Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
SVIÐSLJÓS
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mörgum Norðmönnum var létt í
gær þegar dómarar í máli Anders
Behrings Breivik kváðu upp
þyngsta fangelsisdóm sem hægt er
að fella fyrir fjöldamorð og hryðju-
verk samkvæmt norskum lögum.
Flestir Norðmenn telja að dómurinn
verði til þess að fjöldamorðinginn
verði í haldi til æviloka.
Allir dómararnir fimm í undirrétt-
inum í Ósló komust að þeirri niður-
stöðu að Breivik væri sakhæfur og
ábyrgur gerða sinna. Saksóknarar
höfðu óskað eftir því að fjöldamorð-
inginn yrði dæmdur ósakhæfur
vegna geðveiki.
Rétturinn dæmdi fjöldamorðingj-
ann í 21 árs „öryggisgæslu“ fyrir
hryðjuverk, en samkvæmt norskum
lögum er hægt að dæma hættulega
afbrotamenn í slíka gæslu ef talið er
að samfélaginu stafi mikil ógn af
þeim. Markmiðið með þessari refs-
ingu er fyrst og fremst að vernda
samfélagið. Þegar hinn dæmdi hefur
afplánað 21 árs fangelsisdóminn
geta dómarar framlengt öryggis-
gæsluna í fimm ár í senn og eins oft
og þörf er talin á. Hægt er því að
halda afbrotamanninum í fangelsi
eða lokaðri geðdeild til æviloka ef
samfélaginu er talin stafa ógn af
honum. Slík öryggisgæsla getur því í
raun jafngilt lífstíðarfangelsi.
Hægt hefði verið að dæma Brei-
vik í 30 ára fangelsi hefði hann verið
ákærður fyrir glæp gegn mannkyn-
inu. Þá hefði hins vegar ekki verið
hægt að framlengja fangelsisdóminn
og öryggisgæsla er eina refsiúrræð-
ið sem getur jafngilt ævilöngu fang-
elsi.
Norska Stórþingið samþykkti árið
2009 að lengja hámarksrefsinguna
fyrir hryðjuverk úr 21 ári í 30. Þetta
lagaákvæði öðlast þó ekki gildi fyrr
en lögreglan og dómstólarnir hafa
fengið nýja gagnagrunna en þeir
hafa ekki enn verið teknir í notkun.
Ekki var því hægt að dæma hryðju-
verkamanninn á grundvelli ákvæðis-
ins, að því er fram kemur á fréttavef
norska ríkisútvarpsins.
Ætla ekki að áfrýja
Margir Norðmenn fögnuðu fang-
elsisdómnum yfir Breivik og skoð-
anakannanir benda til þess að þorri
þeirra telji að hann sé sakhæfur.
Lögmenn fjöldamorðingjans sögðu
að hann hygðist ekki áfrýja dómnum
og fréttavefur norska ríkisútvarps-
ins sagði að saksóknarar hefðu
ákveðið að áfrýja ekki.
Breivik og margir ættingjar
þeirra sem biðu bana vildu ekki að
hann yrði dæmdur ósakhæfur vegna
geðveiki.
Mörgum þeirra var því létt og lög-
menn þeirra fögnuðu dómnum.
„Þetta sýnir að dómskerfið virkar og
dómstólarnir eru sjálfstæðir,“ hafði
Aftenposten eftir einum lögmann-
anna, John Christian Elden.
„Þetta er sanngjarnt, hreint og
beint,“ sagði Mette Yvonne
Larsen, annar lögmaður þeirra
sem eiga um sárt að binda
vegna fjöldamorðanna. Lög-
mennirnir sögðu skjólstæð-
inga sína vera ánægða
með dóminn og vona
að ákæruvaldið
myndi ekki áfrýja
honum vegna
þess að þeir
vildu ekki
ganga aftur í gegnum þær þjáningar
sem fylgdu slíkum réttarhöldum.
Norskir fjölmiðlar höfðu eftir sér-
fræðingum að dómstóllinn hefði sýnt
hugrekki og sjálfstæði með því að
hafna því mati tveggja réttargeð-
lækna að Breivik væri ósakhæfur
vegna ofsóknargeðklofa. Rétturinn
óskaði eftir mati annarra réttargeð-
lækna og niðurstaða þeirra var að
Breivik væri sakhæfur.
„Dómurinn sýnir að við þurfum
aukna umræðu og umbætur á sviði
réttargeðlækninga í áttina að því
sem þekkist í Svíþjóð, Danmörku og
Finnlandi, sem eru með stofnanir og
faglegri ramma um mat réttargeð-
lækna,“ hafði Aftenposten eftir Agn-
ar Aspaas, öðrum geðlæknanna sem
lögðu fram síðara matið og töldu
Breivik sakhæfan.
