Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðasmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Grænkáls-
draumur
NÝR SAFAMATSEÐILL
FULLUR AF HOLLUM OG NÆRINGAR-
RÍKUM ÞEYTINGUM OG SÖFUM
Íslenskt
grænkál
lífræn
t
Ofurfæðudrykkur með nýuppteknu
lífrænu grænkáli, hlaðinn vítamínum
og steinefnum til að auka orku og þrek.
Einstaklega bragðgóður og seðjandi.
ÚR BÆJARLÍFINU
Birna G. Konráðsdóttir
Borgarfjörður
Sumarið hefur leikið við Borgfirð-
inga. Hitamet slegin, mannfólkið
fengið tölvuvert af D-vítamíni sem
sýnt hefur sig með dekkri húðlit og
bændabrúnku. Bændur una þokka-
lega við sitt. Regn í byrjun ágúst
breytti þar ýmsu. Vetrarforði er
því víða betri en horfur voru á.
Margir landeigendur hafa
hlunnindi af laxveiði sem skiptir
máli er kemur að afkomu. Hlýindi
undanfarin sumur hafa valdið
vatnsleysi í laxveiðiám í Borgar-
firði. Snjór er féll snemma síðasta
vetur skipti víða sköpum þetta árið.
Sá silfraði hefur samt sem áður
ekki séð ástæðu til að mæta í þeim
mæli sem vænst var og margur
veiðimaðurinn ókátur. Umræðuefn-
ið ærið og vangavelturnar marg-
víslegar.
Samkvæmt lögum ber veiði-
réttareigendum að sjá til þess að
laxveiðiá í þeirra eigu sé sjálfbær.
Flestir veiðiréttareigendur hafa
staðið sig á vaktinni og hafa því
góða samvisku í þessum efnum,
fátt upp á þá að klaga. Þeir vita að
áin þeirra er í góðum málum. Þeg-
ar árar öðruvísi er því eðlilegt að
menn beini sjónum að skilyrðum í
hafinu. Hvað er að gerast þar?
Þegar þörf er á svörum er
horft til fræðimanna. Er kemur að
þekkingu á laxfiski treysta bændur
og landeigendur á starfsmenn
Veiðimálastofnunar. Þeir hafa
stundað rannsóknir á íslenskum
laxi í áratugi. Þar er þekking til
staðar sem vart verður metin til
fjár. Á sama tíma og veiðiréttar-
eigendur og veiðimenn vildu sjá
aukið fjármagn veitt til þessarar
stofnunar eru blikur á lofti um til-
vist hennar í stjórnkerfinu. Það er
kannski stóra fréttin.
Færri veiðimenn hafa sést nú
síðla sumars á bökkum laxveiðiáa
en oft áður. Kemur það m.a. til af
þeirri staðreynd að alltaf er verið
að kaupa laxinn sem veiddist í síð-
ustu veiðiferð. Kannski merkilegt
því eðli málsins samkvæmt verður
veiðiskapur alltaf happdrætti. Þótt
veiðileyfasalar barmi sér eins og
bestu búmenn þá vita veiðiréttar-
eigendur fullvel að allt byrjar og
endar heima. Þeir halda þó ró sinni
og hugsa sem svo að súrt sé gott
með sætu. Enginn kann að meta
góðar laxveiðiár nema slæmt komi
inn á milli. Bændur og landeig-
endur eiga mikið undir þessum
hlunnindum. Borgfirðingar ætla þó
ekki að hengja haus. Náttúran hef-
ur ætíð tekið sveiflur, átt góð ár og
slæm til að kenna mannfólkinu að
meta hið góða. Árnar sjálfar eru
flestar í góðum málum, þ.a.l. trúa
menn því að ástandið sé einstakt
og endurtaki sig ekki.
Laxinn sem veiddist síðast
Morgunblaðið/Birna G. Konráðsdóttir
Laxveiði Veiðimaður í Gljúfurá í Borgarfirði með góðan feng.
Uppskeru- & auðlindahátíðin
Krækiberið á Vesturlandi hefst í
dag, laugardag, og stendur til 9.
september.
Boðið verður upp á fjölda við-
burða, námskeiða og tilboða vítt og
breitt um Vesturland á hátíðinni.
Viðamikla dagskrá hátíðarinnar
má sjá á vefsíðunni www.vestur-
land.is.
Krækiberið
Í kvöld verður boðið upp á mikið
sjónarspil við Jökulsárlón þegar
hin árlega flugeldasýning við lónið
verður haldin en auk þess verður
búið að lýsa upp ísjaka í lóninu með
kertum. Saman skapar þetta
ógleymanlega upplifun fyrir gesti,
segir í tilkynningu.
