Kjarninn - 19.06.2014, Page 54

Kjarninn - 19.06.2014, Page 54
01/01 græjur kjarninn 19. júní 2014 01/01 grÆJur tÆkni  7 O̧YXOHLNXUVHPV¿QLUIMDOOWLOùQQLQJDÀLQQD google keeP Var Ever- note fíkill en skipti yfir í Google Keep í fyrra. Ekki eins mikið af möguleikum sem er kostur frekar en galli. insTaPaPer Frábær leið til að halda utan um lengri greinar af netinu. Renni svo yfir þær í ró og næði um helgar. falCon Pro Besta Twitter appið fyrir android. punktur. Fullt af möguleikum sem vantar í „opinbera“ appið. gunnlaugur reynir sverrisson Framkvæmdarstjóri mymxlog.com Þeir sem hafa séð kvikmyndina Her muna kannski eftir því þegar persóna Joaquin Phoenix spilar nýstárlegan þrívíddar tölvuleik þar sem aðalpersónan er orðljót og dónaleg vera. Hönnuður þessa atriðis í myndinni er David OReilly sem er nú búinn að búa til tölvuleik fyrir okkur; fólkið í raunveruleikanum. „Mountain“ heitir sá leikur en hann gengur út á að þú svarir nærgöngulli spurningu um ástir, hatur og tilfinningar gagnvart móður þinni. „Leikurinn krefst upplýsinga nær sál þinni en þú munt nokkurn tíma leyfa Facebook að vita,“ segir OReilly. OReilly segist hafa valið fjöll til að sýna tilfinningar fólks því þau tákna ró. Þau smána líka fólkið sem þykist vera stórt með öll mannvirkin sín. OReilly segist hafa fengið áhuga á að búa til leiki eftir að hafa unnið við Her og að Mountain hafi svarað heilmörgum spurningum sem áður höfðu vaknað. Myndinni er svo breytt í fjall sem fær eigið líf og breytist eftir því sem tíminn líður. Fjallið má skoða frá öllum sjónarhornum, í fjarlægð eða nálægð. Spilarinn svarar erfiðu persónulegu spurningunum með því að teikna mynd sem leikurinn tekur á móti.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.