Kjarninn - 19.06.2014, Page 60
06/07 tónlist
Þú ert búinn að vera viðloðandi tónlist ansi lengi, ekki satt?
Jú, ég hef verið að sýsla í tónlist frá því ég flosnaði upp úr
listaskólanámi. Ég er jafn spenntur fyrir því að gera tónlist
og ég var þegar ég var að byrja.
Finnst þér vera mikill munur á tónlistarlandslaginu í dag og
þegar þú varst að hefja ferilinn?
Já, það er miklu auðveldara að gera tónlist og plötur í dag.
Tæknin gerir fólki miklu auðveldara fyrir. Hér áður fyrr
voru það nær eingöngu ríkir karlar sem áttu hljóðver og gátu
fjármagnað plötur. Nú er hægt að gera plötur nánast hvar
sem er. Aðgangur fólks að tónlist og upplýsingum um tónlist
er miklu greiðari en hann var áður.
Þegar ég var ungur þurfti maður að leggja mjög mikið
á sig til að heyra í hljómsveitum á borð við Faust eða Amon
Düül. Maður þurfti helst að þekkja einhvern vel stæðan
sem átti flott plötusafn til þess að heyra þessa tónlist. Nú er
þetta ekkert mál, ef maður vill kynna sér eitthvað eða heyra
eitthvað þarf maður bara að leita á internetinu og maður fær
það sem maður vill innan fárra sekúnda. Það er reyndar eitt
sem ég sakna og það er að í dag er minni dulúð í kringum
tónlistarmenn og hljómsveitir. Ég er þakklátur fyrir að hafa
alist upp við það að tónlistarfólk var leyndardómsfyllra af
því að upplýsingarnar um það voru ekki auðfundnar. Núna
finnur maður allt með því að leita á Wikipedia og sambæri-
legum vefsvæðum.
meiri sál í gömlum hljóðgervlum
Meðlimir Portishead hafa verið nokkuð iðnir við að gera tónlist
utan hljómsveitarinnar síðastliðin ár. Finnst þér það hjálpa hljóm-
sveitinni og ykkur sem skapandi tónlistarfólki?
Mér finnst það hjálpa okkur að því leyti að það veitir
okkur innspýtingu og aukinn sköpunarkraft að fást við aðra
hluti en Portishead. Á hinn bóginn lengir það biðina á milli
platna hjá okkur en okkur finnst gott að hafa frelsi til þess að
gera hluti fyrir utan hljómsveitina.