Sýningin sjálf hefst kl. 23.00 og
varir í ca. hálftíma á meðan flug-
eldum er skotið upp en undirbún-
ingur hefst nokkrum tímum fyrr
þegar kveikt er á fjölda kerta sem
dreift er um ísjakana í lóninu. Von
er á fjölda gesta en síðustu ár hafa
yfir þúsund gestir komið hvert ár
og fer fjöldinn stigvaxandi.
Björgunarfélag Hornafjarðar
stendur að sýningunni í samstarfi
við ferðaþjónustuna á Jökulsárlóni
og Ríki Vatnajökuls. Viðburðurinn
er mikilvæg fjáröflun fyrir björg-
unarfélagið og rennur allur að-
gangseyrir óskiptur til félagsins,
það er 1.000 krónur á mann.
Hægt verður að fylgjast með
flugeldasýningunni að einhverju
leyti gegnum vefmyndavél Mílu.
Sjónarspil Hin árlega flugeldasýning við Jökulsárlón er mikilfengleg.
Flugeldasýning við Jökulsárlón
Hið árlega hjólaskíðamót Skíða-
göngufélagsins Ulls fer fram
sunnudaginn 26. ágúst og verður
ræst kl. 10:00 um morguninn.
Keppt verður með hefðbundinni að-
ferð og mun mótið fara fram á
göngustígum umhverfis Seltjarnar-
nes. Rásmark og endamark verður
á móts við smábátahöfnina, við
gatnamót Suðurstrandar og Bakka-
varar, og gengnir 5 km inn á Eiðs-
granda að drykkjarstöð og til baka.
Þetta er nær lárétt leið en viðbúið
að vindur virki eins og brekkur
hvað erfiði varðar, segir í tilkynn-
ingu.
Þátttökugjald er 1000 kr. og
greiðist á staðnum. Keppt verður í
flokkum karla og kvenna 17- 39 ára
og 40 ára og eldri. Keppendur fá
frítt í Sundlaug Seltjarnarness að
keppni lokinni. Skráning fer fram á
heimasíðu félagsins: www.ullur.is
og einnig á staðnum frá kl. 9:30.
Allir þeir sem æfa á hjólaskíðum
eru hvattir til að vera með og nota
mótið sem lið í æfingum sínum.
Jafnframt er þetta kjörið tækifæri
til að sjá hvernig ganga á hjólaskíð-
um fer fram. Annað útivistarfólk er
beðið að taka tillit til keppendanna
á göngustígnum en keppni ætti að
verða lokið fyrir kl. 11:30.
Hjólaskíðamót
á Seltjarnarnesi
Gissur Páll Gissurarson tenór, Ágúst Ólafs-
son barítón og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó-
leikari flytja saman marga vinsælustu dúetta
óperubókmenntanna á tónleikum í Salnum í
kvöld kl. 20, er nefnast Bræðralag og barátta.
Að auki koma fram Helga Rós Indriðadóttir
sópransöngkona og karlakórinn Voces
Masculorum. Hugmynd að tónleikunum
kviknaði á tónlistarhátíðinni Bergmáli á Dal-
vík sumarið 2011. Gissur Páll og Ágúst hafa
reglulega unnið saman síðustu ár, nú síðast í
La Boheme í Íslensku óperunni, en á hátíð-
inni komu þeir fram á vel heppnuðum tón-
leikum með Evu Þyri og Helgu Rós í Bergi á Dalvík og Miðgarði í Skaga-
firði. Strax var ljóst að framhald yrði á samstarfi þeirra og var ákveðið að
endurtaka leikinn í Salnum í kvöld. Aðgangseyrir er 3.800 krónur.
Bræðralag og barátta í Salnum í kvöld
Ágúst Ólafsson, Eva Þyri og
Gissur Páll í Salnum í kvöld.
Sumarbúðir KFUM og KFUK í
Ölveri undir Hafnarfjalli fagna
60 ára starfsafmæli um þessar
mundir og halda upp á það á
morgun. Árið 1952 hófst starfið á
núverandi stað og hafa sumar-
búðirnar starfað þar óslitið síðan.
Þær höfðu verið á nokkrum stöð-
um áður en fastur samastaður
fannst í Ölveri. Saga starfsins
teygir sig til ársins 1939 en
Kristrún Ólafsdóttir var stofn-
andi sumarbúðanna. Á sunnudag-
inn verður árleg kaffisala sum-
arbúðanna í Ölveri frá kl. 14-17.
Boðið verður upp á glæsilegar
veitingar og drykki og rennur
allur ágóði kaffisölunnar til upp-
byggingar starfsins. Allir eru
hjartanlega velkomnir á kaffisöl-
una og að fagna afmæli sumar-
búðanna, segir í tilkynningu.
Afmæli Ölvers
STUTT