Norskir stjórnmálamenn fögnuðu
einnig dómnum. „Þetta er góður
grunnur að því að honum verði hald-
ið í fangelsi til æviloka,“ hafði frétta-
veitan AFP eftir Knut Storberget,
sem var dómsmálaráðherra Noregs
þegar ódæðisverkin voru framin.
„Mjög mikilvægum kafla er nú
lokið. Það leikur ekki nokkur vafi á
því að þessi löngu réttarhöld hafa
lagst þungt á eftirlifendur. Ég vona
að niðurstaða réttarins verði til þess
að þeir geti tekið næsta skref fram á
við í sorgarferlinu,“ sagði Helga
Pedersen, formaður þingflokks
Verkamannaflokksins.
Leiðtogar annarra stjórnmála-
flokka tóku í sama streng og sögðu
að þingið þyrfti að ræða hvort
breyta þyrfti refsilöggjöfinni í ljósi
fjöldamorðanna og tilhöguninni á
mati réttargeðlækna á sakhæfi
morðingja.
Grunni að lífstíðarfangelsi fagnað
AFP
Áfrýjar ekki Fjöldamorðinginn heilsaði að hætti hægri öfgamanna með því að rétta út hnefa þegar hann kom í dóm-
salinn í gær. Hann sagði síðar í yfirlýsingu að hann viðurkenndi ekki dómstólinn en hygðist ekki áfrýja dómnum.
Fangelsisdómi yfir Anders Behring Breivik almennt vel tekið í Noregi Var dæmdur í sérstaka
öryggisgæslu Hægt verður að framlengja dóminn og halda Breivik í öryggisgæslu til æviloka
Glotti við tönn
» Fjöldamorðinginn glotti þeg-
ar fangelsisdómurinn var kveð-
inn upp yfir honum eftir tíu
vikna réttarhöld.
» Dómararnir sögðu að Brei-
vik væri haldinn andfélags-
legum persónuleikatruflunum
og sjálfsdýrkun en ekki alvar-
legri geðsýki.
» Könnun, sem blaðið Verdens
Gang birti í gær, bendir til þess
að 62% Norðmanna telji að
fjöldamorðinginn gangi aldrei
laus aftur.
Nokkrir þeirra sem lifðu af
hryðjuverkin í Noregi létu í ljósi
ánægju sína með fangelsisdóminn
á samskiptavefjum í gær.
„JÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!“
sagði ein þeirra, Emma Matinovic,
á Twitter. „Búið. Endir,“ tísti Viljar
Hansse, sem fékk byssukúlu í höf-
uðið í skotárás fjöldamorðingj-
ans í Útey.
„Þessari þvælu er loksins
lokið. Lífið getur byrjað
núna,“ tísti Ingrid Nymoen,
sem komst lífs af í Útey.
„Okkur er létt og við erum
sátt við dóminn,“ hafði
Aftenposten eftir Eirik
Eriksen, sem missti
son sinn Aleksander í
skotárásinni í Útey í fyrra. „Núna
finnst okkur að við getum haldið
áfram að lifa lífinu.“
„Réttur dómur“
Norskir fjölmiðlar fögnuðu einnig
niðurstöðu dómstólsins.
„Þetta er góður og réttur dómur,“
sagði blaðið VG í forystugrein í
vefútgáfu sinni. „Anders Behring
Breivik vissi hvað hann var að
gera, að það var illmennska. Það
er siðferðislega rétt að sá sem
fremur illvirki sé kallaður til
ábyrgðar.“
Alls biðu 77 manns bana í hryðju-
verkunum, átta í sprengjuárás í
miðborg Óslóar og 69 í skotárás-
inni í Útey.
„Þessari þvælu loksins lokið“
FÓLK SEM LIFÐI ÁRÁSIRNAR AF FAGNAR DÓMNUM
Einn dómaranna,
Arne Lyng, við
dómsuppkvaðninguna.
Þrjár íbúðir lausar
Við Suðurlandsbraut 58 - 62 eru sjötíu og átta glæsilegar þjónustuíbúðir fyrir sextíu
ára og eldri sem eru í eigu Grundar og eru leigðar með íbúðarréttarfyrirkomulagi.
Nú er einungis þremur þriggja herbergja íbúðum óráðstafað og eru þær 138 m2 að
stærð. Íbúðirnar eru á fyrstu og annarri hæð í húsum 60 og 62.
Um er að ræða þjónustuíbúðir þar sem íbúar geta fengið heitan mat í hádegi, læknis-
og hjúkrunarþjónustu, tekið þátt í ýmsu félagsstarfi, íþróttum og sjúkraþjálfun. Þá er
verið að reisa innisundlaug og heilsuræktarstöð ásamt því að unnið er að frágangi á
púttvelli í garði.
Áhugasamir hafi samband við Kristján Sigurðsson í síma 618 9200 eða með tölvupósti
á kristjan@grund.is, en einnig má sjá nánari upplýsingar á www.mörkin.is