Morgunblaðið - 25.08.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Mest selda bókin á Íslandi 2012
Heilsuréttir fjölskyldunnar
3.
PRENTU
N
KOMINÍ
VERSLA
NIR!
bokafelagid.is
BAKSVIÐ
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
„Stjórnarsamstarfið snýst ekki um
umsókn Íslands að Evrópusam-
bandinu. Það snýst um að skapa vel-
ferðarsamfélag á Íslandi,“ sagði
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, í ræðu sinni við upphaf
flokksráðsfundar VG í gærkvöld.
Í ræðu sinni lýsti Katrín yfir von-
brigðum með illdeilur og átök innan
flokksins: „Stærstu vonbrigði mín á
kjörtímabilinu eru að sú samstaða
og samheldni sem einkennt hefur
okkar hreyfingu frá upphafi hefur
horfið.“
Katrín sagði Evrópusambands-
málið hafa reynst flokknum erfiðara
en önnur mál og að skipta mætti
flokksmönnum í þrjá hópa hvað
varðaði afstöðu þeirra til ESB.
Í fyrsta lagi væri það meirihluti
flokksmanna sem væri andvígur að-
ild að ESB en liti á það mál sem eitt
af mörgum stefnumálum flokksins
sem bæri að vega og meta í sam-
hengi við önnur mál. Í því sambandi
benti hún á að aðildarumsóknin að
ESB hefði verið ein af forsendum
ríkisstjórnarsamstarfsins við Sam-
fylkinguna.
Í öðru lagi væri hópur flokks-
manna þeirrar skoðunar að VG
gerðist einsmálshreyfing sem
byggði afstöðu sína til allra mála á
andstöðu sinni við aðild Íslands að
ESB. „Ljóst er að þegar við geng-
um til stjórnarsamstarfs við Sam-
fylkinguna voru sárafáir á þessari
skoðun en síðan þá hafa slíkar radd-
ir orðið enn háværari,“ sagði Katrín
og benti á að þótt hópurinn væri há-
vær væri þetta mikill minnihluti
flokksmanna. Hún sagði miður að
margir í forystu hreyfingarinnar
hefðu þurft að sitja undir stöðugum
svikabrigslum frá þessum hópi fyrir
það eitt að fylgja eftir samþykktum
flokksins.
Þá nefndi Katrín þriðja hópinn
innan VG en það væru þeir flokks-
menn sem væru hlynntir aðild að
ESB. Hún sagði þann hóp hafa sætt
sig við að vera í minnihluta innan
flokksins. „Það er ljóst að umtals-
verður hluti kjósenda VG kaus
flokkinn í seinustu kosningum
þrátt fyrir afstöðu hans til
Evrópusambandsins, ekki
vegna hennar,“ sagði Katrín.
Hún sagði ríkisstjórnina
hafa náð grundvallar-
markmiðum stjórnarsátt-
málans. Það væri að
tryggja efnahagslegan
stöðugleika og leita þjóð-
arsamstöðu um leið Ís-
lands til endurreisnar.
Samstaðan og
samheldnin horfin
Katrín lýsti vonbrigðum með illdeilur og átök innan VG
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta mun hafa mikil áhrif á okk-
ar viðskipti og gæti hreinlega
gengið af íslenska markaðnum
dauðum,“ segir Sander Van Ops-
tal, eigandi og framkvæmdastjóri
hollensku ferðaskrifstofunnar
Askja Reizen, um fyrirhugaða
hækkun stjórnvalda á virðisauka-
skatti á hótelgistingu úr 7% í
25,5%. Hann var staddur hér á
landi í vikunni og fékk að heyra
nánar af þessum áformum og
hvernig viðbrögðin eru hjá ís-
lensku ferðaþjónustunni. „Við
skiljum það vel að íslenska ríkið
glímir við mikinn halla á fjárlögum
en með því að ætla að hækka virð-
isaukaskattinn þetta mikið mun
það hafa mikil áhrif á markaðinn
hér,“ segir Opstal.
Hann bendir á að Ísland sé frek-
ar dýr áfangastaður fyrir ferða-
menn, ekki síst fyrir þá sem koma
hingað til lengri dvalar. Ef hækka
eigi skattinn af hótelgistingunni í
25,5% muni það hafa bein áhrif á
hvaða áfangastaði ferðamenn
velja, hætt sé við að Ísland verði
ekki lengur sá valkostur sem það
hefur verið nú seinni árin.
Mörg störf í hættu
Sander van Opstal segir Hol-
lendinga öfunda Íslendinga fyrir
hvað vel hafi tekist til við end-
urreisn eftir efnahagshrunið. Tek-
ist hafi að skapa nýjar og öflugar
atvinnugreinar, í stað fjármála-
kerfisins sem hrundi, og nefnir
ferðaþjónustuna sem dæmi.
„Ferðaþjónustan er ung grein
og enn í mótun og þróun. Hún er
einnig árstíðabundin, þó að tekist
hafi að auka straum ferðamanna
til Íslands utan háannatíma, og er
viðkvæm fyrir utanaðkomandi
áhrifum. Svona skattahækkun get-
ur auðveldlega dregið mjög úr
tekjumöguleikunum,“ segir Opstal
og telur skynsamlegra fyrir
stjórnvöld að setjast niður með
fulltrúum ferðaþjónstunnar og
ræða saman hvaða leiðir aðrar eru
færar til að auka tekjur þjóðarbús-
ins af ferðamönnum, þannig að
greinin nái að vaxa og dafna á
sjálfbæran hátt.
