Kjarninn - 19.06.2014, Blaðsíða 16

Kjarninn - 19.06.2014, Blaðsíða 16
04/05 DómsmÁl við ríkissaksóknara vegna þessara mála fyrir hönd Hreiðars Más og krafist þess að ólöglegum hlerunum verði hætt hið snarasta, og hefur einnig fært fyrir því rök fyrir dómi að þessar ólöglegu aðgerðir saksóknara eigi að vera næg ástæða til þess að vísa málum á hendur Hreiðari Má frá dómi. Grafalvarlegt sé að beita ólölegum rannsóknaraðferðum í málum og það eigi að nægja til þess að láta mál niður falla. Eins og áður segir hefur sérstakur saksóknari alfarið hafnað þessu, telur hleranirnar ekki vera neina ástæðu til þess að vísa málum frá eða fella niður mál. Í bréfi sem Hörður Felix sendi sérstökum saksóknara hinn 11. mars í fyrra tilgreinir hann sérstaklega fjögur símtöl þar sem sérstakur saksóknari var að hlera samtal Harðar og Hreiðars Más. Þau fóru fram á árinu 2010, 20. og 28. apríl, og síðan hinn 20. og 26. maí sama ár. Þessi símtöl fóru fram skömmu áður og skömmu eftir að Hreiðar Már hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, en fallist var á beiðni sérstaks saksóknara um það hinn 7. maí 2010. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sendi Herði Felix svarbréf níu dögum síðar, hinn 20. mars 2013. Í því segir hann orðrétt, um ástæður þess að símtölin milli hans og Hreiðars Más voru geymd eftir að þau voru tekin upp: „Skýringin á því hvers vegna umræddum símtölum var ekki eytt á réttum tíma eru eftirfarandi: Þau símtöl sem hlustuð voru á umræðuddum tíma voru tekin upp með aðstoð tölvu- rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þau Hleranir Hafa ekki ráðið úrsliTum í neinu máli Hrunmálin sem hafa komið til kasta dómstóla eru nokkur og varða margvísleg efnhagsbrot. Í þeim málum þar sem sakfelling hefur náðst fram hafa hleranir á símtölum, löngu eftir atburðina sjálfa, hvorki skipt neinu máli fyrir sönnunarfærslu fyrir dómi né heldur þegar kemur að rökstuðningi dóm- ara þegar á hólminn er komið. Töluvert hefur verið vitnað til tölvupósta fyrir dómi í aðalmeðferðum og skýrslutökum en lítið sem ekkert til upplýsinga sem hafa komið fram í hlerunum símtala. Í flestum málunum, sem varða meðal annars brot á lögum um innherjaviðskipti, markaðs- misnotkun, umboðssvik og fjársvik, hefur verið stuðst við frumgögn um viðskipti, gögn um fjármagnshreyfingar og síðan skjalfesta pappíra þar sem aðdraganda ákvörðunar er lýst, svo sem fundargerðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.