýðháskóla
í Store Restrup sem þá var á
Þórarinn Björn, f. 1981, d.
2004, b) Hallbjörn, f. 1983, í
sambúð með Steinunni Önnu
Kjartansdóttur, f. 1984. Börn
þeirra eru Vigdís Anna, f. 2008
og Þórarinn, f. 2010, c) Krist-
inn, f. 1988 og d) Katrín María,
f. 2000.
Fyrir átti Karl Sigrúnu Höllu
sem ólst upp hjá þeim frá 1964.
Sigrún er sjúkraliði og mót-
tökuritari, f. 1951, gift Kristjáni
Sveinssyni, f. 1949, búsett á
Akranesi. Þeirra börn eru a)
Álfhildur, f. 1975, gift Þór
Árnasyni, f. 1974, börn þeirra
eru Kristín Halla, f. 2003, Karl
Kristján, f. 2006 og Emilía Mar-
grét, f. 2012, búsett í Banda-
ríkjunum, b) Karl Kristinn, f.
1979, d. 2000, c) Sveinn, f. 1984
kvæntur Stefaníu Sigurð-
ardóttur, f. 1979. Þeirra börn
eru Kristján, f. 2008, Klara
Margrét, f. 2009 og Karlotta
Lind, f. 2011.
Kristín og Karl tóku þátt í
félagslífi á Akranesi. Kristín
var í Oddfellowstúkunni nr. 5
Ásgerði IOOF á Akranesi og
var ein af stofnendum hennar.
Karl var einnig félagi í Odd-
fellowstúku. Kristín og Karl
áttu sér unaðsreit, Karlstungu
við Vesturhópsvatn. Þar undi
Stína (eins og hún var jafnan
kölluð) sér vel. Við innréttingu
og smíði þess bústaðar komu
hæfileikar Stínu vel í ljós. Hún
hannaði og skipulagði þann bú-
stað einstaklega vel.
Útför Kristínar fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 10. júlí
2012, og hefst athöfnin kl. 15.
sumrin skóli fyrir
ungar stúlkur þar
sem kenndar voru
ýmsar greinar
heimilisrekstrar.
Árið 1979 lauk hún
námi frá Sjúkra-
liðaskóla Íslands
og starfaði við það
í nokkur ár á
Akranesi. Einnig
lærði hún smur-
brauðsgerð og
vann við það lengi.
Í Kaupmannahöfn kynntist
hún mannsefni sínu, Karli Sig-
urðssyni, f. 1930, d. 2001, bryta
og síðar kaupmanni frá Akra-
nesi. Þau giftu sig 1954 og
stofnuðu heimili í Reykjavík.
Árið 1963 flytja þau búferlum á
Akranes þar sem Karl stofnar
verslunina Skagaver ásamt
Baldri Guðjónssyni og fleirum.
Árið 1997 flytjast þau að Gull-
smára 7 í Kópavogi. Kristín og
Karl eignuðust tvo syni; 1) Sig-
urður flugstjóri hjá Cargolux, f.
1955, kvæntur Ellen Maríu
Ólafsdóttur, f. 1957, búsett í
Lúxemborg. Þeirra börn eru a)
Kristín Ósk, f. 1985, b) Guð-
bjartur Ólafur, f. 1985. 2)
Magnús Þór véltæknifræðingur,
f. 1959, kvæntur Margréti H.
Þórarinsdóttur, f. 1958, búsett í
Kópavogi. Börn þeirra eru a)
Stína tengdamamma er dáin.
Það var vitað að hverju stefndi, en
það kom samt óvænt. Stína hafði
borið sig svo vel. Hún sá um sig
sjálf fram á síðasta dag, undir það
síðasta meir af vilja en mætti. Ég
þakka fyrir öll þau ár sem ég hef
fengið að njóta samfylgdar við
Stínu. Betri tengdamóður er ekki
hægt að hugsa sér. Hún var mér
vinkona og trúnaðarvinur. Hún
studdi mig á erfiðum stundum og
hvatti mig áfram, gaf mér ráð og
setti ofan í við mig þegar það átti
við. Sannur vinur. Stína var vilja-
sterk kona, það sýndi sig í hennar
eigin veikindum og einnig hvern-
ig hún annaðist Karl tengda-
pabba í hans veikindum, en hann
dó árið 2001. Hún var tilbúin að
styðja og styrkja aðra en þáði
sjálf takmarkaða aðstoð nema ná-
kvæmlega það sem hún bað um.
