Kjarninn - 19.06.2014, Blaðsíða 5
02/03 lEiðari
það getur verið svo auðvelt að gleyma því sem vel er gert og
einblína á það sem er eftir. Með því að horfa til baka á allt
sem þó hefur verið gert er auðveldara að vera bjartsýnn á
að restin geti breyst. Bjartsýnin er nauðsynleg í hvers kyns
réttindabaráttu ef ætlunin er að halda fólki við efnið.
Því hvað sem hver segir hefur jafnrétti ekki verið náð á Ís-
landi frekar en annars staðar. Tölfræði um kynbundið ofbeldi
og kynbundinn launamun sýnir það svart á hvítu. Sem dæmi
fengum við í síðasta mánuði innsýn í líf konu sem er ofsótt
af ofbeldisfullum fyrrverandi maka sínum án þess að brugð-
ist hafi verið almennilega við því. Það er ekkert einsdæmi.
Hún, fjölskyldan hennar og samfélagið í kringum hana hafa
því þurft að lifa í ótta við þennan eina ofbeldismann. Laga-
setning er nefnilega ekki nóg, hugur verður að fylgja máli.
Líklega er það merki um það hversu
langt við höfum náð að margir hugsa ekkert
um jafnréttismál dags daglega og sjá ekki
misrétti jafnvel þótt það blasi við þeim.
Forréttindin eru ósýnileg þeim sem hefur
þau. Og af þessu sprettur sú umræða að nú
sé nóg komið, íslenskir femínistar hafi gengið nógu langt
og réttindi sem nú sé barist fyrir snúist um yfirráð kvenna
en ekki jafnrétti. Þessi umræða hefur alltaf verið til og hún
færist bara til eftir því sem baráttan teygir sig lengra. Það er
mjög auðvelt að hrópa öfgar án þess að kynna sér raunveru-
lega hina hliðina á teningnum.
Allt sem hefur verið gert hingað til er nefnilega ekki nóg.
Rúmlega 80 prósenta jafnrétti er ekki nóg. Jafnréttasta ríki
heims má ekki sætta sig við það og slaka á, heldur þarf að
herða róðurinn og halda áfram að vera leiðandi. Rétt eins og
með önnur réttindi eru þessi ekki sjálfsögð og óhagganleg.
Það verður að standa vörð um þau og fara lengra með þau.
Til þess að ná lengra þarf að virkja fleira fólk, ekki síst
karla. Sem betur fer veita sífellt fleiri karlar þessum málstað
athygli og vita að aukið jafnrétti gagnast þeim líka. Þeir eru
eitt mikilvægasta vopnið í þessari baráttu.
Aukið kynjajafnrétti er líka nátengt annars konar
„Rúmlega 80
prósenta jafnrétti
er ekki nóg.“