Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 5. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 198. tölublað 100. árgangur
Á GÚMMÍBÁT
TIL BRULLAUPS
FÓRU ÞAU
AKUREYRI
MEÐ AUGUM
EÐVARÐS
SPILAÐ Á ALLAN
TILFINNINGA-
SKALANN
SUNNUDAGSMOGGINN ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Í VETUR 52GIFTU SIG Í FURUFIRÐI 10
AFP
Dæmdur Anders Behring Breivik ásamt
verjanda sínum Geir Lippestad.
„Þeir sem liðu hvað mestar kvalir
vegna ofbeldis Anders Behring
Breivik eru fórnarlömb hans og
ættingjar þeirra. Það er fólkið sem
getur loksins farið að horfa fram á
veginn.“ Þetta sagði Björn Kasper
sem er einn þeirra sem báru vitni í
málinu gegn Breivik, eftir að dóms-
niðurstaðan var ljós í gærmorgun.
Dómurinn yfir Breivik kveður á
um að hann sé sakhæfur og ábyrg-
ur gjörða sinna. Breivik var dæmd-
ur samkvæmt hryðjuverkalögum í
21 árs fangelsi. Mögulegt verður að
lengja refsinguna eftir þann tíma
til fimm ára í senn. Frá dómnum er
dregið 445 daga gæsluvarðhald, en
Breivik hefur verið í haldi frá því
að hann framdi fjöldamorðin 22.
júlí í fyrra. »27
Fórnarlömb Anders
Breivik geta loks
horft fram á veginn
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Tveir menn voru handteknir á Kefla-
víkurflugvelli í gær þegar þeir fram-
vísuðu fölsuðum grískum skilríkjum.
Að sögn Sigríðar Bjarkar Guðjóns-
dóttur, lögreglustjóra á Suðurnesj-
um, eru vísbendingar um að menn-
irnir geti verið frá Sýrlandi. Þá segir
hún báða mennina hafa sótt um hæli
hér á landi.
Þetta eru ekki fyrstu Sýrlending-
arnir sem koma hingað til lands eftir
að gríðarleg átök brutust út þar í
landi gegn ríkisstjórn Bashar al-As-
sad í mars á síðasta ári. Að sögn Þor-
steins Gunnarssonar, forstöðu-
manns hælissviðs Útlendingastofn-
unar, hefur einn Sýrlendingur óskað
eftir hæli hér á landi fyrr á þessu ári.
Þá segir Þorsteinn annan Sýrlend-
ing hafa sótt um hæli á síðasta ári áð-
ur en átökin hófust en þar að auki
hafi tveir Sýrlendingar sótt um hæli
árið 2010.
Tveir sóttu um hæli
Segir vísbendingar um að mennirnir séu frá Sýrlandi
Morgunblaðið/RAX
Rústir Stríðsástand hefur verið í
Sýrlandi og átök gríðarleg.
Ágúst Ingi Jónsson
Viðar Guðjónsson
„Niðurstaðan sýnir að meira hefur
verið af makríl í íslenskri lögsögu í
sumar heldur en nokkru sinni síðan
þessar rannsóknir Íslendinga, Norð-
manna og Færeyinga hófust árið
2009,“ segir Sveinn Sveinbjörnsson
fiskifræðingur.
Í heild mældist um 5,1 milljón
tonna af makríl á rannsóknarsvæðinu
í Norðaustur-Atlantshafi og þar af 1,5
milljónir tonna innan íslenskrar efna-
Aldrei meira af makríl
Um 29% makrílstofnsins í NA-Atlantshafi í íslenskri lögsögu í sumar
Spyrja má hvort kröfur séu of hóflegar, segir framkvæmdastjóri LÍÚ
hagslögsögu eða um 29% af heildar-
magninu. Í lögsögu Norðmanna
mældust 1.680 þúsund tonn eða 33,1%
og í færeyskri lögsögu 746 þúsund
tonn eða 14,7%.