Ég lærði það fljótlega í okkar
samskiptum að virða það. Stína
vildi aldrei að haft væri fyrir
henni. Tímasetning andláts henn-
ar er eins og skipulagt af henni. Á
landinu eru ættingjar sem búa er-
lendis, systurdóttir hennar hafði
skipulagt ferð til Íslands og er því
hér stödd í dag. Stína unni óperu-
tónlist. Það eina sem ég hef getað
gefið henni er árleg ferð í óperuna
með mér og Katrínu Maríu dóttur
minni, „konukvöld“.
Eftir að hún flutti í Gullsmár-
ann var hún aldrei kölluð annað
en amma Gull hér hjá okkur. Lýs-
ir það henni mjög vel. Hún var
gull af manni.
Ég trúi því að nú sé Stína kom-
in til Karls tengdapabba, Kalla
„litla“ og Þórarins míns. Þeir fá
nú að njóta samvistar við hana
aftur ásamt fleirum sem á undan
voru komnir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Takk fyrir allt og allt.
Þín tengdadóttir,
Margrét.
Margs er að minnast og margs
er að sakna nú þegar tengda-
amma mín, Kristín Sigurðardótt-
ir, er fallin frá. Stína bjó í Gull-
smára og var því gjarnan kölluð
amma gull af barnabörnum og
langömmubörnum sínum. Fljót-
lega eftir að ég kynntist henni átt-
aði ég mig á því að hún var slíkt
gull af manni að nafnbótin átti
sérstaklega vel við hana. Þó ekki
sé nema tæpur áratugur síðan ég
kynntist Stínu er eins og ég hafi
alltaf þekkt hana. Áður en ég vissi
af var ég einnig farin að kalla
hana ömmu gull því hún var
amma sem allir myndu vilja eiga
að.
Stínu finnst mér gott að eiga að
fyrirmynd. Hún var glaðlynd,
hugmyndarík og dugleg. Hún
hafði einstakt lag á því að vera hlý
og góð en jafnframt hreinskilin og
ákveðin. Hún var fyrirmyndar
húsmóðir og frábær kokkur. Það
var margt sem ég lærði í eldhús-
inu í Gullsmáranum. Stína var
dugleg að sýna mér og segja frá
því sem hún hafði lært í gegnum
tíðina. Þegar við Hallbjörn héld-
um skírnarveislur fyrir börnin
okkar tók hún fullan þátt í und-
irbúningnum. Þá sá ég hversu
einstaklega vandvirk hún var.
Hvert smáatriði var þaulhugsað
og hver skeið gljáfægð. Í ferða-
lögum var Stína með fullkomið
heimalagað nesti þar sem hugsað
var fyrir þörfum hvers og eins.
En það var einmitt einkennandi
fyrir Stínu að hugsa fyrir öllu. Ég
á margar fallegar og góðar minn-
ingar um þessa skemmtilegu
konu sem mér þótti svo undur
vænt um.
Elsku amma gull, megi minn-
ing þín lifa í hjörtum okkar og
sögur af yndislegri ömmu fylgja
langömmubörnunum.
Steinunn Anna
Kjartansdóttir.
Kristín G.
Sigurðardóttir
✝ Bjarni Jónssonfæddist á
Kambi í Reykhóla-
sveit 4. maí 1922.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu í
Skógarbæ 30. júní
2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Hjaltalín Brands-
son bóndi, f. 25.
september 1875, d.
15. júní 1947 og
Sesselja Stefánsdóttir húsmóðir,
f. 22. júní 1881, d. 12. júlí 1971.
Bjarni var einn ellefu systkina,
sem nú eru öll látin. Þau voru:
Elín Gróa, f. 1902, Stefán, f.
