Kjarninn - 19.06.2014, Qupperneq 52

Kjarninn - 19.06.2014, Qupperneq 52
02/03 pistill aldrei búið Allt eru þetta verkefni sem eru aldrei alveg búin. Flestir gætu gert meira heima við, klárað að koma þessu eða hinu í lag, leikið meira við börnin, lagt meira í eldamennskuna og unnið meira í sjálfum sér. Sjálfur hef ég aldrei upplifað augnablik þar sem fullkomnu jafnvægi er náð og ekkert frekar þarf að gera. Þó að þetta geti verið þreytandi held ég að þetta sé samt heilbrigt ástand. Það á að vera álag, hæfilega mikið drasl og ekki of mikill svefn á þessum árum ævinnar. Sennilega er það sem okkur finnst vera álag ekkert miðað við hvernig þetta var áður fyrr. Amma mín eignaðist ellefu börn á um 25 árum og vann lengst af fyrir heimilinu sem fiskverkakona. Lítill tími til að vera á Facebook þar en samt hafðist þetta einhvern veginn. óhversdagslegar myndir Það er ákveðin fegurð í hversdagsleikanum. En samt er það þannig að á tímum þar sem allir eiga að vera eins og þeir eru og enginn á að fela neitt virðist það sama ekki eiga við um hversdagslífið. Við reynum að láta líta út fyrir að það sé alltaf allt tandurhreint hjá okkur. Óvæntar heimsóknir eru t.d. illa séðar nú til dags því þá gefst húsráðendum ekki tóm til að framkvæma hraðtiltekt heima fyrir og fela hversdagslífernið. Í hversdagsmyndaáskoruninni á Facebook birti enginn myndir af ósamanbrotnum þvotti, grátandi börnum og uppvaski. Annað hvort lifa vinir mínir miklu meira spennandi lífi en ég gerði mér grein fyrir eða þá að þeir ákváðu að setja sig í einhverjar stellingar, því hversdags- myndirnar voru meira eða minna allar af fólki í fjallgöngum, kajakróðri, útihlaupum, dansi og garðrækt. Í grunninn er þetta ekki skrýtið. Í fjölmiðlum og víðar er aldrei fjallað um hversdaginn. Það er engin sérstök hetjudáð að koma krökkunum í rúmið, vaska upp og brjóta saman þvottinn fyrir klukkan tíu á kvöldin. Enginn hefur fengið „Það á að vera álag, hæfilega mikið drasl og ekki of mikill svefn á þessum árum ævinnar. “
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Kjarninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.