Að mati Sigurgeirs Þorgeirssonar,
ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðu-
neyti, sem jafnframt leiðir samninga-
nefnd fyrir Íslands hönd í makríldeil-
unni, styrkja niðurstöðurnar
samningsstöðu Íslands.
„Menn hljóta að átta sig á því að
ekki verður vikist undan því með
neinni sanngirni að Ísland fái veru-
lega góðan hlut í þessum veiðum,“
segir Sigurgeir.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, tekur undir
með Sigurgeiri um að samningsstaða
Íslendinga styrkist og bætir við um
niðurstöðu rannsóknarinnar. „Hún
hvetur okkur enn frekar til að fá
ásættanlegan samning um veiðarnar.
Miðað við síðustu rannsóknir ættum
við að spyrja okkur hvort kröfur okk-
ar séu ekki of hóflegar,“ segir Friðrik.
MStyrkir samningsstöðuna »2
Makríll á Íslandsmiðum
» Um 1,5 milljónir tonna af
makríl mældust í íslenskri lög-
sögu.
» Tvö síðustu ár var magnið tal-
ið 1,1 milljón hvort ár.
» Mesti þéttleiki makríls og
rauðátu, sem er helsta fæða
makrílsins, var vestan við Ísland.
Mikið er um dýrðir í höfuðstað Norðurlands, Ak-
ureyri, í tilefni af því að bærinn fagnar um þess-
ar mundir 150 ára afmæli. Í gær var sjálfri Ís-
landsklukkunni hringt hvorki meira né minna en
150 sinnum í tilefni afmælisins, en klukka þessi
er listaverk Kristins E. Hrafnssonar. Hún stend-
ur við Háskólann á Akureyri og fulltrúar bæjar-
ins og Háskólans sáu um að hringja bjöllunni,
fimm högg hver. Og börn aðstoðuðu við verkið.
Íslandsklukkunni hringt 150 sinnum í tilefni afmælis
Skapti Hallgrímsson
Í ræðu sinni
við upphaf
flokksráðsfundar
VG í gær lýsti
Katrín Jakobs-
dóttir, varafor-
maður flokksins,
yfir vonbrigðum
með illdeilur og
átök innan
flokksins:
„Stærstu vonbrigði mín á kjör-
tímabilinu eru að sú samstaða og
samheldni sem einkennt hefur okk-
ar hreyfingu frá upphafi hefur
horfið.“ Katrín sagði Evrópusam-
bandsmálið hafa reynst flokknum
erfiðara en önnur mál.
Illdeilur og átök á
kostnað samstöðu
Katrín Jakobsdóttir
„Hækkun virðisaukaskattsins mun
ekki aðeins koma sér illa fyrir hót-
elin heldur greinina í heild sinni,
flugfélögin, bílaleigurnar, verslanir,
veitingahús og alla þá sem á ein-
hvern hátt hafa tekjur af ferða-
mönnum,“ segir Sander Van Ops-
tal, eigandi hollensku
ferðaskrifstofunnar Askja Reizen,
um fyrirhugaða hækkun stjórn-
valda á virðisaukaskatti á hótelgist-
ingu.
Ef hækka eigi skattinn af hótel-
gistingu í 25,5% muni það hafa bein
áhrif á hvaða áfangastaði ferða-
menn velja, hætt sé við að Ísland
verði ekki lengur sá valkostur sem
það hefur verið nú seinni árin.
Töluverð og nokkuð óvænt veik-
ing hefur orðið á gengi krónunnar
á síðustu dögum. Vakin var athygli
á þessu í Morgunkorni Íslands-
banka í gær. „Þótt vitaskuld sé litl-
ar ályktanir hægt að draga af einn-
ar viku gengisþróun er hreyfing
síðustu daga áminning um það
hversu lítið þarf til þess að veikja
krónuna,“ segir þar. »4 og 8
Hækkun skattsins
slæm fyrir marga