Kjarninn - 19.06.2014, Blaðsíða 52
02/03 pistill
aldrei búið
Allt eru þetta verkefni sem eru aldrei alveg búin. Flestir gætu
gert meira heima við, klárað að koma þessu eða hinu í lag,
leikið meira við börnin, lagt meira í eldamennskuna og unnið
meira í sjálfum sér. Sjálfur hef ég aldrei upplifað augnablik
þar sem fullkomnu jafnvægi er náð og ekkert frekar þarf að
gera.
Þó að þetta geti verið þreytandi held ég að þetta sé samt
heilbrigt ástand. Það á að vera álag, hæfilega mikið drasl
og ekki of mikill svefn á þessum árum ævinnar. Sennilega
er það sem okkur finnst vera álag ekkert miðað við hvernig
þetta var áður fyrr. Amma mín eignaðist ellefu börn á um
25 árum og vann lengst af fyrir heimilinu
sem fiskverkakona. Lítill tími til að vera á
Facebook þar en samt hafðist þetta einhvern
veginn.
óhversdagslegar myndir
Það er ákveðin fegurð í hversdagsleikanum.
En samt er það þannig að á tímum þar sem
allir eiga að vera eins og þeir eru og enginn
á að fela neitt virðist það sama ekki eiga við
um hversdagslífið. Við reynum að láta líta út fyrir að það
sé alltaf allt tandurhreint hjá okkur. Óvæntar heimsóknir
eru t.d. illa séðar nú til dags því þá gefst húsráðendum
ekki tóm til að framkvæma hraðtiltekt heima fyrir og fela
hversdagslífernið. Í hversdagsmyndaáskoruninni á Facebook
birti enginn myndir af ósamanbrotnum þvotti, grátandi
börnum og uppvaski. Annað hvort lifa vinir mínir miklu
meira spennandi lífi en ég gerði mér grein fyrir eða þá að
þeir ákváðu að setja sig í einhverjar stellingar, því hversdags-
myndirnar voru meira eða minna allar af fólki í fjallgöngum,
kajakróðri, útihlaupum, dansi og garðrækt.
Í grunninn er þetta ekki skrýtið. Í fjölmiðlum og víðar er
aldrei fjallað um hversdaginn. Það er engin sérstök hetjudáð
að koma krökkunum í rúmið, vaska upp og brjóta saman
þvottinn fyrir klukkan tíu á kvöldin. Enginn hefur fengið
„Það á að vera
álag, hæfilega
mikið drasl og
ekki of mikill
svefn á þessum
árum ævinnar. “