Kjarninn - 19.06.2014, Blaðsíða 48
03/05 Álit
andstæðar góðum viðskiptavenjum er rétt að benda á að
viðskipti með upprunaábyrgðir eru í fullu samræmi við lög
og reglugerðir sem settar hafa verið hér á landi í samræmi
við EES-samninginn.
Er hægt að selja sama hlutinn tvisvar?
Einstaklingar og fyrirtæki í Evrópu verða sífellt meðvit-
aðri um uppruna orkunnar og áhrif orkunotkunar á losun
gróðurhúsalofttegunda. Með því að kaupa upprunaábyrgðir
geta fyrirtæki bætt ímynd sína, lokkað til sín viðskiptavini
og jafnvel uppfyllt lagalegar kröfur, enda heimila uppruna-
ábyrgðirnar þeim að lýsa því yfir að starfsemi þeirra nýti
hreina orku og valdi minni losun gróðurhúsalofttegunda og
minni kjarnorkuúrgangi en ella.
En lítum á hina hliðina á peningnum. Meginforsenda þess
að kerfið virki sem skyldi er að hver upprunaábyrgð sé að-
eins notuð einu sinni, enda yrðu áhrif á orkunýtingu og losun
gróðurhúsalofttegunda lítil ef heimilt væri að margnýta
þennan eftirsóknarverða eiginleika orkunnar. Þess vegna
gera reglur um upprunaábyrgðir ráð fyrir að seljendur afsali
sér rétti sínum til að auglýsa orkuna sem endurnýjan lega
og lýsi því beinlínis yfir að hún teljist framleidd úr jarðefna-
eldsneyti og kjarnorku, líkt og íslensk orkufyrirtæki gera
nú á rafmagnsreikningum viðskiptavina sinna. Kaupendum
þessarar orku, til dæmis stóriðjufyrirtækjum og gagnaverum
hér á landi, er því tæplega stætt á að segjast eingöngu nota
hreina orku í starfsemi sinni, nema þau kaupi uppruna-
ábyrgðir eða upprunavottaða orku.
Ávinningur af sölu upprunaábyrgða og áhrif á ímynd
íslands
Upprunaábyrgðir eru ný tekjuöflunarleið fyrir framleiðendur
endurnýjanlegrar orku. Af hraðri söluaukningu milli ára
verður ekki dregin önnur ályktun en sú að íslensk orku-
fyrirtæki ætli sér að nýta þessa tekjuöflunarleið til hins
ítrasta. Þrátt fyrir þetta hefur lítil opinber kynning eða
umræða farið fram um viðskiptin og því síður um hvað þessi