Helgafell - 01.01.1943, Síða 122

Helgafell - 01.01.1943, Síða 122
108 HELGAFELL Hugo: „Bókin hefur tortímt byggingunni." Ég segi: „Sú tíð mun koma, að myndin tor- tími bókinni." Byggingin var bók liðinna alda. Miðald- irnar skráðu sögu sína í voldugum dómkirkj- um. Siðgæði þeirra og heimspeki endurspegl- ast í myndum dýrlinga, engla og djöfla, og skáldskapur þeirra blómgast í leikandi léttum bugðum steinflúrsins, furðulegri mergð blaða og blóma og háttbundnum línum himingnæf- andi turna. Eftir að prentlistin kom til sögunn- ar, var þessu hlutverki bygginganna lokið. Bókin hefur tortímt byggingunni. Valdaskeið bókarinnar er nú orðið 500 ár. Það er óvenjulega löng xvi uppfinningar, því að bókin er aðeins uppfinning, en þær verða jafnan að þoka fyrir öðrum nýrri, betri og hagnýtari. Sú, sem bókinni mun verða að bana, er myndin. Átök myndar og bókar hafa verið furðulega skammvinn. í raunini hafa það engin átök verið, því að myndin var í upphafi og virðist enn vera bókinni stoð og stytta. En sannleik- urinn er sá, að bókin er hætt komin. f þeirri andlegu stvrjöld, sem nú er háð um heims- skoðanir, og múgæsingum þeim, sem benni eru samfara, eru ljósmyndir, kvikmyndir og útvarp óefað langtum skæðari vopn en bókin. Enn er aðeins um röddina að ræða í útvarp- inu, en þeirrar stundar er ekki langt að bíða, að sjónvarp verði komið á hvert heimili. Þá er bróunin billkomin, og myndin hefir geng- ið af bókinni dauðri Nvju einræðisríldn og einræðisstefnurnar, sem eiga allt undir hvlli múgsins og valdinu vfir múo-num, hafa knúð vestrænar bióðir til sársaukablandins endurmats á hugtaki sann- leikans — eða að minnsta kosti til rækilegrar endurskoðunar á því. Nú ræða menn einkum um nytjagildi sannleikans, og skilningur okk- ar á „sannleikanum“ verður ef til vill bezt skvrður með hinni alkunnu skilgreiningu áróðurs: „Áróður er það að túlka svo eitthvert mál, að hlutaðeigandi maður verði fvrir til- ætluðum áhrifum.“ (Stuart Campbell). Mvnd skilja allir, bæði bamið og villimað- urinn. Það er engin áreynsla að horfa á mvnd og kostar engin heilabrot að skilja hana. Þess vegna er myndin ætíð áhrifameiri en orðið, þegar ná skal „tilætluðum áhrifum.“ Þess vegna er steypiflóði mynda hellt yfir heim- inn. Þess vegna er meira borgað fyrir mynd en vandaða ritgerð. Myndin æsir meira en orðið, því að enga umhugsun þarf til að skilja efni hennar og boðskap. Það er auðvelt og ódýrt að búa til mörg eintök af sömu mynd- inni. Myndir má líma á veggi og stinga þeim í póstkassa. Á hverju kvöldi sitja milljónir manna í kvikmyndahúsum. Nútímamaðurinn er að verða bam, sem skynjar veröldina að- eins í myndum, en ekki í hugsunum, — og breytir eftir því. Einræðisherrarnir kæra sig ekki um að skrifa bækur. Einstök áhrifamikil mynd, sem ein- ræðisherra Iætur gera og dreifa meðal Iýðsins, túlkar mál hans betur og verður ódýrari og víðfleygari en nokkur bók. Enn þá auðveld- ara er þó einræðisherra að túlka „sannleikann" í útvarpi. Tækið er sálarlaust og hlýðir hverj- um, sem notar það. Á valdatímum bókarinnar vom mennmðu stéttirnar öflugar. Á tímum útvarps og kvik- mynda óttast leiðtogarnir ekki menntamenn- ina og gagnrýni þeirra. Þeir vita, að enginn, sem til menntaðra manna telst og ábyrgðar- tilfinningu er gæddur, mundi leyfa sér svo einhliða túlkun allra hugtaka sem múgæsinga- manninum í útvarpinu er nauðsynleg. í einræðisríki em allar bækur, aðrar en þær, sem vegsama einræðið, hætmlegar í höndum múgsins. Og ekki einungis þær: bókin sjálf er háskf|agripur. Bókin er enginn papýmsstrangi, vaxspjald cða gamalt handrit, prýtt gullnum myndum, sem auðvelt væri að koma fyrir kattamef. Vegna prentlistarinnar stendur hætta af hverju rimðu orði. Það er ekki öllum gefið að teikna áróðursmynd, útvarpsins er stranglega gætt, mikið fé þarf til kvikmynda- gerðar, en prentað orð smýgur alls staðar. Það fer neðan jarðar, það virðist fljúga í loftinu. Bók er tæplega hægt að eyðileggja að öllu eins og handrit, en það má flæma hann út í skúmaskot. Þess vegna hafa einræðisríkin grip- ið afmr til þess vopns, sem hætmlegast er bókinni, — ritskoðunarinnar. Bókin er sett ut- an við lög og rétt. Með því að draga úr
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.