Kjarninn - 19.06.2014, Page 12
04/04 EfnaHagsmÁl
Ljóst er á skjölunum að vilji er til þess að auka frelsi
fjármálaþjónustu til að stunda sína starfsemi allverulega. Um
fimmtíu ríki taka þátt í samningsviðræðunum. Ísland er þar
á meðal. Samkvæmt þeim skjölum sem Kjarninn hefur undir
höndum gerðu Íslendingar engar athugasemdir við þær
tillögur sem settar voru fram.
afregluvæðing aðalatriði
TISA-viðræðurnar hafa staðið yfir frá því vorið 2013 og
samkvæmt þeim litlu tíðindum sem borist hafa af framvindu
þeirra hafa þær gengið vel. Sjöttu viðræðulotu lauk í byrjun
maí síðastliðins.
Viðræðurnar snúast um alla anga þjónustu og frelsis-
væðingu þeirra á alþjóðavettvangi. Skjölin sem Wikileaks
hefur undir höndum, og Kjarninn segir nú frá, snúast ein-
vörðungu um þær áherslur sem stefnt er á að ná í gegn varð-
andi fjármálaþjónustu. Tilgangur viðræðnanna er að tryggja
algjört aðgengi á milli markaða þeirra um fimmtíu landa sem
að samkomulaginu myndu koma, verði það að veruleika.
Á undanförnum árum – eftir efnahagshrunið sem skall á
haustið 2008 – hafa reglur um fjármálaþjónustu verið hertar
töluvert á ýmsum sviðum víðs vegar um heiminn. Í þeim
samningsdrögum sem Kjarninn er með virðist stefnan með
TISA-samkomulaginu að draga töluvert úr þeim reglum. Auk
þess er þar að finna ákvæði sem eiga að heimila stjórnend-
um og sérfræðingum sem starfa í fjármálageiranum betra
aðgengi að því að dvelja í samningslöndunum en þeir hafa
í dag, enda innflytjendamál og hertar kvaðir í þeim mjög
ofarlega á baugi víða um heim um þessar mundir.
Í skjölunum er líka lagt til að settur verði upp nokkurs-
konar yfirþjóðlegur dómstóll til að útkljá deilumál sem
kunna að koma upp á milli þeirra sem aðild eiga að
samkomulaginu. Þangað gætu til dæmis fjármálafyrirtæki
skotið skorðum sem þjóðríki reyndu að setja þeim.
ítarEfni
The Trade In Services
Agreement (TISA)
Coalition of services industries
PSI Special Report:
TISA versus Public
Services
Scott Sinclair og Hadrian Mertins-
Kirkwood fyrir PSI
Smelltu á fyrirsagnirnar
til að lesa ítarefnið