Kjarninn - 19.06.2014, Side 36

Kjarninn - 19.06.2014, Side 36
forsætisráðherra of seinn Gestur sem rambaði inn í Bakherbergið var staddur á Austurvelli snemma á þjóðhátíðardaginn til að fylgjast með hefðarfólkinu ganga til guðsþjónustu í Dómkirkj- unni. Hann fylgdist meðal annars með forsetahjónun- um Ólafi Ragnari og Dorrit ganga inn um kirkjudyrnar og hvernig þeim var síðan lokað í kjölfarið. Það kom því á gestinn þegar allt í einu birtist dökkur bíll á hraðferð við Austurvöll og út steig Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra. Hann virtist af tilburðum á hraðferð, enda of seinn í guðsþjónustuna, og flýtti sér inn um þegar lokaðar dyrnar. vilja losna við Benedikt Bogason Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar hefur kært sérstakan saksóknara fyrir brot í opinberu starfi vegna hlerana. Dómarinn sem kvittaði upp á þær er nú hæstaréttardómari og heitir Benedikt Bogason. Í Bakherberginu sjá sumir lögmenn glitta í mikið samsæri. Þeir telja að verjendateymi meintra hrunmanna vilji ná sér niðri á Benedikt fyrir að hafa dæmt Ragnar H. Hall og Gest Jónsson til réttarfarssektar fyrir að segja sig frá Al-Thani málinu og koma um leið í veg fyrir að hann fengi að dæma í Imon og Aurum-málunum þegar þau kæmu fyrir Hæstarétt. af nEtinu samfélagið segir um hálfkæring Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur kjarninn 19. júní 2014 facebook twitter maTTHias imslanD Jæja hvernig ætlar spunalidid ad snúa út úr þessu. Miðvikudagurinn 18. júní 2014 THorunn unnarsDóTTir Hún var ekkert að flýta sér að leiðrétta þetta þar sem fylgið rauk upp einmitt vegna þessa. Miðvikudagurinn 18. júní 2014 Halla sverrisDóTTir Hún mun aldrei fást til að viðurkenna að fylgi Framsóknar í þessum kosningum hafi fyrst og fremst fengist út á beinan eða óbeinan áróður gegn innflytjendum og daður við íslamófóbíu. Um leið er umræðan andvana fædd. Miðvikudagurinn 18. júní 2014 gunnar Björnsson @gunnarbjorns Athyglisvert. Fyrst að ná í fylgið út á þessa stefnu svo að segja þetta misskiling. http:// fb.me/1W3pRjlGx Miðvikudagurinn 18. júní 2014 magnus THor @magnusthor Andstæðingar mosku sitja eftir með skeggið í póstkassanum. Framsókn var með lygamerki á tánum allan tímann. http://fb.me/2XL6U1Mak Miðvikudagurinn 18. júní 2014 asgeir HaralDsson @asgeirhar Misskilningur hja #framsókn. Ég vil alls ekki að #Sveinbjörg Birna "sleiki skóna mína" eins og fram kom í frettum #RUV. Miðvikudagurinn 18. júní 2014 01/01 samfélagið sEgir

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.