„Ferðaþjónustan skapar mörg
störf, eins og á sumrin fyrir náms-
menn til að fjármagna sitt nám yf-
ir veturinn. Hækkun virðisauka-
skattsins mun ekki aðeins koma
sér illa fyrir hótelin heldur grein-
ina í heild sinni, flugfélögin, bíla-
leigurnar, verslanir, veitingahús
og alla þá aðila sem á einhvern
hátt hafa tekjur af ferðamönnum,“
segir hann og bætir við: „Ef auka
á kostnað ferðamanna þá leita þeir
bara annað, svo einfalt er það. Ís-
land hefur svo margt upp á að
bjóða og okkar viðskiptavinir
koma heim í skýjunum eftir ferðir
hingað, segjast hafa uppgötvað
eitthvað einstakt.“
Gæti gengið af
ferðamarkaðn-
um dauðum
Hollenskur ferðafrömuður mælir
gegn hækkun skatts á hótelgistingu
Ferðaþjónusta Sander van Opstal
var staddur hér á landi í vikunni.
Löng reynsla af Íslandi
» Sander Van Opstal á hlut í
íslenska ferðaþjónustufyrir-
tækinu GoNorth, sem þjón-
ustar ferðamenn Askja Reizen
en þeir eru hátt í 2.000 árlega.
» Ferðaskrifstofan hefur flutt
inn hollenska og aðra evrópska
ferðamenn til Íslands í 25 ár.
» Unnur Svavarsdóttir hjá Go-
North tekur undir áhyggjur
Opstal og segir Ísland vera að
missa af bókunum næsta árs
vegna óvissu um skattlagn-
inguna.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Deilur um starfsemi leigubifreiða á
Suðurnesjum komu í vikunni inn á
borð bæjarráðs Reykjanesbæjar og
var Árna Sigfússyni, bæjarstjóra þar,
falið að vinna í málinu, eins og það er
orðað í fundargerð.
Áður fyrr voru sérstök
þjónustusvæði fyrir leigubifreiðar á
höfuðborgarsvæðinu og á Suður-
nesjum, en nú er svæðið algerlega
opið. „Eftir að skipulagi þjónustu
leigubifreiða var breytt telja þeir,
sem hafa leigubílarekstur hér að at-
vinnu, að aðstaða þeirra hafi versnað
til muna,“ segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ. Að sögn
Árna snýst óánægja leigubílstjóra
m.a. um flugstöðina í Keflavík, en
hann segir að dæmi séu um að leigu-
bílstjórar frá Reykjavík taki bara til
sín farþega sem eigi leið til höf-
uðborgarinnar.
Hafa enga sérstöðu
„Það er eitthvað um að þeir
hafni því að taka farþega sem ætla að
ferðast um svæðið hér og það er al-
gerlega ótækt. Það er hvimleitt að
fólki sé vísað frá leigubifreiðum
vegna þess að það býr á Suður-
nesjum,“ segir Árni.
Leigubílastjórar sem starfa í
Reykjavík hafa aðgang að svoköll-
uðum starfsstöðvum í borginni, en
þar geta leigubílstjórar lagt bílnum
þegar þeir eru ekki með farþega.
Þeir sem starfa á Suðurnesjum hafa
ekki leyfi til að nota þessar stöðvar. Á
flugvellinum í Keflavík hafa Suður-
nesjamenn hins vegar enga sérstöðu
gagnvart öðrum, en allir leigubíl-
stjórar geta notað þá starfsstöð sem
þar er í boði fyrir leigubíla.
Eins og fyrr kom fram var málið
tekið upp á fundi bæjarstjórnar í vik-
unni, en að sögn Árna er málið í
vinnslu. „Við munum gera allt sem
við getum til að koma þessum málum
í skikkanlegt horf. Málið er komið inn
á borð sveitarfélagsins og við munum
fara vandlega yfir það,“ segir hann.
Hafa verulegar áhyggjur
af starfsemi leigubifreiða
Málið komið inn á borð bæjarstjóra Reykjanesbæjar
Í ræðu Katrínar Jakobsdóttur á
flokksráðsfundinum kom fram
að flokksmenn Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs
mættu vera stoltir yfir verkum
flokksins í meirihlutasamstarf-
inu. „Nú þegar átta mánuðir eru
til alþingiskosninga er gleðilegt
að geta sagt að við höfum náð
grundvallarmarkmiðum ríkis-
stjórnarsamstarfsins,“ sagði
Katrín. Hún sagði Íslandi hafa
tekist að vinna sig hraðar út úr
kreppunni en öðrum þjóðum
Evrópu og það á eigin for-
sendum. „Þrátt fyrir erfiðar
aðgerðir í ríkisfjármálum,
niðurskurð og skattahækk-
anir, hefur okkur tekist að
hlífa þeim sem veikast
standa,“ sagði Katrín
og benti á að
árangurinn hefði
vakið heimsathygli.
Árangurinn
er gleðilegur
ERFIÐAR AÐGERÐIR
Katrín
Jakobsdóttir
Vinstri grænir Flokksráðsfundur Vinstri grænna fer fram á Hólum í Hjaltadal nú um helgina. Í ræðu sinni við upp-
haf fundarins í gær sagði Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, að ESB-málið hefði reynst flokknum afar erfitt.