Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 10
Bláberjadagar í Súðavík standa nú
yfir og verður fjölbreytt, fjölskyldu-
væn dagskrá í boði í dag og á
morgun. Bláber verða í aðal-
hlutverki á hátíðinni en hana sóttu í
fyrra bæði ferðalangar og brott-
fluttir Súðvíkingar í bland við
heimamenn.
„Þetta er í annað sinn sem við
höldum hátíðina en hún hitti í mark
í fyrra og var aðsókn framar björt-
ustu vonum. Þetta er eina berjahá-
tíð landins og fókusinn er á ber
sem afurð. Við höldum til að mynda
uppskriftakeppni þar sem við köll-
um eftir fólki sem tínir ber á hverju
einasta hausti til að búa til eitthvað
ljúffengt og nýstárlegt. Það er eng-
in spurning að þessi keppni á eftir
að vaxa þegar fram líða stundir. En
vinningsuppskriftin frá því í fyrra er
þegar komin inn í matreiðslubækur.
Þá kemur hingað til okkar tökulið í
dag sem ætlar að gera heimild-
armynd undir formerkjum bláberja-
blúss,“ segir Ómar Már Jónsson,
sveitarstjóri í Súðavík.
Á svæðinu eru feiknagóð berja-
lönd og er berjaspretta með betra
móti þetta árið að sögn Ómars.
„Ég tók þátt í slökkvistarfi í
Laugardal á dögunum og er mikill
missir að því berjasvæði. Þó eigum
við því lána að fagna að hér eru
hlíðar grænar eftir sumarið og önn-
ur berjalönd í miklum blóma. Gestir
á hátíðinni geta fengið sérstök
berjakort hjá okkur þar sem hægt
er að sjá hvar heimilt er að tína ber
og ítarlegri upplýsingar um svæðið.
Berjasprettan er verulega góð þetta
árið og á mínu heimili eru ber í
Bláberjadagar í Súðavík
Vaskir þátttakendur
háma í sig bláberjagóðgæti
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
B
rúðkaup Hannesar
Arnórssonar og Krist-
jönu Þrastardóttur
sem fram fór í sumar
var heldur óhefð-
bundið en ferja þurfti brúðkaups-
gesti síðasta spölinn á áfangastað í
gúmmíbát. Athöfnin fór fram á
Hornströndum, nánar tiltekið í
bænahúsinu í Furufirði en þar er
hvorki rafmagn né símasamband.
Staðurinn tengir ættirnar
Athygli þeirra Hannesar og
Kristjönu á tengingunni við bæna-
húsið var fyrst vakin þegar þau
fundu gamla grein sem Jón Arn-
órsson sendi í Þjóðviljann í byrjun
árs 1899. Þar skrifaði hann um
byggingu bænahússins sem var
vígt árið 1905 en unnið hefur verið
að endurbótum á því seinustu árin.
Kom þá í ljós að staðurinn tengdi
þau Hannes og Kristjönu saman á
skemmtilegan hátt.
„Kristjana er frá Vestfjörðum
og ég á ættir að rekja þangað.
Langalangafi minn, Jón Arnórs-
son, sem var hreppstjóri í Grunna-
vík, lagði til að byggt yrði bæna-
hús í Furufirði, en það var síðan
langalangafi Kristjönu, Benedikt
Hermannsson, sem hafði umsjón
með byggingu bænahúsins. Þannig
að staðurinn tengir saman ættir
okkar og þess vegna varð hann
fyrir valinu en það verður að segj-
ast að þetta er ekki aðgengilegasti
staður Íslands. Það eru engir vegir
sem liggja þangað og því ekki
hægt að keyra. Ekki var kostur að
fljúga vegna veðurs þannig að við
fórum með bát sem sigldi frá
Norðurfirði eins langt og við kom-
umst. Það er engin bryggja heldur
í Furufirði svo það varð að ferja
gestina í land í litlum gúmmíbát,“
segir Hannes
Nærri veðurtepptir gestir
Umhverfið skapaði rómantíska
umgjörð í kringum brúðkaupið og
þar voru aðeins samankomnir nán-
ustu vinir og ættingjar enda hafði
staðsetningin sín áhrif á gesta-
fjöldann. Séra Pétur Þorsteinsson
Giftu sig í
afskekktum firði
Hin nýgiftu Hannes Arnórsson og Kristjana Þrastardóttir voru gefin saman í
bænahúsinu í Furufirði á Hornströndum í sumar en húsið tengir ættir brúð-
hjónanna saman. Nokkur fyrirhöfn var að koma brúðhjónum og brúðkaups-
gestum á staðinn en ferja þurfti hópinn síðasta spölinn á áfangastað í gúmmíbát.
