Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Varaformaður VG telur ómak-legt að þegar rætt er um ESB
og aðildarmál hér á landi sé farið í
manninn en ekki
boltann, eins og
fram kom á flokks-
ráðsfundi í gær.
Henni er með öðr-
um orðum illa við
að nefndir séu til-
teknir ein-
staklingar þegar
rætt er um þessi
mál.
Nú er það svo að oft er rætt umESB-mál án þess að rætt sé
um einstaklinga. Sennilega er um
fátt meira rætt, því miður, enda er
margt sem á meira erindi í um-
ræðuna. Við það verður þó ekki
ráðið því að VG og Samfylking hafa
sótt um aðild að ESB fyrir Íslands
hönd.
Umsóknin er mikil svik VG viðstefnu sína og kjósendur.
Þannig er það að minnsta kosti oft
orðað, en það er vitaskuld aðeins
gert til einföldunar.
Flokkurinn er tilteknir ein-staklingar og í þessu tilviki er
í raun aðeins um hluta flokksins að
ræða og aðeins nokkra ein-
staklinga.
Staðreyndin er sú að nokkrir ein-staklingar í VG sviku kjós-
endur sína og aðra flokksmenn
þegar þeir sóttu um aðild að ESB.
Katrín Jakobsdóttir kvartar yfirþví að minnt sé á þessi svik en
hún verður að sætta sig við að þau
hafa mikla þýðingu.
Hún vill að þau gleymist en get-ur ekki ætlast til að þeir sem
voru sviknir taki undir það.
Katrín Jakobsdóttir
Maðurinn, boltinn
og svikin
STAKSTEINAR
DRESSMANN LAUGAVEGI LOKAR.
RÝMINGARSALA
ERUM MEÐ TIL SÖLU!
Fataslár,hengi, ljósaskilti,hillur á lager,borð
ofl á góðu verði.
Salan fer fram 28. og 29. ágúst frá kl. 10-18
í verslun Dressmann á Laugavegi 18b.
Laugavegur. S: 5629730
Veður víða um heim 24.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 rigning
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 10 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 rigning
Vestmannaeyjar 10 rigning
Nuuk 7 alskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 17 skúrir
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 18 léttskýjað
París 17 skúrir
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Berlín 17 skýjað
Vín 32 léttskýjað
Moskva 17 skýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 30 léttskýjað
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 31 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 29 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:52 21:09
ÍSAFJÖRÐUR 5:47 21:23
SIGLUFJÖRÐUR 5:29 21:07
DJÚPIVOGUR 5:19 20:41
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þvert á spár um að gengi krónunnar
muni veikjast á ný í vetur eins og
verið hefur í kjölfar árstíðabundinn-
ar styrkingar, sem fylgir gjaldeyr-
isinnkomu með erlendu ferðamönn-
unum í sumar, er ný verðbólguspá
Seðlabankans byggð á því að krónan
haldist jafnsterk og hún er nú næstu
mánuði og misseri.
Spurð um áhrif þess ef þetta geng-
ur eftir á ferðamannaþjónustuna á
komandi vetri segir Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, að mikilvægast
sé að gengi krónunnar haldist stöð-
ugt.
„Það er alveg ljóst að sú gríðar-
lega veiking krónunnar sem orðið
hefur eftir hrunið hjálpar öllum út-
flutningsgreinum og þar með ferða-
þjónustunni. En við höfum oft sagt
að óskastaða okkar er fyrst og
fremst sú að hafa stöðugleika í geng-
inu,“ segir hún.
„Ferðaþjónustan þarf að verð-
leggja sig mjög langt fram í tímann
og við höfum búið við það í gegnum
tíðina að fyrirtækin vita aldrei hvað
kemur í budduna þegar ferðamað-
urinn borgar fyrir þjónustuna, sem
pöntuð var löngu fyrr. Þetta hefur
verið okkar vandamál í gegnum tíð-
ina, vegna þess að krónan hefur
hoppað og skoppað eins og korktappi
í stórsjó. Það er verst. Það skiptir
kannski ekki öllu hvort hún er tíu
prósentunum hærri eða lægri ef hún
héldist stöðug svo menn vissu hvað
þeir væru að selja og hvað þeir
fengju þegar kemur að því að fá
greitt,“ segir Erna.
Óheppileg tímasetning
Töluverð og nokkuð óvænt veiking
varð á gengi krónunnar á síðustu
dögum. Vakin var athygli á þessu í
Morgunkorni Íslandsbanka í gær.
Evran kostar nú rúma 151 krónu á
innlendum millibankamarkaði og
hefur hækkað í verði fyrir landann
um 2,1% á vikutíma.
„Hreyfing krónunnar nú er at-
hyglisverð þar sem svo snarpar veik-
ingarhrinur hafa síðustu ár aðeins
komið fram á vetrarmánuðum, þegar
gjaldeyrisflæði tengt vöru- og þjón-
ustujöfnuði hefur verið með óhag-
stæðasta móti og við hefur bæst út-
flæði tengt vaxtagreiðslum og/eða
gjalddögum lána,“ segir í umfjöllun
greiningardeildar Íslandsbanka.
Bent er á að tímasetning veiking-
arinnar nú sé örlítið óheppileg fyrir
Seðlabankann, sem er nýbúinn að
gefa út hagspá þar sem gert er ráð
fyrir að gengi evru verði að jafnaði
150 kr. fram til ársloka 2014.
„Þótt vitaskuld sé litlar ályktanir
hægt að draga af einnar viku geng-
isþróun er hreyfing síðustu daga
áminning um það hversu lítið þarf til
þess að veikja krónuna, jafnvel á
þeim árstíma þegar gjaldeyrisinn-
flæði vegna ferðamennsku er hvað
mest.“
Stöðugt gengi skiptir mestu
Lítið þarf til þess að veikja krónuna Gengi krónu lækkar töluvert í sömu viku
og Seðlabankinn birtir spá um að krónan haldist jafnsterk á næstu mánuðunum
Ferðamenn Ferðaþjónustan er
næm fyrir gengissveiflum.
Morgunblaðið/Eggert
Lögregla höfuðborgarsvæðisins
handtók í gær karlmann sem fór um
bílastæði við Kringluna í Reykjavík
og stal úr bílum sem þar stóðu. Mað-
urinn var færður á lögreglustöð þar
sem hann viðurkenndi verknaðinn.
Fleiri þjófar voru á ferli í gær því
tilkynntur var þjófnaður úr búnings-
klefa íþróttahúss í Kópavogi. Þar
var ýmsum verðmætum stolið, með-
al annars farsíma. Minnir atvikið á
önnur fyrr í vikunni þegar stolið var
úr búningsklefum íþróttahúsa í
Reykjavík og Kópavogi.
Þá var tilkynnt innbrot í hús í
austurborginni og þjófnaður á ýms-
um munum. Einnig var brotist inn í
hjólhýsi í Breiðholti. Ekki liggur fyr-
ir hvort einhverju hafi verið stolið úr
því.
Stal úr bíl-
um við
Kringluna