1904, Guðbjörg, f. 1905, Ólafur,
f. 1908, Guðmundur, f. 1909 (lést
ungur), Sigmundur, f. 1911,
Kristján Hans, f. 1915, Magnús,
f. 1918, Guðmundur (tvíbura-
bróðir), f. 1922, fóstursystir Lilja
Guðrún Hannesdóttir, f. 1926.
Hinn 4. maí 1957 kvæntist
Bjarni eftirlifandi eiginkonu
sinni, Fríðu Helgadóttur hús-
móður, f. 17. ágúst 1931, úr
Reykjavík. Foreldrar hennar
voru Helgi Sigurðsson hús-
gagnabólstrari, f. 1900, d. 1974
og Steinunn Guðmundsdóttir, f.
1904, d. 1971. Börn Bjarna og
Fríðu eru: 1) Elín kennari, f.
1958. Börn hennar og Stefáns
Ragnarssonar stýri-
manns eru: Fríða
Stefánsdóttir kenn-
ari, f. 1984 og Ragn-
ar Bjarni Stef-
ánsson nemi, f.
1992. 2) Helgi bif-
reiðarstjóri, f. 1960.
3) Fríða Dís líf-
eindafræðingur, f.
1964, maki Leifur
Gústafsson tækni-
fræðingur.
Bjarni ólst upp í
foreldrahúsum á Kambi í Reyk-
hólasveit, en flutti upp úr tví-
tugu til Keflavíkur og stundaði
þar nám í vélsmíði 1942-46.
Hann lauk vélstjóraprófi frá Vél-
skólanum í Reykjavík 1948 og
síðar rafmagnsdeild 1950. Hann
var yfirvélstjóri á flutn-
ingaskipum Eimskipafélagsins
1948-62 og sigldi um öll heimsins
höf. Þá var hann hjá Björgvin hf.
1962-70, á sanddæluskipinu
Sandey, hjá Portland hf. 1973-
87, lengst af á togaranum Otri
frá Hafnarfirði og hjá Sjólastöð-
inni hf. 1987-91. Hann var vél-
stjóri til sjós allt til 70 ára aldurs.
Bjarni var heiðraður af Sjó-
mannadagsráði 1991.
Útför Bjarna verður gerð frá
Neskirkju í dag, 10. júlí 2012, og
hefst athöfnin klukkan 13.
Elskulegi afi minn er nú fallinn
frá.
Ég var það heppin að alast upp
heima hjá afa og ömmu á Haga-
melnum þegar ég var yngri. Ein
af mínum fyrstu minningum með
afa, var þegar hann hélt á mér í
fanginu og raulaði fyrir mig
„Fríða litla lipurtá“.
Afi var mikill heimilisfaðir.
Hann var alltaf að laga eitthvað,
ljós, þvottavélina eða jafnvel
straujárnið. Ég hélt því fram að
hann væri smiður þegar hann
væri í landi en vélstjóri þegar
hann fór á sjóinn. Ég gat setið og
hlustað endalaust á sögur hans
um siglingarnar sem hann fór um
heiminn eða líf hans í sveitinni, en
hann átti margar sögur af dýrun-
um og fjölskyldulífinu þaðan. Mér
þótti það alltaf merkilegt að hann
ásamt bræðrum sínum hefði
byggt Hagamel, húsið sem ég ann
mest á æskuárum mínum. Það
sem mér þótti þó enn merkilegra
var að afi minn hafði fæðst og búið
í torfbæ og þegar ég var yngri
hélt ég alltaf að afi væri meira en
100 ára, því aðeins svo gamalt fólk
gæti hafa búið í torfbæ.
Afi var alltaf svo blíður og hlýr,
ég og Ragnar Bjarni erum einu
barnabörn ömmu og afa og nutum
við dekurs þeirra og óskiptrar at-
hygli alla tíð.
Hávamál var eitt af uppáhalds-
kvæðum afa og á þessi vísa vel við:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Elsku afi, takk fyrir allar góðu
minningarnar sem þú skilur eftir.
Með söknuði kveð ég afa minn.
