Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
um 6,9% sem að hluta má rekja til
lækkandi álverðs og áhrifa þess á
samningsbundið raforkuverð. Inn-
leystar áhættuvarnir tengdar álverði
höfðu jákvæð áhrif á tímabilið og við
þessar aðstæður njótum við góðs af
því að endursamið var við Rio Tinto
Alcan um hærra raforkuverð sem
ekki var tengt álverði.
Nettó skuldir fyrirtækisins halda
áfram að lækka, nú um 74 milljónir
dollara þrátt fyrir að fyrirtækið hafi
bæði greitt arð og aukið fjárfesting-
ar frá fyrra ári. Mjög mikilvægt er
að áfram verði lögð áhersla á lækkun
skulda vegna mikillar skuldsetning-
ar fyrirtækisins,“ segir Hörður Arn-
arson jafnframt í fréttatilkynningu
Landsvirkjunar.
Tekjur dragast
saman um 6,9%
Skuldir Landsvirkjunar lækka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsvirkjun Hörður Arnarson for-
stjóri er sáttur við afkomuna.
Rekstrartekjur Landsvirkjunar á
fyrri hluta ársins námu 202,9 millj-
ónum dollara (24,8 ma.kr.) sem er
6,9% lækkun frá sama tímabili árið
áður.
Þetta kemur fram í sex mánaða
uppgjöri, sem fyrirtækið sendi frá
sér í gær. Þar kemur fram að
EBITDA (hagnaður fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta) nam 163,2
milljónum dollara (19,9 ma.kr.) og
EBITDA hlutfall var 80,4% af
tekjum, en var 82,3% á sama tímabili
í fyrra.
Sömuleiðis að hagnaður fyrir
óinnleysta fjármagnsliði nam 46,9
milljónum dollara (5,7 ma.kr.), en
var 50,5 milljónir dollara á sama
tímabili árið áður.
Handbært fé frá rekstri nam 118,1
milljón dollara (14,4 ma.kr.) sem er
11% lækkun frá sama tímabili árið
áður. Nettó skuldir lækkuðu á tíma-
bilinu um 74 milljónir dollara (9
ma.kr.) og voru í lok júní 2.429 millj-
ónir dollara (296,3 ma.kr).
Reksturinn hefur gengið vel
Í fréttatilkynningu frá Lands-
virkjun er haft eftir Herði Arnarsyni
forstjóra að rekstur Landsvirkjunar
á fyrri hluta ársins hafi gengið vel.
Skrifað hafi verið undir raforku-
samninga við tvo nýja viðskiptavini,
raforkuvinnslan hafi gengið vel og
framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun
séu að mestu leyti á áætlun.
„Afkoma fyrri hluta ársins er vel
viðunandi í ljósi efnahagsástands í
heiminum. Tekjur dragast saman
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir gluggana á einum stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp