Morgunblaðið - 25.08.2012, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Litli tónsprotinn
Allir komast í hátíðarskap á jólatónleikum
Sinfóníunnar þar sem sígild jólalög hljóma
í flutningi Þóru Einarsdóttur,
Stúlknakórs Reykjavíkur o.fl.
Kynnir er trúðurinn Barbara.
Seiðandi danstónlist, kraftmikið
slagverk og riddaraleg lúðraköll
einkenna þetta framúrskarandi
færeyska barnaverk.
Sögumaður er Benedikt Erlingsson.
ÁLFAR OG RIDDARARJÓLATÓNLEIKAR
Við höldum á vit ævintýranna
með Pétri og úlfinum og Leikfanga-
sinfóníunni. Tónleikar og brúðu-
leikhús eins og það gerist best.
Brúðugerðarmeistari er Bernd Ogrodnik.
Sögumaður er Halldóra Geirharðsdóttir.
Í náttfatapartíi Sinfóníunnar hljómar falleg nætur-
tónlist, vögguvísur og taktföst kvikmyndatónlist
úr Harry Potter og Ghostbusters.
Kynnir er trúðurinn Barbara.
NÁTTFATAPARTÝPÉTUR OG ÚLFURINN
Bakhjarlar:
Gönguleið þar sem hægt er að
upplifa fjölbreytta hafntengda
starfsemi, verslanir, veitingastaði
og ferðaþjónustu hefur verið
merkt frá tónlistarhúsinu Hörpu
að Grandagarði. Tilgangurinn er
að vekja athygli gesta hafnar-
innar á þessum möguleika og
gera gönguleiðina aðgengilegri.
Rekstraraðilar við höfnina hafa
kallað leiðina Hafnarstíginn, seg-
ir í frétt frá Reykjavíkurborg.
Gönguleiðin sem er um kíló-
metri að lengd var máluð með vél
sem yfirleitt er notuð til að
merkja bílastæði og vegi.
Á tveimur stöðum hafa verið
málaðir myndskreyttir sexhyrn-
ingar sem mynda torg sem hægt
væri að nýta fyrir viðburði, eða
staði til þess að mæla sér mót á.
Torgin tvö eru annars vegar
merkt með akkeri og áttavitarós
og hins vegar með bátsstýri og
hvölum. Innan tíðar verði hafist
handa við gerð útiæfingasvæðis
við höfnina á svæðinu milli Sjó-
minjasafnsins og gamla slippsins.
Svæðið verður hannað af hönn-
unarteyminu Stáss design og
framkvæmt í samstarfi við
Mjölni.
Hönnuðir Hafnarstígsins eru
Massimo Santanicchi og Ragnar
Már Nikulásson sem hönnuðu
einnig fánana sem lífga upp á
svæðið við Austurbakka við
Hörpu. Mattia Gambardella var
ráðgjafi. Hafnarstígurinn er sam-
starfsverkefni Faxaflóahafna og
Reykjavíkurborgar. Tekið var
mið af eldri gönguleiðum sem
Faxaflóahafnir höfðu áður merkt.
Göngustíg-
ur merktur
við höfnina
Tengir Hörpuna
og Grandagarð
Morgunblaðið/Eggert
Nýr stígur Hafnarstígur setur
mikinn svip á gömlu höfnina.
Árleg landbúnaðarsýning og
bændahátíð, Sveitasælan 2012, fer
fram í reiðhöllinni Svaðastöðum á
Sauðárkróki í dag. Steingrímur J.
Sigfússon, landbúnaðarráðherra með
meiru, setur hátíðina kl. 11 og í kjöl-
farið tekur við fjölbreytt dagskrá sem
endar með kvöldvöku í kvöld undir
stjórn Gísla Einarssonar frétta-
manns.
Í tengslum við Sveitasæluna verð-
ur opið hús á fjórum búum í Skaga-
firði á morgun frá kl. 11-16. Þetta eru
hrossaræktarbúið Hof á Höfða-
strönd, loðdýrabúið Urðarköttur á
Syðra-Skörðugili, kúabúið á Hlíðar-
enda í Óslandshlíð og sauðfjárbúið á
Brúnastöðum í Fljótum.
Að sögn Karls Jónssonar hjá fyr-
irtækinu Markvert, sem undirbúið
hefur sýninguna fyrir hönd aðstand-
enda hennar, er búist við allt að 2.000
gestum í dag.
Um árlegan viðburð er að ræða þar
sem skagfirskir bændur og fyrirtæki
á sviði landbúnaðar koma saman og
gera sér glaðan dag, um leið og kynn-
ing fer fram á starfi þeirra og þjón-
ustu. Af fjölbreyttri dagskrá í reið-
höllinni má nefna vélasýningu bænda
og vélasala, smalahundasýningu,
hrútasýningu, hæfileikakeppni gröfu-
mannsins, dráttarvélasýningu, leit að
nálinni í heystakknum, tónlistaratriði
og meistaramót í óhefðbundnum
hestaíþróttum.
Sveitasæla í Skagafirði
Ljósmynd/Markvert.is
Bændahátíð Undirbúningur fyrir Sveitasæluna stóð sem hæst í gær.
Búist við allt að 2.000 manns í reiðhöllina Svaðastaði á
Sauðárkróki í dag Fjölbreytt dagskrá á árlegri sýningu