Eftir brúðkaupið dvöldu gestir í Reykjarfirði og nutu fagurrar náttúru svæðisins.
Nýgift Brúðhjónin sæl á svip, brúðurinn klæddist fallegum skautbúningi.
Skemmtileg lífsstílsblogg er gaman
að skoða enda eru þau oftast full af
fallegum myndum sem gleðja augað
og kveikja með manni góðar hug-
myndir. Vefsíðan mydream-
canvas.blogspot.it er slík vefsíða en
henni heldur úti Anu nokkur sem er
mikil áhugakona um ritstörf, ferðalög
og ljósmyndun. Anu hefur unun af því
að festa á filmu allt það litríka og fal-
lega sem fyrir augu ber í sínu dag-
lega lífi og á ferðalögum. Hún er upp-
runalega frá Indlandi en býr í
Bandaríkjunum og setur hún inn
myndir héðan og þaðan úr heiminum.
Það er um að gera að kíkja á þessa
líflegu bloggsíðu.
Vefsíðan www.mydreamcanvas.blogspot.it
Hugleiðsla Slökum á og njótum þess fallega sem er allt í kringum okkur.
Fegurð hversdagsins á mynd
Íslensk-tékknesk þjóðlagahátíð verð-
ur haldin á Árbæjarsafni á morgun,
sunnudag 26. ágúst, í tilefni af komu
tékkneska þjóðlagahópsins Osminku
frá Prag. Hópurinn er skipaður börn-
um og ungmennum á aldrinum 10-25
ára sem munu syngja, leika á hljóð-
færi og dansa tékkneska þjóðlaga-
tónlist í litríkum þjóðbúningum
heimalandsins. Osminka-hópurinn
hefur ferðast víða um heim og hvar-
vetna vakið athygli fyrir glaðlegan
flutning af mestu gæðum. Hópurinn
er nú hérlendis öðru sinni en hópur-
inn heimsótti Ísland einnig 2008. Nú
hefur Osminka þegar komið fram á
Menningarnótt í Reykjavík og á fjöl-
skylduhátíð í Vogum. Jafnframt kem-
ur fram þjóðlagahópur nemenda úr
Tónlistarskóla Kópavogs, barna- og
unglingadanshópur úr Þjóðdansa-
félagi Reykjavíkur og Rósa Jóhann-
esdóttir fiðluleikari og kvæðakona
ásamt dætrum.
Tónleikarnir hefjast kl. 13.00 en
þennan dag er einnig árlegur haust-
markaður á Árbæjarsafni og er að-
gangur ókeypis.
Endilega…
…sækið íslensk-tékkneska
þjóðlagahátíð á Árbæjarsafni
Osminka Hópurinn vekur hvarvetna athygli fyrir glaðlegan flutning.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Síðasta sýningarhelgi
Erum að taka á
móti verkum
á næsta uppboð
Hortus Conclusus
Ragnhildur Þóra
Ágústsdóttir
Sýningin stendur til 2. september
Inside Iceland
Olíumálverk
Valerie
Boyce
Sýningin stendur
til 2. september
Vefuppboð
Ástþór
Magnússon
Myndlist
Silfur og skartgripir
Hljómplötur
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.