Morgunblaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
WWW.EBK.DK
Á þessum fundi, gerum við þér grein fyrir þeim byggingarmöguleikum sem EBK býður upp á. Við
förum yfir byggingaraðferðir og afgreiðsluskilyrði við að reisa hús frá EBK á Íslandi. Það er möguleiki
á einkafundum og við gerum tilboð samkvæmt ykkar hugmyndum og óskum.
Skráning á einkafund hjá:
Trine Lundgaard Olsen – farsími +45 6162 0525 – netfang: tlo@ebk.dk
Söluráðgjafar eru dönsku- og enskutalandi.
Vinsamlegast virðið tímaskráningu.
EBK HUSE A/S hefur meira en 35 ára reynslu af því að byggja og reisa sumarbústaði úr tré.
Þekkt dönsk gæðahönnun. EBK Huse er meðal leiðandi fyrirtækja á markaðinum, með
4 útibú í Danmörku og 3 útibú í Þýskalandi. Höfum einnig margra ára reynslu af
sumarhúsabyggingum á Íslandi, Þýskalandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi.
EBK HUSE A/S býður hér með til byggingarfundar
29. ágúst 2012 í Reykjavík.
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Símí + 45 5856 0400, netfang info@ebk.dk
12
33
1
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
DANSKIR GÆÐASUMARBÚSTAÐIR (HEILSÁRSBÚSTAÐIR)
WWW.EBK.DK
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Stefnan er að gera betur en stiga-
taflan segir til um,“ segir Gunnar
Björnsson, formaður Skáksambands
Íslands, um væntingar á ólympíu-
skákmótinu sem hefst eftir helgi.
Ólympíuskákmótið, helsti skák-
viðburður heims, fer fram í Istanbúl
í Tyrklandi dagana 27. ágúst til 10.
september. Lið frá um 160 þjóðum
taka þátt í mótinu og sendir Skák-
samband Íslands tvö lið til keppni,
eitt lið í opnum flokki og annað í
kvennaflokki.
Ísland tók fyrst þátt í ólympíu-
mótinu 1930 og varð þá í 15. sæti af
18. 1939 sigraði Ísland í b-riðli, en
besti árangurinn náðist 1986 þegar
íslenska liðið varð í 5. sæti. 6. sætið
1992 var þó jafnvel betri árangur því
þá voru Sovétríkin ekki lengur eitt
lið. Fyrir tveimur árum var íslenska
liðið í 40. sæti af 148 liðum og nú er
markmiðið að reyna að gera betur.
„Menn væru mjög sáttir við að kom-
ast inn á topp 30,“ segir Gunnar um
karlaliðið og bætir við að vonandi
verði kvennaliðið líka í efri helm-
ingnum. „Það yrði mjög gott.“
Styrktarmót í dag
Undirbúningur hefur gengið vel,
að sögn Gunnars, og hefur landsliðs-
fólkið verið í stífum æfingum und-
anfarna daga. Kvennaliðið hóf und-
irbúninginn eiginlega með þátttöku
á skákmóti í Tékklandi í fyrrahaust
en karlaliðið byrjaði seinna.
Íslenskir skákáhugamenn fá tæki-
færi á að kveðja keppendur því sér-
stakt mót þeim til heiðurs, upphit-
unarmót og fjáröflun í leiðinni,
verður haldið á Blómatorginu í
Kringlunni í dag klukkan 13 til 15.30.
Um fimmtíu skákmenn taka þátt í
mótinu og verður þetta eitt sterkasta
hraðskákmót ársins. „Þau gerast
ekki miklu sterkari,“ segir Gunnar.
Stóra stundin að
renna upp í Istanbúl
Ísland með tvær sveitir á ólympíuskákmótinu í Tyrklandi
Morgunblaðið/Kristinn
Efnilegur Hjörvar Steinn Grétarsson er aðeins 19 ára en samt einn öflugasti skákmaður landsins.
Fjórir stórmeistarar eru í sveit
Íslands í opnum flokki, en Héð-
inn Steingrímsson, Hannes Hlíf-
ar Stefánsson, Henrik Daniel-
sen, Hjörvar Steinn Grétarsson
og Þröstur Þórhallsson skipa
liðið. Liðsstjóri er Helgi Ólafs-
son, stórmeistari og skólastjóri
Skákskóla Íslands.
Kvennaliðið skipa Lenka
Ptácníková, Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir, Jóhanna Björg
Jóhannsdóttir, Tinna Kristín
Finnbogadóttir og Elsa María
Kristínardóttir. Liðsstjóri er
Davíð Ólafsson.
Reyndir
skákmenn
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
„Það er með þennan veg eins og
svo marga aðra hálendis- og mal-
arvegi að það er einfaldlega tak-
markað fé til viðhalds. Tíðarfarið
hefur einnig haft sitt að segja en
það hefur verið mjög þurrt í sumar
og þá er ómögulegt að hefla,“ segir
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar.