Fríða.
Kvaddur er Bjarni Jónsson vél-
stjóri frá Kambi í Reykhólasveit.
Þegar ég var barn voru bræðurn-
ir sjö, systurnar tvær og fóstur-
systir. Afi og amma bjuggu að
Kambi milli huldufólks, álfa og
fyrrverandi ábúenda í fallegri
sveit með öllum þeim dýrum sem
tilheyra sveitinni. Þar fékk ég að
kynnast sveitamenningunni eins
og átta ára barn getur skilið. Það
var mannmargt á heimilinu og
margt gamalt fólk sem vildi
hvergi annarsstaðar vera. Flestir
bræður pabba og hann voru flutt-
ir suður og það hyllti undir að afi
og amma mundu bregða búi. Tví-
burarnir Mundi og Bjarni yngstir
og svo líkir að amma þurfti að
merkja þá er þeir voru litlir.
Pabbi sagði mér að þeir hefðu
haft sitt eigið tungumál sín á milli.
Ennþá sem fullorðna menn er erf-
itt að þekkja þá í sundur ef þeir
voru ekki saman hlið við hlið. En
þó afi og amma ættu tíu börn, einn
fór ungur frá þessum heimi, tóku
þau systurdótturdóttur afa, hana
Lilju, í hópinn sinn.
Kveð ég þig kæri frændi og bið
þig fyrir kveðju til allra í ljósheim-
um. Síðan bið ég almættið að
blessa fjölskyldu þína í þessari
jarðvist.
Erla Stefánsdóttir
Jónssonar frá Kambi.
Bjarni Jónsson
✝
Móðir mín, tengdamóðir og systir,
ÞÓRUNN SIGRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 8. júli að dvalarheimili
aldraðra í Vestmannaeyjum.
Valdimar Þ. Gíslason,
Guðrún S. Guðmundsdóttir,
Jónína Valdimarsdóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN FINNBOGASON
frá Skálmarnesmúla,
andaðist laugardaginn 7. júlí á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 19. júlí kl. 13.00.
Jarðsett verður á Skálmarnesmúla.
Steinunn Pétursdóttir,
Finnbogi Jónsson, Þuríður Kristjánsdóttir,
Kolbrún Jónsdóttir, Þorvaldur Ottósson,
Nanna Áslaug Jónsdóttir, Gísli Ásberg Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær bróðir okkar, faðir, mágur og frændi,
VILHELM ÖRN OTTESEN,
Efstahjalla 13,
Kópavogi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
fimmtudaginn 5. júlí.
Útför hans fer fram frá Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu laugardaginn 14. júlí kl. 13:00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Frú Ragnheiði - skaðaminnkun, verkefni Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Íslands, reikn.nr.: 0526-26-5320, kt.: 530269-
1839, skýring: v/Vilhelms.
Ásta Ottesen, Páll H. Jónsson,
Gunnlaug Ottesen, Friðrik Diego,
Þórhallur Ottesen, Elín Margrét Jóhannsdóttir,
Kristín Ottesen, Sigmundur Ásgeirsson,
Jón Ívar Vilhelmsson, Ellert Heiðar Vilhelmsson
og frændsystkini.
✝
Okkar ástkæri frændi og vinur,
EYJÓLFUR EYJÓLFSSON
frá Botnum í Meðallandi,
Sundlaugavegi 24,
Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Klausturhólum
fimmtudaginn 5. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birna Halldórsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
TRAUSTI KRISTINSSON
vörubifreiðastjóri,
Laufásvegi 50,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk fimmtu-
daginn 28. júní, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 12. júlí
kl. 15.00.
Halla Guðný Erlendsdóttir,
Málhildur Traustadóttir, Guðmundur Vésteinsson,
Anna Erla Guðbrandsdóttir, Egill Sveinbjörnsson,
Margrét Traustadóttir, Ámundi Halldórsson,
Hjördís Steina Traustadóttir, Kristinn Jónsson,
Erlendur Traustason, Björg Sigrún Ólafsdóttir,
Þórður Ólafur Traustason, Ágústa Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.