Kjarninn - 19.06.2014, Blaðsíða 28
08/11 viðtal
Byggja fyrir ungt fólk
Byggingarkostnaður á hvern fermetra er mjög dýr á Íslandi
og Íslendingar hafa haft tilhneigingu til að vilja búa á ansi
mörgum fermetrum. Í nýlegum framkvæmdum, stúdenta-
görðum í Vatnsmýrinni sem voru opnaðir í fyrra, var gerð
tilraun með annars konar íbúðarform. Þar eru híbýlin sjálf
minni, en íbúarnir deila sameiginlegum svæðum á borð
við eldhúsaðstöðu. Dagur sér fyrir sér að slíkar leiðir gætu
hentað til að búa til hagkvæmt íbúðarhúsnæði sem ungt fólk
hefur efni á að leigja. Þetta skipti sérstaklega máli miðsvæðis
í borginni þar sem þorri ungs fólks vilji búa en margir hafi
ekki efni á. „Ég held að við þurfum að leyfa okkur ákveðna
tilraunastarfsemi og hugsun um hvernig við ætlum að búa
til að ráða við verkefnið vegna þess að það er alveg ljóst
að byggingarkostnaður á fermetra er hár. Finnar búa til
dæmis á helmingi færri fermetrum en við. Getur verið að
kjörstærðin liggi á milli þeirra og þess sem við vorum að gera
fyrir hrun?
Það er hætta á því að þær íbúðir sem
verði byggðar í miðborginni verði of dýrar
fyrir ýmsa hópa. Mýrargata 26, Skugga-
hverfisblokkirnar, Mánatúnið og íbúðirnar
sem eiga að rísa í kringum Hörpu eru allt
stórar og flestar dýrar íbúðir sem er alveg
ljóst að verða ekki á allra færi. Við höfum
því sagt að borgin þurfi að koma inn og
tryggja í gegnum skipulag að þarna muni líka rísa líka litlar
og meðalstórar íbúðir og að byggðin verði blönduð. Við erum
að skoða fjölmörg svæði, til dæmis Vesturbugtina og Kirkju-
sand. Þetta er allt hluti af þessum íbúðum sem við ætlum að
koma að byggingu á. Á næstu vikum verður farið yfir áætlan-
ir og svo væntanlega kynnt nánar í haust hvernig við sjáum
þetta fyrir okkur.“
„Mikilvægi borga er að aukast
vegna þess að þær stækka
og straumurinn liggur þang-
að en líka vegna þess að þar
er hið efnahagslega afl.“