Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 11
morgunmat, hádegismat og eftirrétt
á kvöldin þessa dagana,“ segir Óm-
ar.
Meðal dagskráliða í dag, laugar-
dag 25. ágúst, má nefna Bláberja-
hlaupið sem hefst klukkan 10 og
bláberjapæju-átkeppni í Melrakka-
setri klukkan 13:30. Allir sem vilja
geta tekið þátt í keppninni þar sem
kappát fer fram á bláberjagóðgæti.
Ómar segir þátttakendur hafa tekið
keppnina alvarlega í fyrra en kepp-
endur voru á aldrinum 5 ára og upp
úr.
Einnig verður í boði andlitsmálun
og slegið upp flóamarkaði svo að-
eins fátt eitt sé nefnt. Hefst síðan
dansleikur í samkomuhúsinu klukk-
an 23:30. Utan formlegrar dagskrár
verður einnig í boði klukkan 13 í
dag hvalaskoðunarferð með hvala-
skoðunarskipinu Núma.
„Hér hafa verið þrjár hrefnur og
einn hnúfubakur á dóli fyrir utan
hjá okkur síðustu daga og verður
því farið í sérstaka náttúrulífsskoð-
unarferð gegn sérstöku bláberja-
gjaldi. Einnig verður kíkt á Vigur
þar sem er mikið lundavarp og
einnig er selurinn hér skammt und-
an. Það er því tilvalið að fara í slíka
skoðunarferð héðan frá Súðavík,“
segir Ómar Már.
Tæmandi dagskrá má nálgast á
vefsíðunni www.blaberjadagar.com.
Kappát Þessir kappar kepptu í bláberjapæju-átkeppni í fyrra.
Hópurinn Brúðhjónin með gestum sínum fyrir utan bænahúsið í Furufirði sem vígt var árið 1905.
gaf brúðhjónin saman og eftir at-
höfnina var kaffi í Furufirði og lítil
veisla í Reykjarfirði, þarnæsta
firði við Furufjörð, en þangað á
Kristjana ættir sínar að rekja.
Alls stóð brúðkaupið í þrjá
daga frá 18.-20. júlí sem að hluta
til var ákveðið þar sem erfitt var
að treysta veðurspá fram í tímann.
Fór svo að þau Hannes og Krist-
jana voru gefin saman miðvikudag-
inn 18. júlí og segir Hannes að
ekki hafi mátt tæpara standa því
daginn eftir brottför gestanna
gerði vont veður og gestir hefðu
þá líklegast orðið veðurtepptir í
nokkra daga án símasambands.
Þjóðlegt og fallegt
brúðkaup
„Það passaði mjög vel fyrir
okkur að gifta okkur á mið-
vikudegi þar sem það var 18. en
við byrjuðum saman 16. júlí fyrir
fimm árum og trúlofuðum okkur
17. júlí þremur árum seinna og því
lá beint við að gifta sig þann 18,
en við kynntumst fyrst í gegnum
Rauða krossinn. Við vildum hafa
brúðkaupið þjóðlegt og fallegt.
Kristjana fékk lánaðan skautbún-
ing frá Þjóðdansafélagi Reykjavík-
ur og ég var í íslenskum hátíð-
arbúningi. Við vildum hafa þetta
töluvert óhefðbundið og gekk það
eftir. Gaman er að segja frá því að
brúðurin fór t.a.m. í hárgreiðslu á
byrggjunni í Norðurfirði og bar
blágresisblómvönd sem tíndur var
í Furufirði,“ segir Hannes.
Alls tók ferðalagið frá Reykja-
vík til Norðurfjarðar um fimm
tíma, þaðan sem siglt var til Furu-
fjarðar. Eftir brúðkaupsdaginn
dvöldu gestirnir áfram í Reykjar-
firði og nutu svæðisins. Gengu til
að mynda nokkrir gestanna á
Drangajökul.
„Við erum mjög ánægð með
hvernig til tókst og er þakklæti
okkur efst í huga til allra þeirra
sem áttu þátt í að láta þetta verða
að veruleika,“ segja brúðhjónin.
Umhverfið skapaði róm-
antíska umgjörð í kring-
um brúðkaupið og þar
voru aðeins saman-
komnir nánustu vinir og
ættingjar enda hafði
staðsetningin sín áhrif
á gestafjöldann.
Athöfnin Séra Pétur Þorsteinsson gaf brúðhjónin saman.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Barátta
íslenskrar alþýðu
„Æviminningar Tryggva Emilssonar
verkamanns eru í sjálfu sér svo ágætur
vitnisburður um merkilega kynslóð að torvelt
verður að finna annan áhrifameiri.“
ÁRNI BERGMANN / ÞJÓÐVILJINN
.
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Fátækt fólk og
Baráttan um brauðið
voru báðar tilnefndar til
Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs
NÝ
KILJA
Furufjörður
Drangajökull
Jökulfirðir
Ísafjarðardjúp
Arnarfjörður
Dýrafj.
Hælavík
Hornvík
Reykjarfjörður
Bjarnarfjörður
Ófeigsfj.flói