Fram kom í Morgunblaðinu í
gær, að rútubílstjóri hefði hætt að
aka með ferðamenn í Landmanna-
laugar sökum slæms ástands veg-
arins. G. Pétur segir þó að veg-
urinn hafi verið heflaður fyrir
skemmstu.
„Auðvitað tökum við mið af því
hvernig umferðin er en við tökum
líka mið af því fjármagni sem við
höfum til viðhalds. Vetrarþjónustan
á síðasta ári var mjög dýr og síðast-
liðinn vetur var erfiður og við erum
nú þegar komin langt yfir það fé
sem við höfðum til umráða. Við er-
um því í raun búin með okkar fé þó
svo haustið og fyrri partur vetrar
séu eftir,“ segir G. Pétur að lokum.
davidmar@mbl.is
Tíðarfarið truflar
Vegagerðin segir lítið fé til viðhalds á
malar- og hálendisvegum
Morgunblaðið/RAX
Vandi Víða eru hálendisvegir mjög illa farnir. Að sögn upplýsingafulltrúa
Vegagerðarinnar er erfitt að sinna vegunum sökum fjársveltis og tíðarfars.
Ekki trúa þessum sóðaskrifum á
netinu, segir Marina Schcherbac-
heva í tölvupósti sl. þriðjudag til
Einars S. Einarssonar, fyrrverandi
forseta Skáksambands Íslands,
vegna frétta af henni og Boris
Spassky, eiginmanni hennar, í
tengslum við óvænta brottför skák-
meistarans til Moskvu frá París fyr-
ir rúmri viku.
Haft var eftir eiginkonu Spass-
kys á vef Chessbase að skákmeist-
arinn hefði yfirgefið heimili þeirra
fimmtudagskvöldið 16. ágúst og
væri á leiðinni til Rússlands.
Á öndverðum meiði
Síðan var sagt frá símaviðtali við
Spassky í rússneska blaðinu
Komsomolskaya Pravda þar sem
haft var eftir honum í Moskvu að
hann hefði ekki fengið rétta með-
höndlun á stofnun í París eftir að
hafa fengið heilablóðfall 2010.
Sagði Spassky, að sögn blaðsins, að
þegar hann var fluttur heim hefði
hann komist að því að búið hefði
verið að slíta símann úr sambandi
og ekkert netsamband verið á
heimilinu. Hann hefði óskað eftir
því að vera fluttur til Moskvu en
enginn hefði hlustað á hann. Hann
hefði flúið með hjálp vina og fengið
vegabréf í rússneska sendiráðinu
því þó hann væri ekki auðugur
maður teldi hugsanlega einhver sig
hafa fjárhagslegan ávinning af því
að hann gæfi upp öndina.
Sl. miðvikudag kom fram í les-
endabréfi í Soviet Sport frá Iraidu
Spasskayu, systur Spasskys í St.
Pétursborg, að fjölskyldan vissi
ekki hvar Spassky væri. Hún hefði
heimsótt fjölskylduna í París í byrj-
un mánaðarins og þá hefðu allir
verið ánægðir en þremur dögum
síðar hefði Spassky horfið. Hún
sagði að honum hefði verið rænt og
að kona ætti hlut að máli.
Í viðtali við sama blað sagði
Iraida Spasskaya að fyrr í mán-
uðinum hefði Spassky verið í mun
betra ástandi en hún hefði gert ráð
fyrir. Hún sagði að fyrrnefnd um-
mæli, sem höfð væru eftir honum,
gætu ekki verið frá honum komin.
Þvert á móti hefði fjölskyldunni lið-
ið vel í París og allt væri til alls á
heimili þeirra hjóna. Endur-
hæfingin gæti ekki verið á betri
stað. Hún segist hafa þekkt eig-
inkonu bróður síns frá því hjónin
kynntust fyrir meira en 30 árum og
Marina væri heiðvirð kona. Hún
hefði gert sitt besta til að aðstoða
Boris í endurhæfingunni og mik-
ilvægast væri að þeirri meðferð,
sem hann fékk í París, yrði haldið
áfram. steinthor@mbl.is
Ekki trúa rógi um
Spassky á netinu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Á Íslandi Boris Spassky þegar hann
kom til Íslands árið 2002.
Sögusagnir um flótta frá París til
Rússlands Misvísandi fréttir
Skáksnillingur
» Boris Spassky var einn af
fremstu skáksnillingum sög-
unnar.
» Um þessar mundir eru 40 ár
liðin frá einvígi hans og Bobbys
Fischers í Laugardalshöll um
heimsmeistaratitilinn í skák.
» Spassky kom síðast til Ís-
lands 2008.